Fréttablaðið - 11.09.2008, Page 75

Fréttablaðið - 11.09.2008, Page 75
FIMMTUDAGUR 11. september 2008 47 FÓTBOLTI Ítalinn knái Gianfranco Zola hefur ákveðið að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Íslendingafélaginu West Ham, sem er í eigu Björgólfs Guð- mundssonar, en samkvæmt heimildum fréttastofunnar Sky Sports mun samningur hans við Lundúnafélagið vera til þriggja ára. „Gianfranco var alltaf fyrsti kostur fyrir okkur. Hann hefur reynslu af því að vinna með og móta unga knattspyrnumenn og það skiptir okkur miklu máli. Það skemmir heldur ekki fyrir að hann var sjálfur snilldar fótbolta- maður á sínum tíma,“ segir ónafngreindur stjórnarmaður West Ham í viðtali í gær. Hinn 42 ára gamli Zola tekur við knattspyrnustjórastöðunni af Alan Curbishleys sem sagði starfi sínu lausu á dögunum vegna ósættis við stjórn félagsins. Zola hefur enga reynslu af þjálfun hjá félagsliði en hefur verið aðstoðar- þjálfari U-21 árs landsliðs Ítala í þónokkurn tíma. Zola lék sem kunnugt er með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma og var þar dáður fyrir snilldartakta sína og þótti sérstaklega öflugur í því að taka aukaspyrnur. Kevin Keen, þjálfari varaliðs West Ham, stýrir aðalliðinu um helgina gegn West Brom en Zola tekur við liðinu eftir þann leik. Enn liggur ekki fyrir hver verður aðstoðarmaður Zola en Steve Clarke, einn aðstoðarmanna Felipe Scolari, hefur verið orðaður við hlutverkið. - óþ Enska úrvalsdeildin: Zola tekur við West Ham TILBÚINN? Gianfranco Zola hefur enga reynslu af þjálfun félagsliða en hefur verið aðstoðarþjálfari ítalska U-21 árs liðsins undanfarið. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI „Ég er fúll yfir að hafa tapað leiknum en er að mörgu leyti ánægður með spilamennskuna. Við byrjum leikinn mjög sterkt og fengum fín færi. Við fengum svo á okkur mark og það drepur okkur í smá tíma en þó héldum við áfram og héldum boltanum ágætlega. Það er eins og oft með okkur, við eigum í smá vandræðum uppi á þriðja vallarhelming og þorðum ekki að fara nógu hátt,“ sagði Ólaf- ur Jóhannesson landsliðsþjálfari í leikslok. „Ég er 100% sáttur við framlag leikmanna inni á vellinum. Það var mjög auðvelt að gefast upp í stöðunni 2-0 en menn héldu haus og héldu ágætu skipulagi. Við tókum smá séns með því að taka Aron út af og setja Pálma inn á til að hressa upp á sóknarleikinn. Framlag leikmanna var til fyrir- myndar.“ Fyrirgjafir íslenska liðsins í föstum leikatriðum voru ekki eins og þær bestar geta verið. „Við fengum mark úr föstu leikatriði sem er víti. Okkar styrkur og á að vera okkar styrkur er föst leik- atriði. Við fáum reyndar mark á okkur úr horni sem á ekki að ger- ast. „Sáttur og ekki sáttur. Það er endalaust hægt að þjarka um það. Við fengum mark úr horni í síð- asta leik. Auðvitað skiptir máli að sá sem sparkar fyrir markið geri það vel og það er það sem við erum að vinna í. Auðvitað má alltaf gera betur. „Betra liðið tapaði leiknum. Á góðum degi og þegar við leggjum okkur 110% fram þá erum við ekk- ert síðri en Norðmenn og Skotar. Þegar við leggjum okkur alla fram þá gera hinir það ekki og það hjálpar okkur. Ég vil meina að Holland sé besta liðið í riðlinum og Makedónía næstbestir.“ - gmi Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari var svekktur líkt og lærisveinar hans: Betra liðið tapaði þessum leik VILDI FÁ STIG Landsliðsþjálfari Íslands, Ólafur Jóhannesson, var afar svekktur að hafa tapað gegn Skotum í ágætum leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEKKELSI Grétar Rafn Steinsson átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.