Fréttablaðið - 11.09.2008, Blaðsíða 60
32 11. september 2008 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 17.15
Írski þjóðfræðingurinn Cliona
O’Carroll, sem starfar við Háskól-
ann í Cork, flytur erindið „How’s it
goin’, boy? - Útvarpsþættir byggð-
ir á samfélagsdrifinni þjóðfræða-
söfnun“ á vegum Félags þjóðfræð-
inga á Íslandi og Háskóla Íslands
í stofu 202 í Odda kl. 17.15 í dag.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
Akureyrarakademían, Félag sjálfstætt starf-
andi fræðimanna á Norðurlandi, hleypir í
vikunni vetrarfyrirlestraröð sinni af stað á ný.
Fyrirlestraröðinni var vel tekið síðasta vetur og
sóttu erindin á þriðja hundrað
manns, bæði félagar í Akademí-
unni og aðrir áhugasamir. Með
fyrirlestrunum er ætlunin að
bjóða upp á fjölbreytt efni af
sem flestum sviðum vísindanna
og búa þannig til vettvang
fyrir fræðimenn að miðla efni
sínu. Verða fyrirlestrarnir í vetur
tíu talsins og verða haldnir á
fimmtudögum kl. 17 í húsa-
kynnum Akademíunnar í Gamla
húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99. Fyrsta
fyrirlestur vetrarins heldur Tryggvi Hallgrímsson
á morgun. Hann mun í framsögu sinni fjalla um
áhrif snjóflóðavarna á samfélög á Íslandi.
Akademían lætur þó ekki þar við sitja heldur
stendur einnig fyrir allsherjar afmælismálþingi
til heiðurs kartöflum um næstu helgi. Tilefnið
er ekki eingöngu alþjóðlegt ár kartöflunnar í ár,
heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli kartaflna
á Íslandi og það að 200 ár eru
liðin síðan ræktun þeirra hófst í
Búðargilinu á Akureyri.
Málþingið er hugsað sem
væn blanda af fræðum, listum,
ræktun og matargerð. Þátt
tekur garðyrkjufólk sem og
ræktendur, myndlistarfólk,
sagnfræðingar, bændur, dansari
og tónlistarfólk. Matargerðar-
snillingarnir á veitingastaðnum
Friðriki V töfra fram kartöflurétti
og hljómsveit leikur fyrir dansi um kvöldið.
Málþingið, sem fer fram í húsnæði Akademí-
unnar, er öllum opið og er aðgangur ókeypis.
Þingið hefst kl. 13 næstkomandi laugardag og
stendur fram eftir kvöldi. - vþ
Fyrirlestrar og afmæli kartöflunnar
KARTÖFLUR Hafa fætt og kætt
Íslendinga í 250 ár.
Sýning á verkum myndlistarkon-
unnar Ólafar Bjargar Björnsdótt-
ur verður opnuð í dag kl. 17 í Artó-
teki, sem er á jarðhæð aðalsafns
Borgarbókasafns Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15. Nefnist sýningin
„Áttavitinn sjálfsnánd og mild
mýkingarefni“.
Ólöf Björg útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2001
með málun sem aðalgrein, og vorið
2007 lauk hún kennaranámi frá
sama skóla. Ólöf Björg hefur verið
virk í myndlistarlífi landsins frá
útskrift; hún hefur haldið einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga og uppákomum ýmiss
konar. Hún átti meðal annars verk
á Sequences-hátíðinni árið 2007 og
á afmælissýningu Hafnarfjarðar
sem sett var upp í Hafnarborg nú
fyrr á árinu. Málverk Ólafar
Bjargar eru í senn kaótísk og
nákvæm og fá litir að njóta sín til
fulls. Hún hefur þó ekki einskorð-
að listsköpun sína við málverkið
heldur hefur hún einnig unnið með
aðra miðla, til að mynda innsetn-
ingar, og má í því samhengi nefna
að á sýningunni í Artóteki má ein-
mitt sjá bæði málverk og innsetn-
ingu. Sýningin stendur til 19. okt-
óber. - vþ
Ólöf opnar sýningu
EITT SINN Málverk eftir Ólöfu Björgu
Björnsdóttur.
> Ekki missa af …
tónleikum hljómsveitarinnar
Bardukha á Café Rosenberg
við Klapparstíg, en þeir hefjast
kl. 21 í kvöld. Bardukha leikur
eldfjörug þjóðlög frá fjölda
landa, þeirra á meðal Tyrklandi
og Grikklandi. Hljómsveitin
hefur verið við stífar æfingar
seinni hluta sumars og því er
víst óhætt að lofa miklu fjöri.
Miðaverð er 500 kr.
Myndlistarkonan Birta Guðjóns-
dóttir opnar sýninguna Heim í
Gallery Turpentine á morgun kl.
18. Með sýningunni er Birta að
velta fyrir sér hugtakinu heima;
hvenær maður er heima og hve-
nær maður kemur heim. Orðið
sjálft kallar á vangaveltur um
tengslin milli heimsins alls og þess
sem er heima og það kallar á end-
urskoðun á afstöðu manns til
þeirra tengsla.
Í fréttatilkynningu frá Gallery
Turpentine segir Birta sjálf um
sýninguna: „Á sýningunni eru
verk sem ég hef unnið á þessu ári.
Á þessu tímabili hef ég dvalið á
meginlandi Evrópu og hef ferðast
mikið. Annar hluti sýningarinnar
er eins konar óður til jarðarinnar,
endaleysunnar, hringferlisins,
jarðtengingar-aðferðar. Hinn hluti
sýningarinnar er eins konar ferða-
saga. Þetta er ekki frásögn af fjar-
lægðum, merkum menningarslóð-
um, atburðum eða ævintýrum,
heldur skrásetning þekkingarleit-
ar, persónuleg aðferð til skilnings
á hinu innra í gegnum hið ytra.”
Birta Guðjónsdóttir hefur, þrátt
fyrir ungan aldur, afrekað margt á
sviði myndlistar. Hún hefur haldið
einkasýningar í D-sal Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, Suð-
suðvestur í Reykjanesbæ og De
5er í Rotterdam. Hún hefur einnig
tekið þátt í fjölda samsýninga, þar
á meðal í Nýlistasafninu, Kalinin-
grad State Art Gallery í Rússlandi,
Glasgow Project Room og nú
nýlega á Vesturveggnum í Skaft-
felli á Seyðisfirði. Birta starfar
jafnframt sem sýningarstjóri og
er nú listrænn stjórnandi í 101
Prójekt í Reykjavík - vþ
Óður Birtu til jarðarinnar
BIRTA GUÐJÓNSDÓTTIR Opnar sýningu í
Gallery Turpentine á morgun.
Leikritið Fool for Love eftir banda-
ríska leikskáldið Sam Shepard, í
uppsetningu leikhópsins Silfur-
tunglið, verður frumsýnt á Akur-
eyri í kvöld. Fyrirhugaðar eru tólf
sýningar á leikritinu fyrir norðan;
uppselt er á fyrstu sex sýningarn-
ar og er óðum að seljast upp á þær
sex sem eftir standa. Þessi tak-
markaði sýningafjöldi helgast
einna helst af önnum meðlima Silf-
urtunglsins, en leikararnir og leik-
stjórinn eru öll komin á kaf í verk-
efni hjá hinum ýmsu
menningarstofnunum víða um
land.
Silfurtunglið hlaut sjö tilnefn-
ingar til Grímunnar fyrr á árinu
fyrir uppsetningu sína á Fool for
Love. Hinn landskunni tónlistar-
maður KK er tónlistarstjóri sýn-
ingarinnar og fer einnig með hlut-
verk karlsins í verkinu. KK var
tilnefndur sem flytjandi ársins og
lagahöfundur ársins á Grímuhátíð-
inni. Hann samdi nokkur lög sér-
staklega fyrir sýninguna, þar á
meðal „Í eigin vanmætti“ sem fór í
spilun í fyrra og náði þar með
eyrum landsmanna. Nú er nýtt lag
úr sýningunni komið í spilun í
útvarpi; lagið nefnist „ég óttaðist“
og fjallar um samskipti aðalpers-
óna leikritsins.
Fool for Love var áður sett upp á
efri hæðinni í Austurbæ við
Snorrabraut. Þar spiluðu uppruna-
legar innréttingar skemmtistaðar-
ins Silfurtunglsins, sem leikhópur-
inn dregur einmitt nafn sitt af,
stórt hlutverk í því að draga fram
þá áþreifanlegu stemningu sem
skapaðist á sýningum leikritsins.
Því stóð hópurinn frammi fyrir
ákveðnu vandamáli þegar kom að
því að færa sýninguna um set:
hvernig væri best að flytja stemn-
inguna með? Leikmyndahönnuður-
inn Mekkín Ragnarsdóttir leysti
vandann og hefur af mikilli natni
endurskapað Silfurtunglið á Akur-
eyri; þannig er nú viðarpanellinn,
parketið og andrúmsloftið úr Aust-
urbæ komið norður. - vþ
Ástarflónið norður
ÁSTIR Í VESTRINU Uppsetning Silfurtunglsins á Fool for Love hlaut góðar viðtökur
áhorfenda og gagnrýnenda fyrr á árinu.
Umsjónarkennarar námskeiðsins eru Nína Björk
Gunnarsdóttir ljósmyndari og Andrea Brabin
framkvæmdarstjóri Eskimo, auk fjölmargra
gestakennara.
Kennt verður einu sinni í viku, einn og hálfan tíma
í senn.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, Eskimo tösku,
Maybelline mascara, viðurkenningarskjal og
10 sv/hv myndir. Námskeiðinu lýkur með stórri
tískusýningu. Stúlkurnar eru farðaðar fyrir
myndatöku og tískusýningu.
EMM School of Make-Up sér um förðun.
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 23. SEPTEMBER OG 25. SEPTEMBER.
Sjálfstyrking Framkoma Líkamsburður Innsýn í fyrirsætustörf Förðun Umhirða húðar og hárs
Myndataka (10 s/h myndir) Tískusýningarganga Fyrirsæta kemur í heimsókn Fíkniefnafræðsla
Myndbandsupptökur Leikræn tjáning Næringarráðgjöf
Skráning er hafin í síma 533 4646 og á www.eskimo.is.
Verð
17.900 kr.