Fréttablaðið - 24.12.2008, Qupperneq 2
2 24. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
TRÚMÁL Stöð 2 og vísir.is sjón-
varpa beint frá aftansöng í
Grafarvogskirkju klukkan 18 í
dag. Athöfninni verður einnig
útvarpað á Bylgjunni.
Séra Vigfús Þór Árnason
sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Egill Ólafsson syngur ásamt
Kirkjukór Grafarvogskirkju og
Hákon Leifsson leikur á orgel. Þá
munu Gunnar Þórðarson leika á
gítar og Guðni Fransson leika á
klarínett við athöfnina.
Aftansöngur í Grafarvogskirkju:
Séra Vigfús
þjónar í beinni
GRAFARVOGSKIRKJA Sýnt verður beint
frá aftansöng í kirkjunni í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fréttablaðið kemur næst út
laugardaginn 27. desember.
Fréttavakt verður hins vegar á
vefsíðunni visir.is allar
hátíðirnar.
Auglýsingadeild Fréttablaðs-
ins verður lokuð fram til
mánudagsins 29. desember.
Fréttablaðið yfir hátíðarnar:
Næsta tölublað
á laugardaginn
GÍNEA, AP Herinn í Gíneu hefur
gert stjórnarbyltingu í beinu
framhaldi af því að tilkynnt var
um dauða einræðisherra landsins,
sem hét Lansana Conte. Herfor-
ingjarnir sendu liðsmenn sína
beina leið á skrifstofur forsætis-
ráðherrans, Ahmeds Tidanes
Souares, aðeins um klukkutíma
eftir að hann hafði skýrt frá láti
Contes í útvarpsávarpi.
Leiðtogi byltingarmanna er
Moussa Camarra herforingi og
segir hann byltingarráð hafa
tekið stjórn landsins í sínar
hendur: „Stofnanir lýðveldisins
hafa verið leystar upp,“ sagði
hann.
Conte var kominn yfir sjötugt
og hafði stjórnað landinu síðan
1984. - gb
Stjórnarbylting í Gíneu:
Herforingjarnir
tóku sér öll völd
Eyþór, er þessi gagnrýnandi
hálfgerður jólasveinn?
„Hann gefur allavega sumum kart-
öflu í skóinn.“
Tónlistarmaðurinn Eyþór Gunnarsson var
ósáttur við umsögn Jóns Agnars Ólason-
ar, tónlistargagnrýnanda á Morgunblað-
inu, um nýútkominn geisladisk Elínar
dóttur sinnar. Í kjölfarið urðu nokkur
átök milli þeirra tveggja á bloggsíðu hins
síðarnefnda.
SIMBABVE, AP Róbert Mugabe,
forseti Simbabve, segir Vestur-
veldin „kjánaleg“ að fara fram á
að hann sitji ekki áfram í stjórn
landsins. Bandaríkjastjórn hefur
sagt að vonlaust sé að komast að
samkomulagi um framtíðar-
stjórnskipulag landsins á meðan
forsetinn situr sem fastast.
Bretar taka undir það sjónarmið.
Mugabe sagði opinberlega í
gær að gagnrýni George W. Bush
Bandaríkjaforseta væri „síðustu
spörk deyjandi hests“ sem ekki
væri mark á takandi.
Forsetinn tók við árið 1980 og
hefur á tæpum þremur áratugum
leitt eitt ríkasta land Afríku til
örbirgðar og stjórn hans hefur
virt mannréttindi þegna sinna að
vettugi. - shá
Róbert Mugabe:
Segir Vestur-
veldin heimsk
SAMFÉLAGSMÁL Verð fyrir skóla-
máltíð í grunnskólum Reykjavíkur
verður 250 krónur, samkvæmt
frumvarpi að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir 2009.
Hingað til hefur verðið verið mis-
jafnt á milli skóla eða á milli 250 til
300 krónur. Að auki verður skóla-
máltíð ókeypis fyrir þriðja barn,
fyrir fjölskyldur með mörg börn á
grunnskólaaldri.
Kópavogsbær ætlar hins vegar
að hækka verð á skólamáltíðum í
grunnskólum úr 235 krónum í 280
krónur, frá og með áramótum.
Ákvörðun um það var tekin á föstu-
dag þegar samþykkt var fjárhags-
áætlun sem tekur gildi 1. janúar.
Hækkunin kemur, að sögn Þórs
Jónssonar, upplýsingafulltrúa
Kópavogsbæjar, til vegna mikillar
hækkunar á verði aðfanga. „Þessi
hækkun nær ekki að dekka hækkun
á neysluverðsvísitölu á þessum
tíma. Það má því segja að niður-
greiðsla bæjarins sé að aukast
þrátt fyrir þessa hækkun.“
Hafsteinn Karlsson, bæjarfull-
trúi í Kópavogi og skólastjóri Sala-
skóla, segir hækkunina eðlilega,
þótt ekki sé hún skemmtileg.
Hann segir enn engin brögð að
því að foreldrar greiði ekki fyrir
skólamáltíðir barna sinna. „Það
eru engin vanskil enn þá. En ég
hugsa að við förum að sjá meira af
þeim um mánaðamótin janúar-
febrúar. Við fylgjumst með og
bregðumst við ef fer að síga á
ógæfuhliðina.“
Í Hafnarfirði verður gjaldtakan
óbreytt enn um sinn. „Við höfum
tekið þá ákvörðun að hækka engin
þjónustugjöld, þar á meðal ekki
heldur skólamáltíðir þó að bæði
rekstrarliðir og matarkostnaður
hafi hækkað umtalsvert,“ segir
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði. Fylgst verði með allri
þróun og breytingum í matarmál-
um í skólanum og brugðist við í
einstaka tilfellum.
Í Garðabæ verður verð skóla-
máltíða óbreytt um sinn. Þar eru
máltíðir ekki niðurgreiddar og
kosta 428 krónur á barn. Bærinn
er með samning við Skólamat ehf.
sem hefur tilkynnt að verð verði
ekki hækkað fyrr en 1. febrúar hið
fyrsta. Kæra foreldra barna í
Garðabæ liggur nú fyrir í mennta-
málaráðuneytinu, vegna þess að
bæjarfélagið niðurgreiðir ekki
mat barna. Guðjón E. Friðriksson,
bæjarritari í Garðabæ, segir að
engar breytingar verði gerðar á
gjaldskránni fyrr en niðurstaða
liggur fyrir í því máli.
holmfridur@frettabladid.is
Verð skólamáltíða
lækkað í Reykjavík
Skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 250 krónur á barn frá og með 1. janúar.
Hingað til hefur verðið verið á bilinu 250 til 300 krónur. Kópavogsbær ætlar
hins vegar að hækka verð úr 235 krónum í 280 krónur.
ÚR MÖTUNEYTI FOSSVOGSSKÓLA Verð fyrir skólamáltíð í grunnskólum Reykjavíkur verður 250 krónur samkvæmt frumvarpi að
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2009. Kópavogsbær ætlar hins vegar að hækka verð úr 235 krónum í 280 krónur.
FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
FÉLAGSMÁL Yfir 2.700 umsóknir
um aðstoð voru afgreiddar fyrir
þessi jól hjá Hjálparstarfi kirkj-
unnar, Reykjavíkurdeild Rauða
krossins og Mæðrastyrksnefnd.
Gert er ráð fyrir að á bak við
hverja umsókn séu að meðaltali
2,5 einstaklingar, sem þýðir að
6700 manns hafi þurft hjálp þessi
jól. Það er 2,1 prósent lands-
manna.
Að sögn Vilborgar Oddsdóttur
hjá Hjálparstofnun kirkjunnar
voru umsóknirnar 1.500 í fyrra.
Það er því um áttatíu prósenta
aukningu að ræða milli ára, sem
Vilborg segir að rekja megi beint
til efnahagsástandsins.
Vilborg segist sérstaklega
merkja aukningu í umsóknum
karla og ungs fólks. Karlarnir
virðist hafa misst vinnu í meiri
mæli en konur og unga fólkið, á
aldrinum 18 til 20 ára, eigi erfið-
ara um vik en áður að fá vinnu.
Þá voru sjálfboðaliðar einnig
fleiri en vanalega, sem liðkaði
fyrir starfinu að sögn Vilborgar.
„Fólk sem var til dæmis búið að
missa sína vinnu var tilbúið til að
koma til okkar og aðstoða okkur
við úthlutunina,“ segir Vilborg og
nefnir það sem eina af skýring-
unum á fjölguninni.
Suðurnes skáru sig úr í ár, en
hlutfallslega voru umsóknirnar
langflestar þar. Þær voru hins
vegar fæstar á Suðurlandi. - sh
Áttatíu prósent fleiri leituðu aðstoðar hjálparstofnana fyrir jólin í ár en í fyrra:
Tvö prósent þurftu jólaaðstoð
MÆÐRASTYRKSNEFND Karlar og ungt
fólk var mun meira áberandi í biðröðum
eftir aðstoð en áður. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
STJÓRNSÝSLA Kostnaður vegna
starfsemi Fjármálaeftirlitsins
(FME) á árinu
nemur rúmlega
einum og hálf-
um milljarði
króna. Heimild
til 550 milljóna
króna kostnaðar
umfram fjárlög
var samþykkt
með fjárauka-
lögum í gær.
Í fjárlögum
ársins 2008, sem samþykkt voru
undir árslok 2007, var fjárþörf
FME metin rúmar 952 milljónir
króna. Voru framlögin þá hækkuð
um tæpar fjögur hundruð milljón-
ir frá árinu áður vegna aukinna
verkefna og fjölgunar starfs-
manna.
Verkefni FME margfölduðust
að vöxtum með setningu neyðar-
laganna og hruns bankanna.
Í áliti meirihluta fjárlaganefnd-
ar segir að aukinn kostnaður sé
vegna skilanefnda bankanna, end-
urskoðunarkostnaðar vegna
bráðabirgðastofnefnahagsreikn-
inga bankanna, verðmatskostnað-
ar vegna aðkeyptra sérfræðinga
auk annarrar aðkeyptrar sér-
fræðiþjónustu.
Fjárþörf FME á næsta ári er
metin svipuð og fjárlög líðandi árs
kváðu á um. Tekið er til þess að
starfsemi íslenskra fjármálastofn-
ana í útlöndum verður lítil sem
engin og dregur því stórlega úr
slíku eftirliti.
Sérstakt eftirlitsgjald sem lagt
er á fjármálafyrirtæki stendur
undir stærstum hluta kostnaðar
við starfsemi FME. - bþs
Framlög til Fjármálaeftirlitsins aukin um 550 milljónir á fjáraukalögum:
FME kostar einn og hálfan milljarð
JÓNAS FR. JÓNSSON
BANDARÍKIN, AP Talið er að um
fimm milljónir manns hafi látist
af völdum vannæringar í
heiminum á árinu sem nú er að
líða. Þetta kemur fram á lista
yfir tíu verstu hörmungarnar
sem gengu yfir heiminn á
síðasta ári, frá Læknum án
landamæra.
Á listanum var meðal annars
sívaxandi ofbeldi í Sómalíu,
gríðarlegt flóttamannavandamál
í Kongó og fellibylurinn sem
gekk yfir Burma.
Auk þess komust HIV-smit og
berklar á listann, sem og
áframhaldandi ofbeldi í Darfúr-
héraði í Súdan. - bj
Læknar án landamæra:
5 milljónir dóu
úr vannæringu
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur dæmt íslenska
ríkið til að greiða ítalska verk-
takafyrirtækinu Impregilo um
1.230 milljónir króna vegna
ofgreiddra skatta af launum
starfsmanna fyrirtækisins á
Kárahnjúkum. Upphæðin er sú
sama og fyrirtækið fór fram á.
Hæstiréttur úrskurðaði í fyrra
að Impregilo hefði ekki borið að
greiða skattastaðgreiðslurnar, og í
kjölfarið stefndi Impregilo ríkinu
og fór fram á endurgreiðslu.
Málarekstur hefur staðið í
ríflega þrjú ár sem gerir það að
verkum að ríkissjóður þarf til
viðbótar að greiða Impregilo um
600 milljónir króna í vexti. - sh
Ríkið endurgreiði skatta:
Impregilo fær
1,8 milljarða
PÁFAGARÐUR Jafnmikilvægt er að
bjarga mannkyninu frá sam- og
tvíkynhneigð og að forða regn-
skógunum frá eyðileggingu. Þetta
sagði Benedikt páfi XVI. í árlegu
ávarpi sínu til kardínála og
preláta í Vatíkaninu í gær. Hvort
tveggja væri liður í að verja
sköpunarverk Guðs.
Páfi varaði við þeirri þróun að
skilin á milli kynjanna yrðu æ
ógreinilegri. Slíkt sagði hann að
hlyti að leiða til sjálfseyðingar
mannkyns.
Mannréttindasamtök brugðust
illa við yfirlýsingunum í gær,
sögðu þær óábyrgar og kynda
undir fordómum og ofbeldi. - sh
Skilin milli kynja að mást út:
Páfinn hræðist
samkynhneigð
BOÐBERI KRISTNI Páfi óttast að samkyn-
hneigð tortími mannkyninu.
FRÉTTABLAÐIÐ / AP
SPURNING DAGSINS