Fréttablaðið - 06.12.2008, Side 68

Fréttablaðið - 06.12.2008, Side 68
48 6. desember 2008 LAUGARDAGUR U ppáhaldsmaturinn minn er það sem ég er að borða í hvert skipti,“ segir Rúnar Marvinsson. „En fiskur og grænmeti er auðvitað í mjög miklu uppá- haldi. En svo þegar það er komið lambakjöt á diskinn þá er það auð- vitað dásamlegt.“ Rúnar er nýbú- inn að gefa út matreiðslubókina Náttúran sér um sína. Áslaug Snorradóttir ljósmyndari tók myndirnar og er ritstjóri bókar- innar. Og bókin er fagur gripur til að glugga í og skoða, stútfull af girnilegum uppskriftum, sögum Rúnars og góðum ráðum. „Það gæti enginn gert svona bók nema Rúnar,“ segir Áslaug. „Hann hefur reynt allt í matreiðslu, verið sjókokkur og svo er hann líka framtíðarkokkkur, hugsar svo mikið um heilsuna og er að gera tilraunir með þörunga sem lítið hefur verið gert af hér á landi.“ Fullir kassar af blöðum Rúnar gat sér fyrst gott orð sem matreiðslumaður þegar hann sá um eldhúsið á Hótel Búðum, en þar var hann í mörg sumur. „Ég fór að elda frá hjartanu þegar ég var á Búðum. Þar nýttum við allt hráefni, grænmetisréttir úr afgöngum urðu til og svo notaði ég afskorninga í grænmetissoð,“ segir Rúnar sem lætur uppskriftir sem eiga rætur sínar til þessa tíma fljóta með í bókinni nýju, sem er sú fyrsta sem hann gerir síðan bókin eftir Kenjum kokksins kom út 1990. „Ég hef alltaf skrifað hjá mér þegar ég er að elda og þegar ég fatta upp á einhverju eins og krakkarnir segja. Ég á orðið heilu kassana fulla af blöðum með upp- skriftum og þegar Elvar sonur minn sá þetta safn þá hvatti hann mig til að gefa út bók.“ Rúnar tók hann á orðinu og með Áslaugu sér við hlið var haldið út um allt land í fyrrasumar. „Hún rak á eftir mér, sagði, af stað með þig, kall, ef ég var orðinn latur. Konur hafa alltaf ráðið yfir mér, og ég er kannski kominn á þennan góða stað sem ég er á vegna þess að ég hef gegnt þeim.“ Efni safnað, eldað og myndað „Við þvældumst víða; Flatey, Vatnsdalurinn, Snæfellsnes og Færeyjar voru á meðal áfanga- staða.“ Og það var víða slegið upp veislu eins og myndir bókarinnar bera með sér. En hráefnið í veislurnar var fengið eins og hægt var úr umhverfinu, í Færeyjum stakk kafari sér á bólakaf og Rúnar eld- aði það sem upp kom með honum. Fiskur er fyrirferðarmikill í bók- inni, lambakjöt og svo má ekki gleyma þaranum. „Ég og Ólöf Haf- steinsdóttir og Karl Gunnarsson, þörungafræðingar á Hafró, höfum verið í tilraunastarfsemi með þör- unga, þau útvegað hráefnið og ég eldað, bragðmunur á tegundum er mjög mikill get ég sagt þér.“ Þörunga má tína víða um land og eru þeir bestir vor og snemm- sumars. Rúnar og félagar höfðu á sínum tíma áhuga á að gefa út kver með uppskriftum og góðum stöðum til að tína en enginn fékkst styrkurinn og verkefnið dagaði uppi en Rúnar er sannfærður um að einhvern tíma muni Íslending- ar hafa vit á því að nýta sér þör- ungana í stað þess að borða þör- unga innflutta um langa leið. Slökkvum á sjónvarpinu Þetta á við fleira hráefni. „Spáðu í það, það eru allir að uppræta kerfil í görðunum hjá sér, sem er mjög gott krydd, og svo kaupum við rándýran innfluttan kerfil.“ Gott hráefni er Rúnari hugleik- ið, íslenskt hráefni, það sem finna má í kringum okkur. Og svo skilur hann ekki af hverju fólk kaupir svona mikið tilbúið og verkað kjöt, til dæmis kjúklingabringur. „Þetta er kannski kunnáttuleysi, og tíma- leysi, við höfum svo lítinn tíma að við látum aðra gera hlutina fyrir okkur. En eins og með kjúkling þá eru þetta kannski tvö, þrjú hand- tök að úrbeina hann og heill kostar kannski minna en tvær bringur.“ Tímaleysi er heldur ekki góð afsökun fyrir því að borða verri mat samkvæmt Rúnari sem legg- ur til að fólk slökkvi stundum á sjónvarpinu og geri eitthvað upp- byggilegra. „Fjölskyldan á að safnast saman einu sinni í mánuði, slökkva á sjónvarpinu og úrbeina lambas- krokk. Þetta gæti orðið hinn skemmtilegasti fjölskyldufundur sem allir myndu hlakka til, og miklu betri nýting á tímanum en að horfa á amerískt froðuefni. Eina sem þarf að eiga eru góðir hnífar og frystikista. Svo er hægt að kaupa nokkra þorska, gera að og frysta. Og muna að henda ekki beinunum heldur búa til soð, beinagarðurinn er miklu betur kominn í pottinum heldur en í ruslatunnunni.“ Góður matur eldaður frá hjartanu Hvernig væri að stórfjölskyldan kæmi saman einu sinni í mánuði og úrbeinaði lambaskrokk? stingur Rúnar Marvinsson kokkur upp á. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti hann og Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara yfir heitri gulrótarsúpu á ísköldum degi. ÁSLAUG SNORRADÓTTIR OG RÚNAR MARVINSSON Konur hafa alltaf ráðið yfir mér, segir Rúnar, og þakkar Áslaugu fyrir að hafa rekið sig áfram við gerð bókarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA • Enginn eldar góðan mat úr vondu hráefni. • Þörunga er best að tína á stór- straumsfjöru… seint á vorin eða í byrjun sumars. • söl þykir best að tína í ágúst þegar þau eru sætust. • grænmetissoð ætti maður alltaf að eiga í ísskápnum í sömu hillu og fisksoðið. • Mér finnst að uppskriftir eigi að kveikja hjá manni hugmyndir. • Á vorin er upplagt að tína birkilauf og þurrka til að nota sem krydd. Myndir og ráð úr bókinni Náttúran sér um sína. Ljósmyndari: Áslaug Snorradóttir. NOKKUR HOLLRÁÐ RÚNARS 2 laukar 3 hvítlauksrif vænn biti af engifer kíló af gulrótum salt pipar ef vill Grænmetið skorið og smjörsteikt. Um það bil tveimur lítrum af vatni bætt út í, soðið, smakkað til með salti, jafnvel pipar. Maukað með töfrasprota og svo hitað aftur. Súpan er borin fram með vænni slettu af sýrðum rjóma og smátt skornu chili. Borðað til ánægju og innri hita í skammdeginu. GULRÓTARSÚPA AÐ HÆTTI RÚNARSÉg fór að elda frá hjartanu þegar ég var á Búðum. Þar nýttum við allt hráefni, grænmetisréttir úr afgöngum urðu til og svo notaði ég afskorninga í grænmetissoð.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.