Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 80
60 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Lafði Nellie Melba var rómaðasta
söngkona síns tíma. Frægðarsól
hennar reis hæst fyrir daga hljóð-
ritunar en nú hefur verið greint frá
að fundist hafa upptökur með söng
hennar frá 1904. Það voru fyrstu
hljóðritanir sem hún gerði, þá 42
ára gömul.
Helen Porter Mitchell fæddist í
Melbourne 1861 og var á sínum
tíma frægust og best launuð lista-
manna sviðsins. Það var tónskáldið
Saint Saens sem fékk hana til að
gera hljóðritun sem fór fram í sal-
arkynnum heimilis hennar í Mar-
ble Arch-hverfinu í Lundúnum.
Melba heimtaði að hafa 45 manna
sveit og voru henni greiddar sem
nemur 32 milljónum íslenskra
króna samkvæmt bankagengi
dagsins fyrir útgáfuna auk tíu
króna af hverju seldu eintaki.
Hljóðritun var á þessum tíma
skráð á vaxplötur en eftir þeim
voru gerð mót sem steypt var eftir
í lakkplötur. Fjórtán lög voru gefin
út á 78 snúninga plötum en þær
tóku að slitna strax við fyrstu spil-
un. Framleiðslan fór fram í Ham-
borg hjá Gramaphone Companý.
Eftir fyrra stríð var því fyrirtæki
skipt upp í EMI og Deutche
Grammophone. Þegar tekið var að
gefa lögin út að nýju voru það afrit
af löngu slitnum plötum með lökum
gæðum. En hvar voru steypumót-
in? Félagar í Historic Masters, hóp
sem leitar uppi sögulegar hljóðrit-
anir, tóku að leita. Í gögnum Deut-
che Grammophone fannst bréf-
snifsi sem gat vísað á mótin: Og við
leit fundust þau, illa leikin en með
nútímatækni mátti laga hljóðritan-
irnar. Melba syngur eins og hún
gerði fyrir 104 árum í stofunni
heima hjá sér. Safnið kemur út um
helgina og inniheldur boxið sjö vín-
ylplötur og geisladisk með lögun-
um fjórtán og þremur aukalögum.
Þeirra á meðal er hreinsuð útgáfa
af hinum kunna negrasálmi Swing
Low, Sweet Chariot. Áhugasamir
geta heyrt hann á eftirfarandi slóð:
http://www.smh.com.au/interacti-
ve/2008/entertainment/dame-
nellie-melba-recordings/index.
html
Fyrstu upptökur
TÓNLIST Nellie Melba var frægasti
listamaður heims um aldamótin 1900,
stærri en Madonna, kæn viðskiptakona
og heillandi persónuleiki.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ Evrópsku kvikmynda-
verðlaunin verða veitt við
hátíðlega athöfn í Kaup-
mannahöfn í kvöld. Hefst
útsending frá athöfninni á
um 45 sjónvarpsstöðvum
kl. 18. Ekki er sent út frá
athöfninni á hérlendri stöð.
Smáfuglar eftir Rúnar
Rúnarsson er tilnefnd í
flokki stuttmynda og verður
Rúnar viðstaddur verð-
launaafhendinguna.
Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn
sem verðlaunin eru veitt en til
þeirra var stofnað með tilkomu
Evrópsku kvikmyndaakademí-
unnar en í henni sitja fjölmargir
íslenskir kvikmyndagerðarmenn.
Var það yfirlýst stefna allra helstu
leikstjóra Evrópu á sínum tíma að
skapa akademíunni orðspor sem
stæði Óskarsverðlaununum á
sporði en Bandaríkjamenn hafa
beitt þeim skipulega til að tryggja
yfirráð sín á hinum alþjóðlega
kvikmyndamarkaði þar sem þeir
eiga í stöðugum átökum við
svæðisbundnari kvikmyndaverk.
Smáfuglar Rúnars hafa átt góðu
gengi að fagna. Hún kemur einnig
til álita í forvali til Óskarsverð-
launa, hlaut á dögunum enn ein
verðlaunin, á kvikmyndahátíðinni
í Siena á Spáni og eru það tuttug-
ustu og fjórðu verðlaunin sem
myndin hlýtur á þeim sjö mánuð-
um sem liðnir eru frá frumsýn-
ingu hennar.
Fyrri mynd hans, Síðasti bær-
inn í dalnum, hefur ekki fengið
minni aðdáun, rakað að sér verð-
laununum, var tilnefnd til Óskars-
verðlauna á sínum tíma og fékk á
dögunum önnur verðlaun á Reho-
both Beach Independent Film
Festival í Bandaríkjunum. Rúnar
er nú að ljúka námi við Danska
kvikmyndaskólann og er frami
hans einstakur.
Athöfnin í kvöld verður fjölsótt.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún er
haldin í norrænni höfuðborg og
nota Danir tækifærið á ýmsan
máta. Fjórtán hundruð gestir
koma í Forum. Sjónvarpsmaður-
inn Mikael Bertelsen mun kynna
dagskrána, en meðal gesta á palli
eru Marianne Faithfull, Julia
Jentsch hin þýska, danska leik-
konan og leikstjórinn Paprika
Steen og hinn kunni Mads Mikka-
elsen, Andrzej Chyra frá Póllandi,
Kim Rossi Stuart frá Ítalíu og
Spánverjinn Santiago Segura, auk
valins hóps ungra leikara sem
koma úr námskeiðinu/kynningar-
stefnunni Shooting stars, en þar
hafa margir íslenskir leikarar
verið með.
Stórhljómsveit danska útvarps-
ins leikur á athöfninni og meðal
gesta verða Friðrik krónprins og
Mary, kona hans. Heiðursverðlaun
verða veitt lafði Judi Dench og
hópnum sem stofnaði Dogma-
hreyfinguna, þeim Søren Kragh-
Jacobsen, Kristian Levring, Lars
von Trier og Thomas Vinterberg,
sem er til marks um skipulagða
nýtingu Dana á athöfninni sínum
mönnum til framdráttar. Hún er
annars unnin af evrópsku liði:
handritið er eftir Dana og Breta,
Sviðið er hannað af Dana, EFA
Productions framleiðir í samstarfi
við ZDF, ARTE, og DR, Danish
Radio. Stjórn útsendingar er í
höndum Dana og Þjóðverja, en
Wim Wenders er forseti Akademí-
unnar. Undanfarna mánuði hafa
fjölmargir íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn í Akademíunni setið
sveittir við að horfa á þau ókjör
efnis sem tilnefningarnefndir
hafa valið og atkvæðamagn aka-
demíunnar ræður á endanum
hverjir vinna. Máski verður Rúnar
sigursæll í kvöld.
pbb@frettabladid.is
Evrópsku kvikmyndaverð-
launin verða veitt í kvöld
KVIKMYNDIR Smáfuglar Rúnars Rúnarssonar koma til álita í kvöld við verðlaunaafhendingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í
21. sinn.
kl. 13.
Í dag eru vinnustofur listamanna og
hönnuða á Korpúlfsstöðum opnar
gestum og gangandi kl. 13-17. Þá
verður einnig samsýning listamanna
í stóra sal er nefnist „Á hlöðuloftinu“.
Kaffisala er á staðnum og allir
velkomnir.
„Tenórarnir þrír“ hafa skipað sér
sess í hjörtum landsmanna á und-
anförnum árum með söng á Þor-
láksmessu í miðbæ Reykjavíkur,
en þeir héldu einnig hátíðartón-
leika tvö ár í röð í Langholtskirkju
við góðar viðtökur. Tvö ár eru liðin
síðan íslensku „Tenórarnir þrír“
héldu hátíðartónleika síðast, en þá
var þeim sjónvarpað um allt land.
Nokkrir af fremstu tenórsöngvur-
um þjóðarinnar hafa komið fram
undir merkjum „Tenóranna
þriggja“, þar á meðal Jóhann Frið-
geir Valdimarsson, Gunnar Guð-
björnsson, Snorri Wium og Kol-
beinn Ketilsson, auk fleiri
tenórsöngvara á borð við Þorgeir
Andrésson og Jón Rúnar Arason,
sem einnig hafa sungið með.
Nú eru í uppsiglingu hátíðartón-
leikar með nokkrum af ástsælustu
tenórum þjóðarinnar í samvinnu
við Íslensku óperuna og verða þeir
18. og 21. desember í Gamla bíói,
Íslensku óperunni og hefjast bæði
kvöldin kl. 20. Er miðasala þegar
hafin. Við undirbúning tónleikanna
í Íslensku óperunni að þessu sinni
var hins vegar ákveðið að tenór-
arnir yrðu fjórir en ekki þrír; þeir
Snorri Wium, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Garðar Thór Cortes
og Gissur Páll Gissurarson.
Það þarf varla að kynna Garðar
Thór Cortes sem kemur og syngur
í fyrsta skipti með „Tenórunum“
en Garðar er búinn að syngja mikið
bæði hér heima og erlendis undan-
farin ár. Jóhann Friðgeir er öllum
landsmönnum kunnur fyrir söng
sinn en hann hefur sungið einna
lengst með „Tenórunum þremur“
og starfar aðallega við óperusöng
erlendis. Undanfarin ár hefur
Snorri Wium verið búsettur í
Austuríki og Þýskalandi og hefur
hann starfað við fjölda óperuhúsa
ýmist sem gestasöngvari eða fast-
ráðinn söngvari. Einnig syngur í
fyrsta skipti með „Tenórunum“
Gissur Páll Gissurarson sem hefur
stundað nám á Ítalíu undanfarin ár
og hefur hann undanfarið vakið
töluverða athygli hér á landi.
Með tenórunum fjórum leika
píanóleikararnir Antonía Hevesi
og Jónas Þórir ásamt Hjörleifi
Valssyni fiðluleikara. Kynnir verð-
ur Þór Jónsson.
Á tónleikunum verða fluttar
nokkrar af vinsælustu tenóraríum
óperubókmenntanna, söngleikja-
tónlist og að sjálfsögðu hátíðleg
jólalög.
- pbb
Fjögurra tenóra kvöld
TÓNLIST Fjórir tenórar: Gissur Páll,
Jóhann, Snorri og Garðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA