Fréttablaðið - 07.11.2008, Side 28
2 föstudagur 7. nóvember
núna
✽ með á nótunum
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta
María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@fretta-
bladid.is Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsing-
ar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstu-
dagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512
5000
Þ etta verður stærsta kynning á íslenskri menningu í Bretlandi í langan tíma,“ segir
Charlie Strand ljósmyndari og höfundur
bókarinnar Project: Iceland. Bókin kom út
í sumar og er ljósmyndabók um frum-
kvöðla í íslensku tónlistar- og menn-
ingarlífi. Hinn 11. nóvember næstkom-
andi ætlar hann að halda stórt útgáfu-
partý í London. „Partýið verður haldið
á skemmtistaðnum Punk í Soho,
sem er meðal annars uppáhalds-
skemmtistaður Kate Moss. Gusgus-
plötusnúðurinn President Bongo
sér um tónlistina og Ultra mega
teknóbandið Stefán kemur fram.
Arna Sigrún sýnir hönnun
sína og fyrirsætur frá Esk-
imo fljúga út fyrir sýning-
una,“ segir Charlie um partý-
ið sem fyrst og fremst er ætlað
fjölmiðlum, en nú þegar hefur
blaðamönnum frá Sunday Times og
tímaritunum Dazed, Confused og i-D
magazine verið boðið.
Charlie segist hafa fengið jákvæð
viðbrögð fjölmiðla í Bretlandi þrátt fyrir
milliríkjadeilur Íslands og Bretlands í
kjölfar bankahrunsins. „Blaðamennirn-
ir sem ég hef talað við eru áhugasamir
um viðburðinn og eru ekki að spyrja mig
út í bankahrunið, enda eru þeir að skrifa
um menningu svo þeir láta þetta ekki hafa
áhrif á sig,“ bætir hann við, en segist hafa
átt erfitt með að fá vinnu hérlendis frá því
hann flutti til landsins fyrir tveimur og hálfu
ári. „Þrátt fyrir útgáfu bókarinnar á ég mjög
erfitt með að fá vinnu við ljósmyndun. Ég lít
á sjálfan mig sem best geymda leyndarmál Ís-
lands og vonast til að fólk sjái hvað í mér býr
einn daginn,“ segir Charlie að lokum. - ag
Ljósmyndarinn Charlie Strand:
KYNNIR ÍSLENSKA
MENNINGU Í LONDON
Ljósmyndari kynnir Ísland í London Charlie heldur partý á klúbbnum Punk í London en staðurinn er meðal
annars í uppáhaldi hjá fyrirsætunni Kate Moss. Fyrirsætur frá Eskimo munu sýna nýja hönnun Örnu Sigrúnar
sem er nýútskrifuð úr Listaháskólanum.
„Það var algjör tilviljun að stof-
an var laus þegar ég flutti heim,“
segir Thelma Björk Jónsdóttir
hönnuður sem opnar nýja vinnu-
stofu í Garðastræti 2 á morgun.
„Ég var með vinnustofu þarna
ásamt fjórum hönnuðum árið
2005, áður en ég flutti til Parísar.
Hún var svo laus þegar ég flutti
heim svo ég ákvað að fara aftur
á gamla staðinn, ein með mín
höfuðföt,“ útskýrir Thelma sem
mun selja eigin hönnun ásamt
vel völdum fylgihlutum.
„Það verða aðallega höfuð-
föt og spangir frá mér, en ég
ætla líka að vera með fylgihluti
eftir aðra hönnuði eins og kraga
eftir Áróru Eir og töskur eftir
Hrafnhildi Guðrúnardótir. Einn-
ig verða flottir hlutir fyrir herra-
menn svo sem slaufur eftir Guð-
jón Tryggvason og ermahnappar
og bindisnæl ur eftir Ingu gull-
smið. Við erum ekki með fatnað
heldur fylgihluti, sem eru svo-
lítið punkturinn yfir i-ið,“ bætir
hún við.
„Á morgun verður opnunar-
veisla í vinnustofunni í Garða-
stræti klukkan tvö. Það eru allir
velkomnir, en þetta verður svona
heimboð. Þar ég ætla að bjóða
upp á heimabakaðar muffins,
kaffi og kertaljós,“ segir Thelma
að lokum. - ag
Thelma Björk Jónsdóttir hönnuður:
Opnar vinnustofu og búð
Komin heim Thelma selur fylgihluti
fyrir karla og konur á nýrri vinnustofu
sinni í Garðastræti 2.
SARA DÖGG ÁSGEIRSDÓTTIR LEIKKONA
Í kvöld er frumsýning á Vestrinu eina í Borgarleikhúsinu þar sem ég er aðstoðar-
maður leikstjórans, Jóns Páls. Fyrri part laugardags verður örugglega smá vinna
og flutningar og svo er undirbúningur barnaafmælis sem tekur allan sunnudaginn, þar sem
dóttir mín varð þriggja ára í vikunni. Sunnudagurinn verður allsherjar fjölskyldudagur.
Kærastarnir mæta og spila
Verslunin Gyllti kötturinn í Austur-
stræti fagnar þriggja ára afmæli á
morgun. Opið verður frá 11-17 og
verður 10-30 prósenta afsláttur af
öllum vörum. Rúsínan í pylsuend-
anum verður svo þegar strákarnir
í hljómsveitinni Jeff Who? mæta á
svæðið klukkan 15 og spila nokkur
lög. Svo skemmtilega vill til að tvær
af aðalsprautunum á bak við Gyllta
köttinn, þær Ása Ottesen og Vikt-
oría Hermannsdóttir, eiga kærasta í
Jeff Who? Það verður því væntan-
lega kósí og góð stemning þegar
Elli, Baddi og félagar mæta í Kött-
inn á morgun.
Stjörnur í auglýsingu
Fjöldi íslenskra tónlistar-
manna mætti í tökur á sjón-
varpsauglýsingu fyrir Rás 2 á
dögunum. Meðal þeirra hljómsveita
og listamanna
sem tóku þátt
voru Lay Low,
Stuðmenn,
Ný dönsk,
Mannakorn,
Buff og Dr.
Spock. Þóttu
listamennirn-
ir mislengi að
klára tökurnar.
Eini hópurinn sem kláraði í einni
töku, eins og Sinatra forðum, var
Björgvin Halldórsson ásamt börn-
um sínum, Svölu og Krumma. Þá
tók hljómsveitin Ljótu hálfvitarn-
ir sinn hluta upp allsnaktir, með
hljóðfærin ein til að skýla sér.
Við sendum ykkur
hlýjar kveðjur.
Þar sem persónuleg þjónusta og
fagmennska eru í fyrirrúmi.
Laugavegi 76
Vinnufatabúðin
helgin
MÍN