Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 60
8 matur
Í E L D H Ú S K R Ó K N U M
Einn af þeim réttum sem Nor-bert býr til eru bollur úr því sem til er í grænmetiskörf-
unni hverju sinni. Þó í uppskrift-
inni geri hann ráð fyrir gulrót,
hvítlauk, púrrulauk eða selleríi
segir hann mega sleppa því og
setja eitthvað annað í staðinn.
„Aðalatriðið er að krydda bollurn-
ar vel og steikja við vægan hita,
þá verða þær bragðmeiri en ella,“
segir hann.
Norbert er frá Þýskalandi og
hefur hreiðrað um sig í Hvera-
gerði. Kom fyrst til Íslands 1980
sem ferðamaður og settist hér að
1984 því ástin varð á vegi hans.
„Ég lít heiminn aðeins öðrum
augum en margir. Kannski eins og
marsbúi!,“ segir hann og hefur
húmorinn á réttum stað. Ægis-
nafnið valdi hann þegar hann fékk
íslenskan ríkisborgararétt. „Ég
vildi hafa nafnið rammíslenskt en
Fornleifur kom því miður ekki til
greina. Mér var ráðlagt að heita
Helgi Dagur, passlegra hefði
kannski verið Erlendur Hreimur
en ég valdi nafnið. Ægir, sem ég er
mjög sáttur við.“ - gun
GRÆNMETIS-
BOLLUR
1 laukur
½ græn paprika
½ rauð paprika
1 sellerístöngull
1 tómatur
¼ púrrulaukur
1 hvítlauksrif
1 lítil gulrót
2-3 bollar hýðishrís-
grjón, soðin (mega
ekki vera blaut)
2 egg
½-1 bolli brauðrasp
sjávarsalt/kryddsalt
(Herbamare)
pipar
majoram
Ítölsk kryddblanda
eða Provence-
kryddblanda
Skerið grænmetið
smátt. Blandið öllu
saman og búið til flatar
bollur. Steikið þær í
ólívuolíu við lágan hita.
Gerið fyrst eina
prufubollu til að
aðgæta hvort meira
krydd þurfi). Bollurnar
eru mjög góðar heitar
með soðnum eða
ofnbökuðum kartöflum
og salati, hrísgrjónum
og grænmeti, núðlum
og fleiru. Kaldar eru
þær góðar á brauð, til
dæmis með sinnepi
eða tómatsósu eða
bara beint í munninn.
Svo má frysta þær og
hita með grænmeti.
HVÍTLAUKSSMJÖR
smjör
hvítlaukslauf, skera
mjög fínt eða pressa
örlítill sírónusafi
örlítið kryddsalt
Blandið saman.
GUACAMOLE
1 meðalstór lárpera
(avocado), mjúk og
græn að innan
1 rauður tómatur,
mjúkur
ferskur safi úr ¼ til ½
sítrónu
1 lítið hvítlauksrif
kryddsalt
Setjið í blandara og
maukið.
Borið fram með fersku
salati (svo sem kínakáli,
tómötum, agúrku og
papriku) og salatsósu.
GRÆNMETISBOLLUR ÁSAMT GÓÐU MEÐLÆTI
Fyrir 4
Norbert segir að skipta megi um græn-
metistegundir í bollunum.
Aðalatriði
að krydda vel
Hann hefur áhuga á matargerð úr grænmeti, ræktar eigin garð og aðhyllist sjálf-
bæra þróun. Norbert Ægir starfar sem hjúkrunarfræðingur á Heilsustofnun Nátt-
úrulækningafélags Íslands í Hveragerði og heldur þar líka fyrirlestra um húmor.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Grænmetisbollur með ofnbökuðum
kartöflum með hýði, hvítlaukssmjöri,
salati og guacamole
SAFAPRESSA
sem ræður við
stóra óskorna
ávexti. Fæst í
Byggt og búið
á 16.900 krónur.
AERO-
GARDEN
loft ræktunar-
garðurinn gerir
þér kleift að
rækta krydd,
salat, chili og
tómata í íslensku
vetrarmyrkri. Fæst í
Kokku á 24.500
krónur.
A M
FERSKT OG NÝBAKAÐ brauð á hverj-
um morgni. Brauðvélin fæst hjá Einari
Farestveit og kostar 19.900 krónur.
BLANDARI
með gler-
könnu og
í burstuðu
stáli. Fæst
í Byggt
og búið
á 7.990
krónur.