Fréttablaðið - 24.12.2008, Side 18

Fréttablaðið - 24.12.2008, Side 18
18 24. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR A uður er byrjuð á nýrri bók. Það hefur aldrei gerst áður að hún sé í miðju jólabókaflóði, í upplestrum hægri vinstri, að fylgja eftir nýútkominni bók og sé farin að hripa niður nýja hugmynd. Hún heldur jafnvel að þetta séu áhrif þess sem á hefur gengið í samfélaginu. „Það er allt breytt. Ég kom hingað til lands í sumar og ætlaði mér að fara út aftur þegar gengið lagaðist. Nú stefni ég á að flytja til Berlínar en er í frekar lausu lofti með hvað verður, eins og allir. Ég hef tekið eftir því að við erum öll breytt,“ segir Auður og segist til dæmis sjá það á kaffihúsum sem hún sæki. „Það var lenska hér að heilsa bara svolítið kúl þegar maður settist og þeir sem maður þekkti á staðnum heilsuðu svo bara líka svolítið kúl á móti. Nú virðist fólk vera opnara og hafa meiri þörf fyrir að hlusta og tjá sig. Það ríkir meiri einlægni í samskiptum okkar – finnurðu það ekki? Að mörgu leyti hefur þessi atburðarás orðið til góðs. Samfé- lagið var orðið svo skrítið og rugl- ingslegt. Mér leið oftast eins og það væri eitthvað að mér þegar ég kom heim. Að segjast hvorki eiga íbúð né vera í fastri stöndugri vinnu varð til þess að fólk hér heima vorkenndi mér hreinlega. Og skildi ómögulega hvernig ég gat eiginlega haft líf mitt svona. Ég hef virkað „eðlilegri“ manneskja þar sem ég hef búið úti í Danmörku og Barcelona en hér heima þar sem það þekkist síður að fólk kaupi sér allt á einum degi með hjálp yfir- dráttar og skulda.“ Veltir fyrir sér ritskoðun Auður hefur skrifað megnið af skáldsögunum sínum erlendis, nú síðast úti í Barcelona þar sem hún hefur búið ásamt eiginmanni sínum, Þórarni Leifssyni, mynd- listarmanni og rithöfundi, og unnið sem sjálfstætt starfandi blaðamað- ur samfara skáldskapnum. Hún segir að það fari vel á því að blanda þessum störfum saman ólíkt því sem margir haldi. Auður hefur komið við á mörgum fjölmiðlum og meðal annars skrifað greinar í DV, Morgunblaðið, Nýtt líf og Frétta- blaðið og er því, eftir tíðindi síð- ustu vikna, innt eftir því hvort hún hafi mátt sæta ritskoðun. „Jú, ég hef lent í undarlegu atviki en hef því miður ekki neinar haldbærar sannanir til að ég geti farið fram með það. Ég efast hins vegar ekki um að á öllum miðlum megi finna einhver dæmi um ritskoðun. Mér hefur reyndar verið afar hugleikið um langan tíma hvað sé ritskoðun og hvað ekki og hvað sé glæpur og hvað ekki. Ég leik mér með þessar spurningar í Vetrarsól og skil les- endur eftir með þær að lestri lokn- um.“ Auður heldur áfram að ræða ritskoðun og umræðan beinist að stórmörkuðunum. „Hvað er það annað en ritskoðun að stórmarkað- ir ákveði hvaða bókum er otað að neytendum og hvaða bókum er haldið frá þeim? Sérstaklega nú þegar bókaverslun er að færast æ meir inn í matvörubúðirnar, og jafnvel hætt við að bókabúðir muni ekki hafa það af í því hallæri sem er fram undan, þá skiptir þessi spurning máli.“ Gerir grín að glæpasöguforminu Hinn rauði þráður Vetrarsólar er à la glæpasagan: Mannshvarf. Auður segir glæpasöguplott sögunnar þó aðeins vera leik. „Ég leik mér að glæpasöguforminu, leyfi lesand- anum að skera úr um hvort eitt- hvað sé mögulega rangt; auk þess leyfi ég mér að grínast dálítið með það um leið því í bókmenntaum- fjöllun í dag virðumst við stundum vera stödd á villigötum. Við erum haldin sérkennilegum glæpasögu- doða. Ef það er plott í skáldsög- unni þá eru allir hamingjusamir og kátir. En skáldsagan er svo miklu meira en plott og gagnrýnendum hættir til að blása bækur af borð- inu sem státa ekki af því og „réttri“ uppbyggingu. Í versta falli dæma þeir þær út frá glæpasögum. Skáldsaga þar sem tilveran er krufin og tjáð út í ystu tabújaðra, í stað þess að vera harðsoðin glæpa- saga, fær því oft mjög óréttláta meðferð, bæði í orðum gagnrýn- enda sem og í stórmörkuðum þar sem þær eiga ekki allar upp á pall- borðið hjá innkaupastjórunum. Með fullri virðingu fyrir glæpa- sögunni – því hana les ég líka með ánægju – en það er sorglegt þegar öllu er grautað saman. Ef við berum rithöfunda saman við tón- listarmenn þá er þetta eins og að bera Jórunni Viðar endalaust saman við Júróbandið.“ Aldrei fengið jafn sterk viðbrögð við grein Það er í takt við tíðarandann að les- andinn er skilinn eftir í lok sögu með óbeit í munni og „grun um glæp“ en það er einmitt þannig sem Auður potar í lesandann og varpar til hans spurningum – svo sem hvort það sé til dæmis glæpur að vanrækja barnið sitt? Sem blaðamaður á Nýju lífi skrifaði Auður eitt sinn grein um stjúptengsl og segist, hvorki fyrr né síðar, hafa fengið önnur eins viðbrögð við nokkurri blaðagrein. Enda málefn- ið nátengt mörgum og viðkvæmt. Vetrarsól er hluti af trílogíu sem hófst með Fólkinu í kjallaranum. Í öllum bókunum standa konur uppi með börn sem þær eiga ekki. „Í fyrstu bókinni minni fjallaði ég um einstæða móður, fannst það vera eitthvað sem ég vildi gera, verandi dóttir einstæðrar móður og allt það. Þetta er kannski svipað upp- gjör núna. Ég var stjúpdóttir og vægast sagt hræðileg sem slík, enda sturluð úr afbrýðisemi, og á svo stjúpdóttur sjálf sem ég er mun heppnari með en stjúpmóðir mín var með mig. Án gríns – ég las til dæmis á þessum tíma bókina Ævi og ástir kvendjöfuls eftir Fay Weldon aftur og aftur og þóttist sjá stjúpmóður mína þar í hlutverki Mary Fisher. Horfði svo á kvik- myndina og þegar Meryl Streep birtist sá ég ekkert nema hausinn á Margréti Frímannsdóttur, stjúp- móður minni [fangelsisstjóra á Litla-Hrauni]. Við hlæjum að þessu í dag og eigum gott samband. En þetta voru mörg ár sem ég var erfið.“ Vitstola íslenskt fjölskyldumynstur Við höldum áfram í stjúpu- og stjúpaumræðunni og tabúið sem það þó er að ræða flókið íslenskt fjölskyldulíf. „Ég á auðvitað fullt af vinum og vinkonum sem hafa lent í þessari stöðu. Og það skiptir engu hversu algengt þetta er – við eigum samt langt í land með að taka á þessum hlutum eðlilega. Það er til dæmis algjörlega bannað að verða pirraður á stjúpbarni, en samt er ekkert eðlilegra því auðvitað verðurðu líka pirraður á „eigin“ barni. Það er líka eitthvað hrikalega rangt við þessa nafngjöf: Stjúp-foreldri. Maður kemur aldrei í stað foreldris og einmitt það leið- ir af sér mörg vandræðin – að gleyma því að maður er þarna mun frekar í hlutverki félaga en for- eldris. Það getur ekki orðið annað en vandræðagangur þegar nýi kærastinn mætir með börn sem hann á ekki í vinnuna sína, kannski eftir nokkurra vikna kynni við þau, eða þegar konur sem börnin hafa hitt með föður sínum um skamman tíma baka óumbeðnar kökur fyrir fermingarveislu barnsins. Samfélagið fer langt fram úr til- finningum og getu okkar þar svo við erum dæmd til að fara fram úr sjálfum okkur. Þar getur skáld- skapurinn komið inn, rýnt í grá svæði á næmari hátt en bæði fræði og fjölmiðlar.“ Ástandið er öllum að kenna Persóna Vetrarsólar vaknar upp í fáránlegum aðstæðum, í fáránlegri vinnu og öll bókin imprar á fárán- leikanum hér og þar. Ekki ósvipað og þegar 1. október rann upp á þessu ári og íslenska þjóðin var stödd í afkáralegum veruleika. Auði er því að lokum snúið í átt að efnahagsástandinu. Finnur hún sökudólga? „Ég er ekki sammála þeim sem segja að þetta hafi ekki verið okkur að kenna. Við vorum orðin mjög dofin og þægindaforrit- uð. Ef okkur vantaði í matinn, skipti það okkur engu máli ef það var búið að loka lágvöruverslun- um, við fórum þá í bara í 10-11 til að hamstra. Ef við fengum vitlaust afgreitt til baka í búðum var hallærislegt að rukka það sem við áttum inni. Neytendavitundin var á núlli – og neytendapólitík ekki til. Það var glatað að spara og nirfils- legt að segjast ekki ætla að gera hitt og þetta því maður ætti lítinn pening. Við nenntum ekki að hugsa. Og nenntum ekki heldur að hafa augun opin og spyrja, taka þátt í lýðræðinu. Erum þannig séð öll sek. En auðvitað brást öryggisnet- ið. Þessir auðmenn, jú, jú, þeir gerðu gloríur. En ef það hefðu ekki verið þessir menn, þá hefðu það verið einhverjir aðrir. Það voru hins vegar Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn sem áttu að koma í veg fyrir að þessir hlutir gætu gerst. Öryggisnetið átti að vera í lagi og sá faktor er alvarlegastur. Auk þess er stórfurðulegt að vera með seðlabankastjóra sem er bæði ómenntaður í hagfræði og pólitískt skipaður. Margt virðist þó vera að breytast til hins betra og fólk að verða aktívara, eins og að sjá má á mótmælafundum og borgarafund- um. Svo má heldur ekki gleyma að þetta er alþjóðleg krísa. Þó er ekki hægt að ræða af neinu viti um glæpinn ef enginn viðurkennir að hann sé þarna til staðar. Umræðan er svo skrítin. Á meðan það er hrópað úr öllum áttum að glæpur hafi verið framinn segja hásettir aðilar bara: „Nei, þetta var allt í lagi.“ Eins og ekkert rangt hafi átt sér stað. Þessir aðilar segja svart vera hvítt þótt hitt liggi í augum uppi. Við erum búin að opna augun og vitum um svo margt rangt í kringum okkur – en ekki nákvæm- lega hvernig við hendum reiður á því. Þetta er eins og í Vetrarsól: Grunur um glæp.“ Var erfið stjúpdóttir Auður Jónsdóttir er vön því að henda sér í potta sem malla við viðkvæma suðu og sumum les- endum finnst hún jafnvel ganga fulllangt í því að hrófla við þeim. Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við Auði um nýjustu bók hennar Vetrarsól og stóra og smærri glæpi. VIÐURKENNA EKKI GLÆPINN „Umræðan er svo skrítin. Á meðan það er hrópað úr öllum áttum að glæpur hafi verið framinn segja hásettir aðilar bara: „Nei, þetta var allt í lagi.“ Eins og ekkert rangt hafi átt sér stað. Þessir aðilar segja svart vera hvítt þótt hitt liggi í augum uppi,“ segir Auður Jónsdóttir um þjóðfélagsástandið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM. Ég las til dæmis á þessum tíma bókina Ævi og ástir kven- djöfuls eftir Fay Weldon aftur og aftur og þóttist sjá stjúp- móður mína þar í hlutverki Mary Fisher. Horfði svo á kvik- myndina og þegar Meryl Streep birtist sá ég ekkert nema hausinn á Margréti Frímannsdóttur, stjúpmóður minni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.