Fréttablaðið - 07.12.2008, Side 4
4 7. desember 2008 SUNNUDAGUR
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
TAÍLAND, AP Hin árlega afmælis-
ræða konungsins í Taílandi féll
niður á föstudag vegna veikinda
hans. Margir Taílendingar höfðu
vonast til þess að með ræðunni
næði hann að draga úr harðvítug-
um pólitískum átökum í landinu.
Vajralongkorn krónprins kom
fram í staðinn fyrir föður sinn,
Bhumibol Adulyadej konung, og
sagði konunginn ekki færan um
að flytja ræðu sína vegna
veikinda. Hann tók fram að
veikindin væru ekki alvarleg.
Bhumibol konungur er orðinn
81 árs og hefur ríkt í 62 ár, lengur
en nokkur annar þjóðhöfðingi
heims. Hann nýtur mikillar
virðingar í Taílandi, en hefur ekki
skipt sér mikið af deilum
ríkisstjórnar og stjórnarandstæð-
inga. - gb
Konungur Taílands veikur:
Árleg hátíðar-
ræða féll niður
BHUMIBOL ADULYADEJ Hefur ríkt lengur
en nokkur annar þjóðhöfðingi heims.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Það var mjög óheppi-
legt hvernig þjóðnýtingu Glitnis
bar að, segir Björgvin G. Sigurðs-
son viðskiptaráðherra. Hann var
ekki hafður með í ráðum í aðdrag-
anda hennar og segir það óeðli-
legt. Þetta kom fram í viðtali hans
við Björn Inga Hrafnsson í Mark-
aðnum á Stöð 2 í gær.
„Það var mjög óheppilegt
hvernig þetta bar að og lítur út
fyrir almenningi,“ sagði Björgvin
um ákvörðunina um þjóðnýtingu
Glitnis í lok september. Hann
sagðist þó ekki geta sagt til um
það hvort sú ákvörðun hafi hrint
af stað því sem á eftir fór. „Þetta
verður einn stærsti þátturinn í
rannsókninni á bankahruninu en
ég sem viðskiptaráðherra get
ekki fellt dóm í þessu fyrir fram,
það væri ekki sanngjarnt,“ sagði
hann.
Björgvin sagðist sannfærður
um að málið hefði verið unnið
öðruvísi hefðu stjórnvöld verið
með í ráðum. „Okkar aðkoma var
lítil sem engin og það er líka óeðli-
legt að Seðlabankinn skuli ekki
hafa kallað þá ráðherra sem að
þessu komu fyrr til fundar, en
ekki þegar nánast var gengið að
þessu sem gerðum hlut.“
Hann segir að vegna pólitískr-
ar spennu á milli hans sjálfs og
Davíðs Oddssonar Seðlabanka-
stjóra hafi Davíð kosið að halda
Björgvini óupplýstum um gang
mála.
- sh
Viðskiptaráðherra segir óheppilegt hvernig þjóðnýtingu Glitnis bar að:
Björgvin G. gagnrýnir Seðlabankann
ÚTUNDAN Björgvin segir Davíð hafa
kosið að halda sér úti í kuldanum vegna
þess að þeir væru ósammála um ágæti
Evrópusambandsins. FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
SKIPULAGSMÁL „Fólk veltir því fyrir
sér hvort ekki sé lag núna, að breyta
þessu skipulagi og minnka umfang-
ið. Ég á von á að þetta verði rætt á
okkar vettvangi,“ segir Kristín Þor-
leifsdóttir, formaður stjórnar Íbúa-
samtaka Laugardals, um þær bygg-
ingar sem fyrirhugað er að rísi á
svokölluðu Höfðatorgi.
Höfðatorg liggur milli Borgar-
túns, Skúlatúns, Skúlagötu og
Höfðatúns. Þar eiga að rísa þrír
turnar, 12, 16 og 19 hæða, nokkur
sjö til níu hæða hús og tengibygg-
ingar úr gleri. Búið er að taka í
notkun Borgartún 10-12. Stærsti
turninn er risinn að mestu leyti.
Áætlað er að taka hann í notkun
síðla sumars 2009.
„Það hefur ekkert komið til tals
hjá okkur að gera breytingar á því
skipulagi sem hefur þegar verið
samþykkt,“ segir Gísli Jónsson,
markaðsstjóri Höfðatorgs. „En
vissulega horfa menn skemmri
tíma fram fyrir sig nú en áður. Það
verður þannig þangað til leysist úr
málum og bankarnir fara að starfa
eðlilega.“
Framkvæmdirnar muni því frest-
ast. Upphaflega var áætlað að upp-
byggingu svæðisins yrði lokið árið
2010. Síðar var því breytt í árið
2011. Nú segir Gísli líklegra að
vorið 2012 verði raunin. Áætlað var
að síðasti áfangi verkefnisins yrði
uppbygging íbúðarblokka. Ekki er
víst að í þeim verði íbúðir. „Hvað
þarna verður, íbúðir, hótel eða eitt-
hvað annað, ræðst af markaðs-
aðstæðum á þeim tímapunkti.“
„Við gerð deiliskipulags var
aldrei tekið tillit til íbúa,“ segir
Ragnheiður Liljudóttir, einn íbúa
Túnanna. „Að setja byggð, sem
gnæfir svona yfir, inn í gamalt
hverfisskipulag er í rauninni
ofbeldi. Við vorum króuð þarna
inni.“ Hún segir Túnbúum hafa
verið lofað ýmsu í staðinn. „Það átti
að gera vel við hverfið, hjálpa til við
að gera umhverfið huggulegra og
laga bílastæðamálin, sem hafa verið
í algjöru uppnámi frá upphafi fram-
kvæmda.“ Ekki hafi verið staðið
við neitt af þessu.
Ragnheiður segir íbúa Túnanna
þreytta á að mótmæla, því hafi lítið
heyrst frá þeim að undanförnu. Nú
hafi borgaryfirvöld og fram-
kvæmdaaðilarnir það hins vegar í
hendi sér að breyta betur gagnvart
þeim. Þar séu allir tilbúnir í sam-
vinnu. „Þau vita innst inni sjálf að
þetta er fáránlegt byggingarmagn.
Þau ættu að horfa á heiminn eins og
hann er í dag og endurskoða áætl-
anir sínar. Það er allt hægt.“
holmfridur@frettabladid.is
Vilja endurskoðun á
skipulagi Höfðatorgs
Áætlanir um umfang framkvæmda við Höfðatorg standa, þótt þær frestist í
það minnst um ár. Íbúi Túnanna hvetur borgaryfirvöld til að horfast í augu við
að byggingamagnið sé „fáránlegt“ í ljósi breyttra tíma.
RAGNHEIÐUR LILJUDÓTTIR Hvetur borgaryfirvöld til að endurskoða áætlanir um
byggingamagn í Höfðatúni. FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
FRAMTÍÐARSÝN Á Höfðatorgi eiga að
rísa þrír turnar, nokkur sjö til tíu hæða
hús og fjöldi tengibygginga. Íbúar Tún-
anna, næstu nágrannar Höfðatorgs, hafa
mótmælt uppbyggingunni frá upphafi.
MYND/PK ARKITEKTAR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
6°
7°
-1°
4°
6°
7°
8°
7°
1°
5°
19°
17°
1°
9°
20°
3°
18°
15°
Á MORGUN
Hvöss vestlæg átt NA-
lands, annars hægari.
ÞRIÐJUDAGUR
Hæg breytileg átt,
hvessir V-til síðdegis.
1
0
0
-1
-3
-1
-3
2
-1
2
-4
7
8
4
4
3
5
5
10
8
10
6
-2 -5
-4
-3
1 2
1
-1
-1
2
ÚRKOMULÍTIÐ
Á MORGUN
Það verður heldur
kalt í veðri næstu
daga en yfi rleitt
fremur hægur
vindur og úrkomu-
lítið. Á miðvikudag
verða breytingar
þar sem lægð kem-
ur upp að landinu
með ágætis hlýindi
en þó nokkurri
úrkomu.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
SLYS Ungabarn og fullorðin kona
liggja alvarlega slösuð á gjör-
gæsludeild Landspítalans eftir
árekstur tveggja bíla á Vestur-
landvegi, skammt norðan við
Borgarnes, í fyrrakvöld. Bæði
ungabarnið og konan hafa gengist
undir aðgerðir.
Samkvæmt lækni á gjörgæslu-
deild er líðan hinna slösuðu eftir
atvikum. Fullorðinn karlmaður
var einnig fluttur á gjörgæslu en
sá hefur nú verið útskrifaður.
Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi eru tildrög slyssins
enn í rannsókn, en mikil hálka var
á veginum þegar slysið átti sér
stað. - kg
Slösuðust á Vesturlandsvegi:
Kona og barn á
gjörgæsludeild
LÖGREGLUMÁL Fimm fíkniefnamál
hafa komið upp hjá lögreglunni á
Akureyri á undanförnum dögum.
Á síðustu þremur mánuðum hefur
lögreglan handtekið sextán
manns, sem hún telur hafa
stundað fíkniefnasölu á Akureyri,
og tekið af þeim fíkniefni
Þrjá af þeim hefur lögregla
handtekið oftar en einu sinni með
fíkniefni. - jss
Lögreglan á Akureyri:
Sextán dópsal-
ar handteknir
RÚSSLAND, AP Alexí II., patríarki
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunn-
ar er fallinn frá.
Hann tók við sem leiðtogi
rétttrúnaðarkirkjunnar í
Rússlandi árið 1990, rétt í þann
mund sem Sovétríkin voru að
gefa trúarbrögðum aukið frelsi.
Hann var síðan í fararbroddi
mikillar endurreisnar í trúarlífi
Rússa eftir fall Sovétríkjanna,
en var á hinn bóginn sakaður um
að beita kirkjunni í þágu
þjóðernishyggju.
Alexí var 79 ára þegar hann
lést. Hann hafði lengi átt við
hjartveiki að stríða.
- gb
Alexí patríarki:
Kirkjuleiðtogi
Rússa látinn
SORG Í RÚSSLANDI Kveikt var á kertum í
Kristskirkjunni í Moskvu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Jepplingur út af veginum
Jepplingur fór út af veginum á
Vesturlandsvegi við Bröttubrekku um
hádegisbilið í gær. Fjórir voru í bílnum
og voru þeir allir fluttir á slysadeild í
Borgarnesi, utan einn sem fluttur var
á slysadeild á Akranesi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGIÐ 05.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,6956
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,19 126,79
185,09 185,99
161,09 161,99
21,621 21,747
17,615 17,719
15,22 15,31
1,3675 1,3755
187,60 188,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR