Fréttablaðið - 06.09.2008, Side 80

Fréttablaðið - 06.09.2008, Side 80
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.26 13.26 20.24 Akureyri 6.06 13.11 20.13 Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Guðmundar Steingrímssonar Það hvarflar óneitanlega að manni að ef ljósmæður hefðu haft tök á að keppa í grein sinni, helst á stóru ljósmæðramóti í útlöndum – þar sem þær hefðu unnið til verðlauna eftir æsispenn- andi keppni við t.d. franskar stall- systur sínar eða spænskar – að þá myndu kannski málefni ljósmæðra í yfirstandandi kjarabaráttu njóta meiri vinsælda hjá hinu opinbera. ÉG sé þetta fyrir mér. Samúel Örn á háa c-inu. Það glittir í koll. Sú franska er vongóð, en íslenska ljós- móðirin tekur á móti sínu barni á nýju heimsmeti í óaðfinnanlegri samvinnu ljósmóður og móður svo allt tryllist á áhorfendapöllunum. Íslendingar eru heimsmeistarar og hampa gullfylgjunni! LJÓSMÆÐURNAR okkar eru svo keyrðar niður að Arnarhóli þar sem ráðamenn bíða þeirra á stórum útipalli. Fjármálaráðherra fer í hljóðnemann og tilkynnir hátt og snjallt svo bergmálar í Arnarhvoli, að í ljósi glæsilegrar frammistöðu hafi ríkisstjórnin ákveðið að verða við kröfum ljósmæðra um leiðrétt- ingu á launum sínum! Húrra! SVONA er komið fyrir þjóðfélag- inu. Í stundarbrjálæði – og eðlilegri sigurvímu eftir frækilega frammi- stöðu íslenska landsliðsins í hand- bolta – snarar ríkisvaldið fram pen- ingum eins og ekkert sé. Ég þykist vita að ríkisvaldinu finnist ómál- efnalegt að gagnrýna þetta og setja í eitthvert samhengi, en ég verð að láta vaða: Ég kemst ekki hjá því að draga þá ályktun að þegar leikur og skemmtun sé annars vegar, þá séu til peningar, en þegar velferð og réttlæti hangi á spýtunni, þá sé féð af skornum skammti. ANNAR hópur finnur þetta við- horf nú á eigin skinni. Breiðavíkur- drengirnir okkar, sem svo ættu auðvitað að kalla sig í þágu betri almannatengsla, naga sig sjálfsagt í handarbökin eins og ljósmæður yfir því að hafa ekki sett saman keppnislið, sem hefði getað haft sigur í einhverju erlendis. ÞESSI þjóð skuldar 10 þúsund milljarða í útlöndum eftir mesta kaupæðis- og neyslutímabil sög- unnar. Þar kepptu víkingarnir okkar, svokölluðu, á erlendri grundu og höfðu sigur í kapp- hlaupum við sjálfa sig um að kaupa leikfangaverslanir og fleira. Nú er þjóðfélagið komið á annan endann út af eftirköstunum. Ríkis- stjórnin þarf að redda og leiðrétta. Allir sveittir á enninu yfir því. ÉG þykist vita að innan ríkis- stjórnar innar séu aðilar sem vilja ekki skrifa undir þessar áherslur, að réttlæti og velferð sitji á hakan- um. Nú þurfa nýjar áherslur að fæðast. Til þess þarf kannski að rembast smá. Rembast Í dag er laugardagurinn 6. september, 250. dagur ársins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.