Fréttablaðið - 25.11.2008, Síða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Hugmyndafræðin heillaði mig
þar sem hún er heilsteypt og
gengur ekki aðeins út á hugleiðslu
og líkamsæfingar heldur líka
siðfræði, þar sem rétt breytni er í
hávegum höfð. Svo nær hún yfir
hugmyndir um réttlátt samfélag,“
segir Bergsteinn Jónsson, verk-
efnastjóri hjá Unicef, sem hefur
stundað andlegan lífsstíl í Ananda
Marga-hreyfingunni síðustu fjórtán
ár.
Ananda Marga kemur frá Ind-
landi og gengur meðal annars út á
ástundun jóga og hugleiðslu. Berg-
steinn kynntist fræðunum nítján
ára og hefur síðan þá iðkað hug-
leiðslu kvölds og morgna og jóga
fimm til sex sinnum í viku ásamt
því að kenna það í Kaffi Hljóma-
lind þrisvar í viku.
„Þegar ég komst í snertingu við
þetta var ég, eins og fleiri ungling-
ar, haldinn ákveðnu rótleysi. Á
þessum aldri fara spurningar um
alheiminn að leita á mann og rétt-
lætiskenndin verður sterkari.
Maður getur verið rosalega þröng-
sýnn, upptekinn af því hverju má
klæðast svo dæmi sé nefnt, og að
sama skapi mjög opinn. Þráin eftir
óendanleikanum vaknar. Menn
hrærast í heiminum eftir einhverj-
um krafti, annaðhvort í áttina til
hans eða frá. Ég leitaði í hann þar
sem ég vildi tengjast honum og
hefði í raun ekki getað endað ann-
ars staðar en þar sem ég er í dag.“
Bergsteinn varði fyrst meiri
tíma í hugleiðslu, eða þar til hann
stofnaði fjölskyldu. „Þá fór ég auð-
vitað að sinna meira fjölskyldunni,
sem er líka í takt við þá speki að
hugleiðsla og þjónusta verði að
fara saman, því tileinki maður sér
bara annaðhvort er hætt við að
sjálfselska nái yfirhöndinni.“ Hann
bætir við að eiginkonan sé á sömu
bylgjulengd þótt hún stundi lífs-
stílinn ekki í eins miklum mæli.
„Ég neyti líka hugleiðslumiðaðrar
fæðu. Borða mikið grænmeti.
Laukur, hvítlaukur, sveppir og egg
eru hins vegar á bannlista þar sem
mælt er með að halda sig frá þeim
fæðutegundum eigi að stunda
djúpa hugleiðslu. Sú hugmynd er
algengari á Indlandi heldur en á
Vesturlöndum. Líkaminn bregst
nefnilega við á ákveðinn máta
þegar laukur er skorinn og hans
neytt. Laukurinn og sveppirnir hita
líkamann og hafa ertandi áhrif á
miðtaugakerfið. Þetta verður
reyndar til þess að oft er erfitt að
fara út að borða,“ segir hann og
hlær.
Spurður hvort ekki þurfi mikla
sjálfstjórn og aga til að geta til-
einkað sér þessa lífsspeki svarar
Bergsteinn: „Maður gerir bara eins
og fyrir mann er lagt, þar sem
þetta er hluti af heildarpakkanum.
Virki hann verður maður að gefa
sig honum fullkomlega á vald.
Annars er maður bara hálfur í
þessu og útkoman er þá eftir því.“
roald@frettabladid.is
Trúir á réttlátt samfélag
Bergsteinn Jónsson stundar þann andlega lífsstíl sem Ananda Marga-hreyfingin boðar og segir hug-
myndafræðina hafa fært sér orku, kærleik og hugrekki til að takast á við áskoranir daglegs lífs.
Bergsteinn Jónsson segist betur í stakk búinn til að takast á við lífið og tilveruna eftir að hann tileinkaði sér boðskap Ananda
Marga. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓLASÝNING Árbæjarsafns verður opin þrjá
sunnudaga í aðventu, hinn 7. desember, 14. desember
og 21. desember. Jólasýningin hefur notið mikilla vin-
sælda síðustu ár enda gaman að fylgjast með undir-
búningi jólanna eins og hann var í gamla daga.
Árskort í tækjasal
aðeins 3.333 kr. á mánuði*
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögn
landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Bonn
Köln
Aspen-Lux
Verð kr. 251.900,-
Verð Kr. 282.900,-
Verð Kr. 313.900,-
Verðdæmi :
Yfir 200 tegundir af sófasettum
kr.149.900,-
verð frá
Smíðum eftir þínum þörfum
VERÐHRUN
n á t t ú r u l e g a
Inga Kristjánsdóttir, næringarþerapisti D.E.T. leiðir ykkur í allan sannleikann
um hversu auðvelt það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Upplýsingar og skráning í síma: 899 5020 eða á eig@heima.is
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum!
• Hvernig verðum við okkur úti um þau
næringarefni sem líkaminn þarfnast!
• Hvernig við getum auðveldlega öðlast
meiri orku, vellíðan og heilbrigði!
Í lok fyrirlestrar fáið þið leiðbeiningar um val á
heilsufæði. Innifalið í námskeiði er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Námskeiðið verður þriðjud. 2. des.
kl. 20-22. í Heilsuhúsinu Lágmúla.
Verð aðeins kr. 3.500.-
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla, Selfossi & Akureyri
Langar þig að breyta
mataræðinu til batnaðar?
Veist þú ekki hvar þú átt að byrja?