Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 94
74 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
Hinir árlegu jólatónleikar
til stuðnings Styrktarfé-
lagi krabbameinssjúkra
barna, SKB, verða haldnir
í tíunda sinn 27. desember
í Háskólabíói. Alls hafa 25
milljónir króna safnast á
síðustu níu árum.
Óskar Örn Guðbrandsson, fram-
kvæmdastjóri SKB, er afar þakk-
látur fyrir stuðninginn. „Það er
ekki bara að þetta sé góður fjár-
stuðningur heldur er líka dýrmætt
að finna stuðninginn frá fólkinu,
bæði hvað tónlistarmenn og aðrir
eru tilbúnir að koma og leggja sig
fram og hvað almenningur er allt-
af áhugasamur um þessa tónleika.
Það skiptir okkur svo miklu máli
að finna þennan stuðning,“ segir
Óskar Örn. „Það segir sig sjálft
hvað þessi fjárstuðningur skiptir
okkur miklu máli. Hann er stór
þáttur í að gera okkur kleift að
styðja fjölskyldur eins og við
gerum.“
Einar Bárðarson átti hugmynd-
ina að tónleikunum en hann ásamt
samstarfsmönnum í tónlistar-
heiminum og rjómanum af
íslenskum poppurum áttu veg og
vanda að fyrstu tónleikunum sem
voru haldnir árið 1998. Á meðal
þeirra sem stigu þar á svið voru
Sálin hans Jóns míns og Skítamór-
all.
„Einar er í guðatölu í þessu
félagi, það er engin spurning.
Hann er búinn að vera okkur ein-
staklega góður og er alltaf tilbúinn
til að hjálpa okkur. Það eru ekki
bara þessir tónleikar heldur en
hann alltaf tilbúinn til að rétta
okkur hjálparhönd ef á þarf að
halda og hann á mikið hrós skilið.“
Á tónleikunum í ár, sem hefjast
klukkan 16, koma fram Lay Low,
Sálin, Sprengjuhöllin, Bubbi, Páll
Óskar, Skítamórall, Ragnheiður
Gröndal, Ingó Veðurguð, Stuð-
menn, Friðrik Ómar og Regína,
Klaufarnir og Helgi Björnsson.
Allir sem koma að tónleikunum
gefa vinnu sína. Miðaverð er 2.500
krónur og fer miðasala fram á
Midi.is. freyr@frettabladid.is
Dýrmætir styrktartónleikar
ÓSKAR ÖRN GUÐBRANDSSON Óskar Örn er afar þakklátur fyrir stuðninginn sem SKB
hefur fengið á undanförnum níu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Batman-myndin The Dark Knight verður
endursýnd í bandarískum kvikmyndahúsum í
janúar í von um að hún nái eins milljarðs
dollara markinu í aðsóknartekjum, en hún er
sem stendur stödd í 996 milljónum dollara.
Myndin verður tekin aftur til sýningar degi
eftir að Óskartilnefningarnar verða tilkynntar.
Christian Bale, sem leikur Batman, hefur trú á
að Jókerinn Heath Ledger og Christoher
Nolan leikstjóri eigi þar góða möguleika. „Í
mínum huga eru þeir Heath og Chris líklegast-
ir og myndin gæti líka verið valin besta
myndin,“ sagði Bale.
The Dark Knight var frumsýnd í júlí og er
tekjuhæsta mynd ársins í Norður-Ameríku á
þessu ári. Aðeins þrjár myndir hafa náð eins
milljarðs dollara markinu í heiminum, eða
Titanic, Pirates of the Caribbean: Dead Man´s
Chest og The Return of the King.
Endursýnd í janúar
THE DARK KNIGHT Heath
Ledger er talinn líklegur
til Óskarstilnefningar fyrir
frammistöðu sína í The
Dark Knight.