Fréttablaðið - 06.09.2008, Síða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.26 13.26 20.24
Akureyri 6.06 13.11 20.13
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar
Það hvarflar óneitanlega að manni að ef ljósmæður hefðu
haft tök á að keppa í grein sinni,
helst á stóru ljósmæðramóti í
útlöndum – þar sem þær hefðu
unnið til verðlauna eftir æsispenn-
andi keppni við t.d. franskar stall-
systur sínar eða spænskar – að þá
myndu kannski málefni ljósmæðra
í yfirstandandi kjarabaráttu njóta
meiri vinsælda hjá hinu opinbera.
ÉG sé þetta fyrir mér. Samúel Örn
á háa c-inu. Það glittir í koll. Sú
franska er vongóð, en íslenska ljós-
móðirin tekur á móti sínu barni á
nýju heimsmeti í óaðfinnanlegri
samvinnu ljósmóður og móður svo
allt tryllist á áhorfendapöllunum.
Íslendingar eru heimsmeistarar og
hampa gullfylgjunni!
LJÓSMÆÐURNAR okkar eru
svo keyrðar niður að Arnarhóli þar
sem ráðamenn bíða þeirra á stórum
útipalli. Fjármálaráðherra fer í
hljóðnemann og tilkynnir hátt og
snjallt svo bergmálar í Arnarhvoli,
að í ljósi glæsilegrar frammistöðu
hafi ríkisstjórnin ákveðið að verða
við kröfum ljósmæðra um leiðrétt-
ingu á launum sínum! Húrra!
SVONA er komið fyrir þjóðfélag-
inu. Í stundarbrjálæði – og eðlilegri
sigurvímu eftir frækilega frammi-
stöðu íslenska landsliðsins í hand-
bolta – snarar ríkisvaldið fram pen-
ingum eins og ekkert sé. Ég þykist
vita að ríkisvaldinu finnist ómál-
efnalegt að gagnrýna þetta og setja
í eitthvert samhengi, en ég verð að
láta vaða: Ég kemst ekki hjá því að
draga þá ályktun að þegar leikur og
skemmtun sé annars vegar, þá séu
til peningar, en þegar velferð og
réttlæti hangi á spýtunni, þá sé féð
af skornum skammti.
ANNAR hópur finnur þetta við-
horf nú á eigin skinni. Breiðavíkur-
drengirnir okkar, sem svo ættu
auðvitað að kalla sig í þágu betri
almannatengsla, naga sig sjálfsagt
í handarbökin eins og ljósmæður
yfir því að hafa ekki sett saman
keppnislið, sem hefði getað haft
sigur í einhverju erlendis.
ÞESSI þjóð skuldar 10 þúsund
milljarða í útlöndum eftir mesta
kaupæðis- og neyslutímabil sög-
unnar. Þar kepptu víkingarnir
okkar, svokölluðu, á erlendri
grundu og höfðu sigur í kapp-
hlaupum við sjálfa sig um að
kaupa leikfangaverslanir og fleira.
Nú er þjóðfélagið komið á annan
endann út af eftirköstunum. Ríkis-
stjórnin þarf að redda og leiðrétta.
Allir sveittir á enninu yfir því.
ÉG þykist vita að innan ríkis-
stjórnar innar séu aðilar sem vilja
ekki skrifa undir þessar áherslur,
að réttlæti og velferð sitji á hakan-
um. Nú þurfa nýjar áherslur að
fæðast. Til þess þarf kannski að
rembast smá.
Rembast
Í dag er laugardagurinn
6. september, 250. dagur ársins.