Fréttablaðið - 07.11.2008, Side 30

Fréttablaðið - 07.11.2008, Side 30
4 föstudagur 7. nóvember núna ✽ með allt á hreinu 1 3 SPENNANDI KONUKVÖLD Ef þig langar til að hlæja, skála í góðum veigum og sjá flotta íslenska hönnun er um að gera að skella sér á Konukvöld World Class á Apótekinu annað kvöld klukkan 20. Sveinn Waage verður með uppistand, haldin verður tískusýning frá E-label, Sigríður Klingenberg spáir í spilin og Ellý Ármanns dæmir í keppni um verstu stefnumóta- söguna. Drífðu þig í Laugar og nældu þér í miða. Þ að var margt um manninn á glæsilegri opnun nýrrar hárgreiðslustofu Karls Bernd- sen, Beauty bar, síðastliðinn fimmtudag. Karl hefur búið í London síðustu tíu árin þar sem hann hefur farðað og greitt mörgum af stærstu stjörnum samtímans, en hann er nú kominn aftur til Íslands og hefur opnað glæsilega stofu í Hæða- smára í Kópavogi. „Það mættu um 140 manns og stemningin var frábær,“ segir Karl um opnunina á Beauty barn- um. „Barinn býður upp á hárgreiðslu, förðun, litun og plokkun, en námskeið verða einnig stór þáttur í rekstrinum,“ útskýrir Karl sem mun halda svokölluð Beautykvöld á komandi mánuðum. „Ein- staklingar og hópar geta skráð sig, feng- ið fræðslu, sýnikennslu og ráðgjöf í hári og förðun, og heitustu leyndarmálin verða afhjúpuð á barnum,“ segir Karl að lokum og brosir. - ag Karl Berndsen hárgreiðslu- og förðunarmeistari: Hélt glæsilegt opnunarteiti Góð stemning Birkir Kristinsson, Ragnhildur Gísladóttir og Bentína Björgúlfsdóttir skemmtu sér vel á opnun Beauty bars. „Þetta er bók sem ég er búinn að ganga með í maganum í nokkur ár,“ segir Guðjón Bergmann jóga- kennari og rithöfundur um nýj- ustu bók sína Dropann, sem er ætluð börnum á aldrinum tveggja til átta ára. „Í bókinni er undir- tónn sem getur höfðað jafnt til barna sem fullorðinna, á sama tíma og krakkarnir læra um hring- rás vatnsins,“ útskýrir Guðjón og segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann las bókina Haf í dropa eftir Sigvalda Hjálmarsson. Tuttugu prósent af ágóða bók- sölunnar rennur til Dropans, styrktarfélags sykursjúkra barna á Íslandi, en samstarfið kom til með skemmtilegum hætti. „Þegar við Birgir Þ. Jóakimsson, sem mynskreytir bókina, vorum búnir að ákveða titil fórum við að leita að vefsíðu. Þá sáum við að dropinn.is var til og ákváðum að styrkja félagið. Þegar ég var svo að fara að hringja höfðu þau sam- band að fyrrabragði og báðu mig um að tala á aðalfundi styrktarfé- lagsins í október. Í núverandi ár- ferði hefur félagið misst nokkra af sínum stærstu styrktaraðilum, svo ég er ánægður með að geta lagt eitthvað af mörkum,“ segir Guð- jón að lokum. - ag Guðjón Bergmann jógakennari: Gefur út barnabók Glæsileg lakkstígvél frá Þráni skóara á Grettisgötu 3. Það er nauðsynlegt að lesa góða bók í skammdeginu. Borða biðja elska er met- sölubók vestanhafs og er nú komin út á íslensku. Bók sem engin kona má missa af. Dropinn er tíunda bók Guðjóns. Flott stofa Glæsileg hárgreiðslu- og förðunarstofa Karls í Hæða- smára, Kópavogi. algjört möst 2 „Við höfum gert þetta tvisvar áður í bílskúr,“ segir Dröfn Ösp Snorradóttir, betur þekkt sem DD Unit, um fatamarkað sem hún heldur ásamt Svölu Björgvinsdóttur á morgun. Mark- aðurinn fer fram í Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda á Laugavegi 21, þar sem stöll- urnar munu meðal annars selja pallíettukjóla, vintage háhælaða skó og pelsa. „Við erum bara að rýma skápana hjá okkur og verðum með mikið af rosalega flottu dóti, bæði föt, skó og skart,“ segir Dröfn, sem vonast til að sjá sem flesta á morgun milli klukkan 12 og 18. - ag Halda fatamarkað Flott til fara Karl, Dedda og Ísak voru flott í tauinu. Ánægður Karl Berndsen ásamt Björgu Þórhallsdóttur sópransöngkonu. Sætrauður gloss frá Makeup Store til að halda vörunum rökum og glansandi á köld- um vetrardögum. www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40 Verð frá kr. 176.000Hlaupabönd spörumog æfum heima Verð frá kr. 56.900Fjölþjálfar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.