Fréttablaðið - 11.12.2008, Page 31
FIMMTUDAGUR 11. desember 2008
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Delicatessen
Það er eins og maður sé í útlöndum þegar tölt
er niður Skólavörðustíginn og kíkt inn í hverja
áhugaverða búðina á fætur annarri. Málverk,
skartgripir, barnaföt, íslensk fatahönnun,
veski og ullarfatnaður eru meðal þeirra fjöl-
mörgu hluta sem fá má á Skólavörðustígnum.
- sg
Herligt og smúkt
Skólavörustígurinn iðar af listalífi. Þar eru hönnuðir, gullsmiðir og listamenn á hverju horni og ekki
vandamál að finna jólagjafir fyrir þá sem njóta fallegra muna.
Listin lifir góðu lífi í götunni. Hér eru tvö verk úr Listasmíðagalleríi
Smíða og skarts. Annað er eftir Alain J. Garrabe sem málar sér-
stakar myndir af skipum og fjöllum og hin eftir Soffíu Sigurjóns-
dóttur sem málar hér fallega húsamynd.
Húfur sem hlæja lífga upp á tilveruna.
Hér er ein úr versluninni en 50 prósenta
afsláttur er af allri vöru í búðinni um
þessar mundir.
Skartgripi má víða fá á Skólavörðustíg.
Ein þeirra sem hanna fallega muni
er Anna María Sveinbjörnsdóttir sem
hannar undir merkjum Anna María
Design. Hér eru tveir gripir eftir hana, 14
karata gullhringur með amethyst-steini
á kr. 42.000 og 14 karata hvítagullsmen
með turmalin-steini á 48.700 krónur.
Veski
gleðja
margar konur
og örugglega
ekki leiðinlegt að
fá svona fallegt
grænt veski í
jólagjöf eins og
fæst í Tösku- og
hanskabúð-
inni á 10.500
krónur.
Barnaföt má fá á
nokkrum stöðum.
Þessi fallegi kjóll
er úr versluninni
Lítil í upphafi og
kostar 7.900
krónur.
Sumar bækur eru bara lesnar
um jólin. Ein þeirra er Jólin
koma eftir Jóhannes úr Kötlum.
Bækur eru ómissandi fyrir Íslend-
inga um jólin. Margar þeirra eru
gefnar út fyrir hver jól en aðrar
koma upp úr jólaskrautskassanum
á aðventunni. Ein slík bók er lík-
lega aðaljólabók Íslendinga, Jólin
koma eftir Jóhannes úr Kötlum.
Bókin kom fyrst út í Reykjavík
árið 1932. Í þessu litla kveri með
kvæðum úr íslenskri þjóðtrú var í
fyrsta sinn sögð sagan af jóla-
sveinunum þrettán, Grýlu, sem
svalt í hel af því að öll börnin voru
svo þæg, og jólakettinum og sorg-
legum örlögum hans þegar öll
börnin fengu nýja flík fyrir jólin.
Teikningarnar eftir Tryggva
Magnússon listmálara standa allt-
af fyrir sínu. Ekki má gleyma því
að ljóðið Bráðum koma blessuð
jólin, sem er ómetanleg heimild
um jólahald í upphafi síðustu aldar
og meira sungið en öll önnur jóla-
lög, er líka úr þessari bók sem
sjálfsagt er að lesa fyrir börnin á
jólaföstunni.
Klassísk
jólabók
Mörgum þykir Jólin koma eftir Jóhannes
úr Kötlum vera ómissandi bók.
Á slóðinni www.th.is er hægt
á aðgengilegan hátt að
skoða úrvalið og gera
góð kaup!
Fjölbreytt úrval af leðurhönskum af öllum stærðum og gerðum!