Fréttablaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ORKUVEITA Reykjavíkur stendur vaktina um jólin
og verða viðbragðsteymi úti í hverfum ef eitthvað
kemur upp á. Sími á bilanavakt OR er 516-6200.
www.or.is
„Mér finnst gaman að hlakka til
jólanna en besti tíminn er þegar
allt er orðið rólegt og jólin eru
alveg að koma,“ segir hin tíu ára
Matthildur Einarsdóttir sem held-
ur jólin í Presthúsum í Mýrdal
þetta árið.
„Ég skiptist á að vera hjá
mömmu og pabba um jólin og
þessi jól verð ég með pabba í
sveitinni hjá langafa og lang-
ömmu. Þar er tíkin mín Ronja sem
er svona amerískur Cocker Spani-
el, en mér finnst mjög gaman að
leika við hana,“ segir Matthildur
brosandi. „Hún á jólasveinahúfu
sem hún verður með um jólin.“
Matthildur eignaðist nýverið
litla systur sem hún nýtur að
fylgjast með. „Þegar ég er hjá
mömmu þykir mér skemmtileg-
ast að horfa á litlu systur mína og
sjá hvað hún er sæt og sniðug. En
næstu jól verður skemmtilegra
að fylgjast með henni því þá verð-
ur hún byrjuð að tala og svoleið-
is.“
Mikil tilhlökkun fylgir pökkun-
um og er Matthildur orðin spennt
að kíkja í þá. „Ég fæ marga pakka.
Mig langar mest í Build a Bear-
bangsa frá Danmörku en annars
er ég líka hrifin af Pet Shop, þótt
ég sé orðin tíu ára. Síðan finnst
mér gaman að lesa bækur og mig
langar að lesa Senjorítu með sand
í brók. Svo er líka gaman að lesa
Skúla skelfi og Fíusól,“ útskýrir
Matthildur áhugasöm en hún fékk
nýjustu bókina með Fíusól í skó-
inn og Silfursafnið hans Páls Ósk-
ars.
„Svo er mikið af góðum mat á
jólunum. Ég held mest upp á
hangikjötið og ísinn,“ segir hún
og sleikir út um. „Síðan hitti ég
frændur mína og frænkur, kíki á
dýrin og vonandi fæ ég að setja
stjörnuna á toppinn á jólatrénu,“
segir Matthildur dreymin.
hrefna@frettabladid.is
Setur stjörnu á toppinn
Jólastúlkan okkar, hún Matthildur Einarsdóttir, hlakkar til jólanna eins og flestir á hennar aldri en hún
verður með pabba sínum í sveitinni hjá langafa og langömmu um jólin. Þar býr vinkona hennar Ronja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Matthildur hlakkar til jóla og
veit vel hvers vegna þau eru
haldin. „Þá fæddist Jesús og
mér finnst svo notalegt hvað
allir eru góðir hver við annan
um jólin,“ segir hún brosandi.
www.patti.is
S. Gunnbjörnsson