Fréttablaðið - 11.09.2008, Síða 48

Fréttablaðið - 11.09.2008, Síða 48
 11. SEPTEMBER 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll Sú líkamsrækt sem felst í okkar daglegu iðju er oft vanmetin en staðreyndin er sú að við brenn- um fjölda kaloría á hverjum degi án þess að taka eftir því. Heimil- isverkin eru góður vettvangur til brennslu og með því að vinna þau af krafti má saxa á aukakílóin. Við það að skúra gólfin rösklega í þrjátíu mínútur brennir meðal- manneskja á þyngd um 140 kalor- íum og öðru eins við að ryksuga í þrjátíu mínútur. Ef straujárnið er mundað af krafti í hálftíma nást 75 kaloríur þar. Ef þú hamast við að þvo bílinn í klukkutíma brenna 300 kaloríur og við að reyta arfann í garðinum í hálftíma brenna 177 kaloríur. Í garðvinnunni felast einn- ig möguleikar á teygjum þegar þú teygir þig undir runnana. 120 kal- oríur fara við að slá blettinn og 204 kaloríur brenna við klukkkutíma málningarvinnu. Meira að segja þegar við sofum brenna kaloríurn- ar en við átta tíma svefn fara um fimmtíu kaloríur. Fróðleikur feng- inn af www.ezinearticles.com Skúra, skrúbba og bóna Þó nokkrum kaloríum má brenna með því að vinna heimilisstörfin af krafti. „Ég er tannlæknir og þegar ég kom heim frá framhaldsnámi 1991 var ég mjög stressaður. Mér tókst að ná tökum á því vandamáli og vil miðla reynslu minni til annarra,“ segir Ægir Rafn Ingólfsson sem er með námskeiðin Bless stress í Yoga Shala í Engjateigi 5 í Reykja- vík. Hann bendir á að ótal læknis- fræðilegar rannsóknir bendi á al- varleg áhrif streitu á heilsufar, með tilheyrandi kostnaði fyrir þjóðfélagið. „Grunnhugsunin í Bless stress er að láta líkamann bregðast við of miklu álagi en ekki reiða sig á hugann. Þetta er sam- tenging framkvæmda, hugsun- ar og tilfinninga og er líkamlega auðvelt fyrir alla,“ útskýrir hann. Ægir er með tölvupóstfangið aeg- iring@mac.com. Auðvelt fyrir alla Jóga er samtenging framkvæmda, hugs- unar og tilfinninga. Með því að tjá ást og áhuga sinn á öðrum eykur maður líkurnar á því að fólk hrífist af manni. NORDICPHOTOS/GETTY Með því að tjá ást og áhuga sinn á öðrum eykur maður líkurnar á því að fólk hrífist af manni. Rannsókn var gerð á tvö hundr- uð og þrjátíu körlum og konum við Aberdeen háskólann í Skotlandi, að því er kemur fram á fréttavef BBC. Niðurstöður sýndu að vís- bendingar um að einhverjum líki við þig skipta lykilmáli um hvort þú verður hrifinn af þeirri mann- eskju eða ekki. Samkvæmt rann- sókninni hafa bros og augnsam- band sömu áhrif og ástarjátningar. Fólki voru sýnd spjöld með mynd af mannsandlitum og áttu þau að flokka þau sem aðlaðandi og óaðl- aðandi. Yfirgnæfandi meirihluti valdi þau andlit sem aðlaðandi þar sem andlitin brostu eða horfðu beint fram. Með þessum upplýs- ingum geta einhleypir sparað sér tíma í leit að maka og hætt að eyða tíma í að spjalla við þá sem virð- ast ekki áhugasamir. „Samkvæmt þessum niðurstöðum getum við gert okkur grein fyrir því hversu aðlaðandi við erum sjálf eftir því hvernig fólk kemur fram við okkur. Okkur líkar það öllum þegar aðlað- andi fólk er jákvætt í okkar garð,“ segir Lynda Boothroyd, sálfræð- ingur við Háskólann í Durham. Ástarjátningar borga sig M YN D /G ET TY IM A G ES Alltaf bestir á Tryggvagötunni Sími 562 3456 Bananasplitt Candykaka Grillhúsið í 17 ár – aldrei betra 9. Grillhús-samloka Ristað brauð smurt með majo- nesi. Kjúklingur, grænmeti, ostur, beikon, skinka og franskar kartöflur. 1755,- 10. „Route 66“ Kjúklingasamloka með hunangssósu og frönskum. 1455,- 11. Klúbbsamloka með skinku, osti, beikoni og sveppum. 1535,- 12. Alvöru steiksamloka „Sú besta í bænum“ hlaðin nautakjöti með sinneps- sósu, lauk, osti og jalapenos. 1755,- 13. California club samloka með kjúklingabringu, beikoni, osti, guacamole og hunangssósu. 1645,- 14. Wishbone samloka með nautakjöti, lauk, sveppum, papriku og bernaisesósu 1755,- Samlokur Allar samlokur eru með fersku salati, sósu og tómötum á milli og bornar fram með frönskum kartöflum. Wishbone samloka 21. Sá eini sanni 200 gr djúsí BBQ með osti, beikon og grænmeti á milli, franskar fylgja 1645,- 24. Tex Mex hambor- gari með salsa, guacamole og sýrðum rjóma. 1375,- 23. Grillhúsborgari með beikoni, osti og guacamole. 1485,- 25. West side story borgari með skinku, osti, beikoni og sveppum. 1535,- 26. Blue moon borgari með ekta íslenskum gráðosti og guacamole. 1425,- 27. Creola borgari sterkur og öðruvísi með 1000 eyjasósu. 1375,- 28. Yfir á grillinu Hvítlauksborgari með osti og creolekryddi. 1385,- Hamborgarar af grillinu Á eftirtöldum hamborgurum er salat, hamborgarasósa, tómatar og laukur á milli og eru þeir bornir fram með frönskum kartöflum. Sá eini sanni

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.