Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 38
38 6. desember 2008 LAUGARDAGUR Þ ráinn Bertelsson býr í hjarta Reykjavíkur í fal- legu húsi. Hann ólst upp í miðborg Reykjavíkur og gerði uppvaxtarárum sínum skil í bókinni Ein- hvers konar ég sem kom út fyrir fimm árum. Nú er framhaldið komið, saga af uppkomnum manni, sem „þó veit ekk- ert í sinn haus“, eins og Þráinn segir sjálfur. En hvers vegna ákvað rithöf- undurinn Þráinn Bertelsson að skrifa ævisögu sína? „Það er ódýrara en að fara til sál- fræðings! Þetta er sjálfsþerapía að vissu leyti en ég vona líka að bókin hafi þerapísk áhrif á þá sem hana lesa, kannski er höfuðtilgangur bókarinnar að fá lesendur til að hugsa um sig, ekki endilega mig. Mig langaði til að búa til spegil handa öðru fólki. Ef listamenn hafa einhverja skyldu þá er hún sú að segja sannleikann og bregða upp spegli fyrir samtímann til að líta í. Og í spegl- inum er hægt að fræðast um veröldina sem fólk býr í. Skilaboðin til lesenda þurfa ekki að vera flókin eða ofsalega nákvæm. Og bestu skilaboðin held ég eru: Þú ert ekki einn, fleiri hafa lifað, fundið til og verið manneskjur. Þú ert ekki eina fyrirbærið á plánetunni.“ Bókin er önnur bókin um ævi þína, hvernig sérðu framhaldið fyrir þér? „Fyrsta bókin, Einhvers konar ég, fjallar um hvernig eitt stykki fullorð- inn karlmaður verður til og segir hans sögu frá fæðingu til tvítugs. Þá lýkur hann manndómsprófi þess tíma, stúd- entsprófi. Þetta eintak veit hins vegar ekkert til hvers er ætlast af því, hann veit ekkert um hlutverk sitt í tilverunni, en er að leita að því. Þetta er sennilega kallað að þroskast en það tekur voða- lega langan tíma fyrir þennan einstakl- ing og þess vegna hef ég kallað þetta seinþroskasögu. Nýju bókinni lýkur þegar stefnan hefur verið tekin á nám í kvikmyndaskóla í Stokkhólmi. Ég ætl- aði í raun að hafa þessa bók lengri en svo sá ég að þarna urðu straumhvörf og hætti á þessum bakka árinnar. Þarna hélt ég að ég væri kominn með stefnu í lífið. Síðan er það næstu bókar að greina frá því hvort þessi straumhvörf verða sú kjölfesta sem ég hélt og hvern- ig málin þróast.“ Og því verður lýst í næsta bindi? „Ég ætla að halda áfram ef mér end- ist aldur og nenna að fara yfir líf mitt. Ég er búinn að sjá fyrir mér verk sem ég ætla að búa til, en það breytist auð- vitað á leiðinni og ég sker mikið niður. Næsta augljósa tímabil er þegar mér verður ljóst að flóttinn undan þung- lyndinu sem hrjáir mig í áfengi dugar ekki til. Þannig að þegar ég tek stefn- una á að vera edrú og lifa edrúlífi eru næstu straumhvörf. Þarnæstu straum- hvörf eru svo þegar ég ákveð að ég sé ekki skyldugur til að gera bíómyndir.“ Þannig að þú sérð fyrir þér fimm bækur? „Ég á auðvitað nóg af efni og eins og ég lít á þetta núna þá verða þær fimm, svo getur vel verið að ég sjái að það sé betra að hafa þær færri þegar ég fer að vinna þær.“ Drakk mig frá þunglyndinu Glíman þín við þunglyndi er kannski meginþema þessarar bókar. Var þung- lyndi snemma þáttur í þínu lífi? „Ég gerði mér ekki grein fyrir því þegar ég var barn og unglingur að ég væri þunglyndur og þar að auki var það af mildu gerðinni framan af. Það lýsti sér kannski þannig að mér fannst ég vera utanveltu. Ég lýsi því til dæmis í bókinni þegar ég skríð ofan í öskutunnu og samsama mig geimtíkinni Laiku sem svífur um geiminn í endalausu ferða- lagi. En það er ekki fyrr en eftir tvítugt að þunglyndið verður raunverulegt. Á því tímabili sem þessi bók tekur til þá drakk ég mig frá þunglyndinu, ég flýði það með því að drekka. Og til þess að fólk fatti hvað ég er að flýja, þá reyni ég að lýsa alvöru þunglyndi í bókinni. Auðvitað kom svo í ljós að þetta lyf, áfengið, hætti að virka.“ Í bókinni er kafli sem þú skrifar í þunglyndi, hvern- ig var að setja hann á blað? „Ég neyddi mig sjálfan til að skrifa hann, var alveg að farast þegar ég gerði það. Það var eins og að ganga í gegn um hreinsunar- eld að skrifa hann.“ Sögumaðurinn, þú sjálfur, grípur oft fram í fyrir framvindu sögunnar og stekkur yfir í nútímann, af hverju? „Ég vil skrifa bækur sem ekki eru bara upptalning á því sem ég gerði. Ég gæti skrifað bók þar sem ég væri bara í gamla tímanum en það væri plat, því að ég er alltaf í nútímanum. Ég veit hvernig atburðirnir sem ég lýsi enda. Ég legg mikla áherslu á að útfærslan á mínu lífi verði aðgengileg og þessi söguaðferð er hluti af því. Ég skar líka mikið niður og skil aðalatriði frá auka- atriðum, sem mér finnst í flestum ævi- sögum vera sjálfhverft og óinteressant rugl.“ Var mikill munur að skrifa þessa bók eða þá fyrri? „Þessi bók var miklu erfiðari. Vegna þess að það er í raun og veru ekkert erfitt að skrifa um sjálfan sig sem barn og segja ég var svona og svona, ég var svona vitlaus. Nú er ég orðinn maður og ég er að skrifa um sjálfan mig sem fullorðinn mann. Og mjög margt sem ég skrifa þar gildir hér og nú og það er engin leið að halda því leyndu að svona er ég.“ Þú nafngreinir ekki alla sem koma við sögu í bókinni, eins og fyrrverandi eiginkonu þína. Hvers vegna? „Mér finnst nöfn persónanna sem um ræðir ekki skipta máli, mér fannst ekki skipta neinu máli hvað hún heitir, það er ekki víst að hana langi nokkurn skap- aðan hlut til að ég fari að rifja upp nafn- ið hennar sem er enn þá hið sama þótt konan sé orðin allt önnur manneskja.“ Nýríkir algjör skríll Þú hefur gagnrýnt auðhyggju undan- farinna ára, hvernig líður þér núna, þegar landið er á hausnum? „Tilfinningin er svolítið undarleg, Þegar allir standa með brækurnar á hælunum þá ætti manni kannski að líða glaðhlakkalega og segja þetta hef ég sagt ykkur árum saman, þið hefðuð betur hlustað. En það er ekkert gaman að að koma með hrakspá sem rætist. Ég reyni hins vegar að halda í vonina um að samfélagið batni í framhaldinu. Í kringum einkavæðingu bankanna tók íslenskt þjóðfélag þá stefnu að verða óbærilega leiðinlegt. Völdin tóku nýrík- ir og menningarsnauðir menn sem fannst flottast að geta leigt einhver frík eins og Elton John og Tom Jones að spila fyrir sig. Hvílíkt vúlgarítet, það var eins og samkeppnin stæði um að sýna hver væri mestur skríll. Lista- menn veltu sér eins og svín í drafi fyrir framan einn mesta glæpamann og sið- blindingja sem þetta land hefur alið, viðskiptajöfurinn mikla, einn af fáum mönnum í veröldinni sem hafa sett tvo banka á hausinn, flöðruðu upp um hann eins og aumingjar. Þetta var ekki skemmtilegur tími og mér finnst ekki heldur skemmtilegur tími núna, en ég vona að við lærum að breyta hugarfar- inu.“ Undanfarin ár hafa komið út spennu- sögur eftir þig, ætlarðu að halda áfram á þeim miðum? „Ég ætla aldrei að skrifa spennusögu aftur. Þessar þrjár sem ég skrifaði und- anfarin ár fjölluðu um það þrennt sem mér fannst stinga mest í augun um árþúsundamót. Í fyrsta lagi hina nýju peningastefnu og einkavæðingu bank- anna. Í öðru lagi tilburði ríkisins til að njósna um þegnana, greiningardeildir og alla þá geðveiku fasistavitleysu sem hér viðgengst. Þriðja bókin fjallar um stærsta vandamálið í samfélaginu í dag, eiturlyf. Svo byrjaði ég á fjórðu bókinni og þá sá ég að ég nennti þessu Ekki eina fyrirbærið á plánetunni Þráinn Bertelsson lýsir baráttu sinni við þunglyndi í öðru bindi ævisögu sinnar, Ég ef mig skyldi kalla. Undirtitill bókarinnar er seinþroskasaga enda segist Þráinn vera með eindæmum seinþroska. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við hann. ÞRÁINN BERTELSSON Við verðum að skipuleggja samfélagið út frá þörfum þess veikari en þó þannig að sá sterkari fái að njóta sín, segir Þráinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ... er fæddur 30. nóvember 1944 ... varð stúdent frá MR 1965 ... lærði heimspeki og sálfræði á Írlandi og í Frakklandi ... lærði kvikmyndaleikstjórn í Svíþjóð ... hefur gert margar kvikmyndir, m.a. Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf ... stefnir á að gera fjórðu „líf“-myndina, um þá Danna og Þór, í samvinnu við Gísla Örn Garðarsson þegar tími og peningar gefast til. ... hætti í kvikmyndagerð á sínum tíma því honum þótti óbærilega leiðinlegt að þurfa að hugsa um fjármögnun kvikmynda ... á tvo syni, Álf Þór og Hrafn ... hefur verið giftur Sólveigu Eggertsdótt- ur síðan 1971 ... fylgist með ensku knattspyrnunni af miklum áhuga ... heldur með Manchester United en hann er líka veikur fyrir Arsenal og jafnvel Liverpool .. á sér tvær uppáhaldsbækur, Moby Dick og Góða dátann Sveijk ... á uppáhaldskvikmynd; The Duellist, fyrstu mynd Ridleys Scott ... er matgæðingur; uppáhaldsmaturinn hans er humar, ostrur, gæsalifur og bláber, en þó ekki allt í einu .... hefur verið á heiðurslaunum Alþingis síðan 2001 ➜ VISSIR ÞÚ AÐ ÞRÁINN „Fyrri hluti starfsævi minnar, náms- og mótunarára fór mestan part í ómeðvitaða baráttu við ólæknandi sjúkdóm sem leiðir til geðveiki og dauða ef vörnum er ekki viðkomið: áfengisfíkn. Síðari hlutinn hefur líka farið í baráttu sem oft hefur verið bæði harðari og tvísýnni við andlegan lömunarsjúkdóm sem einnig getur verið banvænn: Þunglyndi. ... Þetta hefur ekki alltaf verið skemmtilegt stríð. Það hefur kostað sitt og komið í veg fyrir að ég hafi getað sinnt ýmsum verkefnum eins og þær sálir gera sem fá að lifa andlega frið- artíma. Þar á móti kemur að ófriðurinn í sálinni hefur hert mig og þjálfað og kennt mér að taka engum hlut án fyrirvara, kennt mér að efast, aukið mér hugrekki: Úr því að ég gat barist upp á líf og dauða við sjúkdóma sem enginn kann að lækna varð mér ljóst að ég óttast engan mann, þarf engum að þóknast og eina leiðin mér til bjargar er að segja satt og vera ég sjálfur. Ég ef mig skyldi kalla, bls. 185-86. Þunglyndið og alkóhólisminn Kringum einkavæð- ingu bank- anna tók íslenskt þjóðfélag þá stefnu að verða óbæri- lega leiðin- legt. Völdin tóku nýríkir og menning- arsnauðir menn. ekki lengur. Ég var búinn að ljúka máli mínu úr púlti glæpasagnanna, ég hef nefnilega engan áhuga á glæpasögum nema þær þjóni einhverjum tilgangi. Ég er hins vegar að skrifa skáldsögu, það tekur svo mikið á að skrifa ævisög- una að ég verð að hafa eitthvað annað í takinu.“ Samfélagið taki mið af þeim veikari Þú minntist á heim eiturlyfjanna, hann þekkirðu af eigin raun í gegnum eldri son þinn. „Ég þekki þann heim því miður miklu betur en ég kæri mig um. Sonur minn er sem betur fer laus úr honum lifandi, en það er mikill minnihluti sem kemst af úr honum. En talandi um vímuefni þá hættir okkur til að líta fram hjá áfengisvandanum, kannski vegna þess að svo margir hafa farið í meðferð. Við gleymum því bara að það er ekki nema lítið brot, kannski fimm prósent sem fá fullan bata. Vandamál tengd drykkju eru svo mikil, þau eru kannski stærsta vandamál í lífi tuttugu prósenta alls fólks. Tuttugu prósent er einn af hverj- um fimm, mér finnst það mikið til að hafa áhyggjur af. Það er svona eins og fimm færu í sjóferð en alltaf kæmu bara fjórir til baka.“ Viðurkennum við ekki vandann? „Nei, og gerum ekki nóg. Og þegar við erum að tala um að auðvelda aðgengi að áfengi þau verðum við að velta fyrir okkur hvort við viljum fjölga alkóhólistum, sem mun gerast verði aðgengi auðveldað.“ Á ríkið að passa upp á náungann? „Við verðum og eigum að skipuleggja samfélagið út frá þörfum þess veikari en þó þannig að sá sterki fái öll tæki- færi að nýta krafta sinna á jákvæðan hátt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.