Fréttablaðið - 07.12.2008, Qupperneq 37
matur 13
krásir
Jóni Þór finnst best að léttsteikja bringurnar
til að fyrirbyggja að kjötið verði of þurrt.
hitastiginu. Svo er hún fryst fram
að jólum og hamflett nánast
deginum áður en hún er elduð.
Jólarjúpan er oftast soðin í potti í
einn til tvo tíma og soðið svo notað
í sósuna, sem verður mjög
kraftmikil. Þetta er oft á kostnað
kjötsins sem verður þurrt, enda
tæki maður ekki kjúklingabringur
og syði í tvo tíma. Ég losa því
bringurnar af og nota restina af
fuglinum og grænmeti í soðið sem
verður bragðmeira. Svo léttsteiki
ég bringurnar. Þetta er tiltölulega
einfalt.“
Með þessari veislumáltíð finnst
Jóni Þór tilvalið að bera fram
gulrætur, sem hafa verið steiktar
upp úr smjöri og sykri og svo
bakaðar af fullum krafti inni í
ofni. „Waldorfsalat er líka gott.
Aðalatriðið er að hafa meðlætið í
sætari kantinum.“ - rve
Jafnan fylgir það aðventunni að maula hnetur við kertaljós á kvöldin. Hnetur eru hollt snakk og
þær eru fullar af næringarefnum. Hnetur og möndlur eru prótínríkar og þær innihalda meðal
annars E-vítamín, fólínsýru og trefjar. Það er því fyrirhafnarinnar virði að brjóta þær úr skelinni
en þó ber að hafa í huga að hnetur eru hitaeiningaríkar. Þær eru líka tilvaldar í hvers kyns salöt,
bæði í fersk hrásalöt og í rjómalöguð ávaxtasalöt. Gott er að rista þær á pönnu
en til að fá ekta jólailm um húsið má velta möndlum upp úr hunangi og rista þær
í ofninum. Hunangsristaðar möndlur eru mun hollara snakk en konfekt og líka
sniðugar sem fylling í heimagerða jólakonfektið.
HNETUR OG MÖNDLUR MAULAÐAR Á AÐVENTUNNI
1 dl rjómi
25 g smjör
1 msk. rifsberjahlaup
Púrtvín
Salt og pipar
Saltið og piprið bringur.
Bræðið smjör á pönnu og
brúnið þær í um 20 sekúndur
á hvorri hlið. Hellið slurk af
púrtvíni út á og veltið bringum
upp úr. Setjið í eldfast mót í
ofn við 175°C í 8 til 12 mínútur
(háð stærð). Potið í bringur til
að prófa sig áfram með
eldunartíma. Setjið pönnu
aftur á hellu og bætið soði,
rjóma og sultu út á. Hrærið og
sjóðið þar til sósa þykknar.
Saltið og piprið að vild.
Takið bringur úr ofni og
skerið hverja í tvennt.
Berið fram ásamt sósu,
sultu, gulrótum og
salati.
Upplifðu öðruvísi jólahlaðborð í öððruvísi umhverfi.
Sjávarréttahlaðborð í bland við hina hefðbundnu jólahlaðborðsrétti.
Tökum á móti smærri sem stærri hópum,
allt að 150 manns.
Öðruvísi
Jólahlaðborð