Fréttablaðið - 06.09.2008, Side 40
● heimili&hönnun
Skráning og upplýsingar:
Esther Helga Guðmundsdóttir,
sími 568-3868 og
699-2676, netfang:
esther@matarfi kn.is
www.matarfi kn.is
Bandarísku sérfræðingarnir Phil Werdell M.A. og Mary Fushi CENSPS
koma til Íslands og miðla af áratuga reynslu sinni sem rannsóknar-
og meðferðaraðilar á sviði offi tu, átröskunar og matarfíknar.
Námskeið fyrir þá sem eiga í vanda með mat og þyngd
Matarfíkn;
líkamlegur, huglægur og andlegur vandi.
Hvar og hvenær: Grensáskirkju, safnaðarheimili
Laugardaginn 13.09.08 kl. 9.00-16.30 og/eða
sunnudaginn 14.09.08 kl. 9.00-16.30
Verð: Stakur dagur kr. 12.800.- // báðir dagar: 21.800.-
Fyrir öryrkja, nemendur og hjón: Stakur dagur kr. 9.900.- // báðir dagar 19.800.-
Hádegisverður og aðrar veitingar innifaldar
Opnir fyrirlestrar fyrir almenning
Faraldur eða leti?
Offi ta - átröskun - matarfíkn. Hvernig skarast vandinn.
Allir hjartanlega velkomnir - enginn aðgangseyrir
Hvar og hvenær:
Grensáskirkju, föstudaginn 12.09.08 kl. 20.00-21.30
Háskólanum á Bifröst, þriðjudaginn 16.09.08 kl. 20.00-21.30
Phil Werdell M.A. Mary Foushi
Í Garðabænum hafa Halla Haralds-
dóttir og Hjálmar Stefánsson komið
sér vel fyrir með útsýni yfir sjó-
inn. Heimili þeirra er bjart og stíl-
hreint og þar er engu ofaukið. Verk
eftir Höllu og aðra listamenn prýða
veggina. Glerverk eftir Höllu og
aðra listamenn hanga uppi í nokkr-
um gluggum íbúðarinnar.
„Áður en við fórum í það að inn-
rétta íbúðina spurði ég manninn
minn hvort hann vildi ráða ein-
hverju,“ segir Halla og bætir við
því til útskýringar að Hjálmar sé
heldur íhaldsamari en hún þegar
kemur að því að velja hluti inn á
heimilið.
Val á húsmunum og litum fyrir
nýju íbúðina kom í hlut listakonunn-
ar Höllu. Hún ákvað að ganga alla
leið og skipti algjörlega um stíl, ef
svo má að orði komast. Í stað þess
að hafa dökka húsmuni vildi Halla
leggja áherslu á ljósa tóna og stíl-
hreinar línur. Allir sófar og stólar
í íbúðinni eru í jarðlitum en bæði
leður- og tauáklæði eru í ljósum lit.
Í sjónvarps- og bókaherberginu
vekur stofuskápur úr palisandervið
athygli, en í nýju íbúðinni virkar
þessi skápur, sem kominn er til ára
sinna, sem nýr.
„Ég hef alltaf verið hrifin af því
að hafa bækur í kringum mig,“ segir
Halla og bætir við að líkt og með aðra
hluti, svo sem skrautmuni, þá gæti
hún þess að stilla þeim í hóf. „Það er
ómögulegt að ætla sér að koma öllu
fyrir,“ segir hún að bragði.
Heimilið er einnig vinnustaður
Höllu, en nú um helgina verður hún
með málverkasýningu á Ljósanótt
í Reykjanesbæ. Sýningin verður í
listasalnum Verðandi í Bílakringl-
unni, Grófinni 8. - vg
Við sjávarsíðuna
● Halla Haraldsdóttir, mynd- og glerlistakona, og Hjálmar Stefánsson, fyrrverandi útibússtjóri
í Landsbankanum, fluttu fyrir tveimur árum frá Reykjanesbæ í Sjálandshverfið í Garðabæ.
Eldhúsið er opið og bjart og útsýni til sjávar er einstaklega fallegt úr eldhúsinu. Húsgögnin og innréttingin eru nútímaleg en hlýleg.
Vinnustofa Höllu er afar snyrtileg og skipulögð. Veggina prýða málverk eftir hana
sjálfa en hún hefur einnig unnið glerlistaverk og mósaíkmyndir.
Halla Har er mörgum kunn fyrir falleg
listaverk og mun sýna á Ljósanótt um
helgina.
Allt er í stíl í stofunni. Stofuborðin eru í ljósum sandlit líkt og sófaleðrið og gólfflísarnar. Stórir gluggarnir hleypa inn mikilli
birtu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Mynd- og glerlistakonan Halla Haralds-
dóttir er fagurkeri og ber heimili hennar
þess merki.
6. SEPTEMBER 2008 LAUGARDAGUR10