Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 85
LAUGARDAGUR 17. janúar 2009 53
Á síðasta ári voru keyptir á Íslandi
1.578.005 bíómiðar fyrir tæpa 1,3
milljarða króna í kvikmyndahús-
um landsins. Samkvæmt Smáís,
samtökum myndrétthafa, er þetta
aukning upp á 14,5% frá árinu
2007.
Aðsóknarmesta myndin var
Mamma Mia! en á hana seldust
tæplega 119 þúsund miðar fyrir
rúmar 102 milljónir króna. Í öðru
sæti var Batman með rúmlega
69 þúsund selda miða fyrir tæp-
lega 63 milljónir. Númer þrjú yfir
tekjuhæstu myndirnar var Brúð-
guminn með rúmlega 55 þúsund
selda miða og námu tekjur henn-
ar rúmum 60 milljónum. Bond-
myndin Quantum of Solace seldi
fleiri miða en Brúðguminn, eða
tæp 63 þúsund, en tekjurnar numu
aftur á móti rúmri 51 milljón, enda
miðaverð á Bond lægra en á hinn
íslenska Brúðguma. Samkvæmt
tölum Smáís fór hver Íslending-
ur fimm sinnum í bíó á síðasta ári
miðað við höfðatölu.
Aðsókn í bíó jókst
MAMMA MIA! Söngvamyndin Mamma
Mia! var langvinsælasta myndin á
síðasta ári.
Indísveitin Sonic Youth er að
ljúka upptökum á nýrri plötu sem
nefnist The Eternal og kemur út
í júní. Síðasta plata sveitarinnar,
Rather Ripped, kom út árið 2006.
Þetta verður sextánda plata
Sonic Youth og jafnframt sú
fyrsta sem kemur út á vegum
Matador-útgáfunnar. „Að fá tæki-
færi til að vinna með hljómsveit
sem hefur haft svona gríðarleg
áhrif á okkur var eitthvað sem
við gátum ekki hafnað,“ sagði í
yfirlýsingu frá Matador eftir að
samningurinn var í höfn. Sonic
Youth, sem spilaði á Nasa fyrir
þremur árum, gaf áður út hjá fyr-
irtækinu DGC.
Sonic Youth
klárar plötu
SONIC YOUTH Indísveitin áhrifamikla
gefur út sína sextándu plötu í júní.
Vandræðagemlingurinn Pete
Doherty virðist hafa tekið sig
saman í andlitinu eftir að hann
var fangelsaður í maí í fyrra því
fyrsta sólóplata hans kemur út
níunda mars næstkomandi. Gra-
ham Coxon, gítarleikari Blur,
spilar í nánast öllum lögum plöt-
unnar. „Mér líkar mjög vel við
Pete. Hann er fyndinn, hlýlegur
og heillandi. Sum laganna snertu
mig djúpt og mér finnst textarnir
líka mjög góðir,“ skrifaði Coxon
á bloggsíðu sinni. Upptökustjóri
var Stephen Street, sem tók ein-
mitt upp Blur-plöturnar Park-
life og The Great Escape. Hann
stjórnaði einnig upptökum á
plötu Dohertys og félaga í Baby-
shambles, Shotters Nation.
Sólóplata frá
Pete Doherty
PETER DOHERTY Doherty gefur út sína
fyrstu sólóplötu í mars næstkomandi.
Will Smith segist ekki myndu
neita því að leika nýkjörinn
Bandaríkjaforseta, Barack
Obama, í kvikmynd ef honum
byðist hlutverkið.
Þó svo að leikarinn sé mik-
ill aðdáandi Obama segist hann
ekki hafa í hyggju að feta í fót-
spor Ronalds Reagan og Arnolds
Schwarzenegger og færa sig úr
leiklistinni yfir í stjórnmál. Hann
segir það mun skemmtilegra að
vera kvikmyndastjarna og þurfa
ekki að færa fólki sorgarfregnir.
Smith hefur jafnframt lýst
yfir áhuga sínum á að leika fyrr-
um forseta Suður-Afríku, Nelson
Mandela, og söngvarann Marvin
Gaye í myndum um líf þeirra.
Vill leika
Obama
Rokkhljómsveitin Metallica,
gítarsnillingurinn Jeff Beck
og rappsveitin Run DMC eru á
meðal þeirra flytjenda sem verða
vígðir inn í Frægðarhöll rokks-
ins í vor. Athöfnin verður haldin í
Cleveland í Ohio fjórða apríl.
„Við höfum alltaf farið okkar
eigin leiðir. Tuttugu og sjö, átta
árum síðar erum við enn hérna,“
sagði trommari Metallica, Lars
Ulrich.
Metallica í
Frægðarhöll %40
Korputorgi. Opið: mán-fös kl. 11-19, lau kl. 10-18, sun kl. 12-18
af notu
ðum bí
lum
...og jaf
nvel me
ira!
Opið um helg
ina!
10-18 laugardag
12-18 sunnudag
BÍLAOUTLET
NOTAÐIR BÍLAR Á SPOTTPRÍS
KORPUTORGI
Vel yfi r
300 bíla
r
Einstak
t
verð!
GERÐU EI
NSTÖK KA
UPÚTSALA
Fólksbíla
r Jepp
ar Sen
diferðab
ílar Litl
ir bílar
Stórir b
ílar Jep
plingar
Smábíla
r