Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.09.2008, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 11.09.2008, Qupperneq 38
 11. SEPTEMBER 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● verk að vinna Spakmælið að árinni kenni illur ræðari á ekki alltaf við þegar framkvæmdir standa til því þá hafa verkfærin mikið að segja um það hvernig verkið gengur. Illa bítandi sporjárn og bogn- ar sagir eru ekki líklegar til stórræða heldur ávísun á mis- tök og skemmdir, að ekki sé talað um slæm áhrif á geðheilsu þeirra sem í framkvæmdun- um standa. Ef fram undan eru breytingar ætti því að fjár- festa í góðum verkfærum og láta sér ekki í augum vaxa kostnaður við það því margfalt meiri kostnaður getur orðið af skemmdum sem verða af völdum lélegra verkfæra. Þau verkfæri sem gott er að eiga eru sög, málband, hallamál, hleðsluborvél og helstu stærð- ir af borum, bæði steinborum og tréborum, og bitasett framan á hleðsluborvélina til að skrúfa mismunandi skrúfur. Einnig er gott ef steinveggir eru í húsinu að fjárfesta í höggborvél. Þegar gott safn verkfæra er komið skiptir höfuðmáli að ganga vel um það og að allt sé á vísum stað. Mikill tími getur farið til spillis við að leita ef ekki er gengið frá hverjum hlut. Fjárfestið því einnig í verkfærakistu eða komið ykkur upp verkfærahillu í geymslunni. Annríki hefur verið hjá iðnað- armönnum í byggingariðnaði síðustu ár hér á landi en nú virðist hafa dregið úr því. Ásgeir Magnússon hjá Sam- tökum iðnaðarins fylgist með stöðunni og var inntur frétta. „Staðan er þannig núna að við erum farin að sjá blikur á lofti. Það er náttúrulega heilmikill samdráttur fyrirséður í byggingariðnaðinum en hann er kannski ekki skollinn á eins illilega og reikna má með,“ byrj- ar Ásgeir og heldur áfram: „Á höf- uðborgarsvæðinu þar sem margir voru á þeim markaði að byggja og selja og um tvö þúsund íbúðir eru óseldar þá segir sig sjálft að það mun draga úr vinnu. Sveiflan er minni á Norðurlandi. Þar kom ekki þessi stóra sprengja, húsnæðisverð hækkaði ekki eins mikið og syðra og byggingarfyrirtækin fóru hægar í sakirnar. Það kemur þeim til góða nú því þau eiga minna óselt.“ Talið berst að erlendum iðnaðar- mönnum sem hafa lagt fram krafta sína við uppbygginguna síðustu ár. „Hér hefur verið mikið um erlent vinnuafl á almennum byggingar- markaði, einkum Pólverja. Þótt við höfum engar tölur yfir það ennþá þá vitum við að margir þeirra munu snúa til síns heima,“ segir Ásgeir og nefnir ýmsar ástæð- ur. „Þessi gríðarlega gengisfelling hjá okkur hefur þau áhrif að laun- in sem þeir senda að stórum hluta heim til sín hafa rýrnað mjög mikið og svo hefur atvinnuástandið í Pól- landi lagast verulega og laun hækk- að þar.“ Þar sem einstaklingum hefur oft gengið illa undanfarin misseri að fá iðnaðarmenn til starfa er Ásgeir spurður hvort ekki megi búast við breytingum á því. „Ég geri ráð fyrir að auðveldara verði að ná í iðnaðar- menn á næstunni en þá vaknar hin spurningin hvernig fjárhagsstað- an sé hjá þeim sem hyggja á fram- kvæmdir. Þær breytingar sem eru í þjóðfélaginu hafa alls staðar áhrif, til dæmis hefur allt hækkað í verði. Á móti öllu þessu kemur að það er töluvert mikið um stórar fram- kvæmdir sem taka upp þó nokkurn mannskap.“ Ásgeir telur vanta tilfinnanlega fólk í sumar greinar iðnaðar vegna lítillar nýliðunar á síðustu árum. Nefnir hann málmiðnað og múr- verk. „Það er skortur á málmiðn- aðarmönnum og múrurum á mark- aðnum,“ segir hann. „En það breyt- ir ekki þessari stóru mynd.“ - gun Farinn að sjá blikur á lofti hér á landi „Ég geri ráð fyrir að auðveldara verði að ná í iðnaðarmenn á næstunni en þá vaknar hin spurningin hvernig fjár- hagsstaðan sé hjá þeim sem hyggja á framkvæmdir,“ segir Ásgeir Magnússon, forstöðumaður skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi. MYND/ÖRLYGUR HNEFILL Sveiflan í byggingariðnaðinum var stærri á höfuðborgarsvæðinu en fyrir norðan að sögn Ásgeirs. Þeir sem halda heimili og hafa gert um nokkurt skeið vita flestir að það er eilífðarverkefni að halda því hreinu. Sumir hafa hrein- lega gefist upp fyrir draslinu og lifa með því í sátt og samlyndi en aðrir berjast á móti og taka til hendinni öðru hvoru. Það eru þó gömul sann- indi og ný að með því að ganga frá og taka til jafnóðum megi komast hjá fimm klukkustunda tiltektar lotum um helg- ar. Hér á eftir fara nokkur góð ráð: Búið um á hverj- um morgni, dragið frá og opnið glugga. Heng- ið upp yfirhafnir og raðið skóm þegar komið er inn og gangið jafnóðum frá vörum sem bornar eru inn í hús. Þvoið þvott jafnóð- um og látið hann ekki safn- ast upp. Brjótið saman úr hverri vél fyrir sig. Ryk-moppið dag- lega og þvoið einnig baðvask, sturtu og baðker daglega til að koma í veg fyrir að kísill safnist fyrir. Gangið jafnóðum frá leirtaui. Veljið síðan einn dag í viku til að skúra og þurrka af sem að öllum líkindum verður ekki jafn tímafrekt og ella. - ve Heimilisverkunum dreift yfir vikuna Það er eilífðarverkefni að halda heimilinu hreinu en sé tekið til hendinni jafnóðum verður það viðráðanlegra. Árinni kennir illur? Bílasmiðurinn hf. Bíldshöfða 16 s. 567 2330 Eitt mesta úrval landsins af ljósum og glitmerkjum fyrir vagna og farartæki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.