Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 4
4 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Það væri „mikið glapræði“ að efna
til kosninga nú, að mati Geirs H.
Haarde forsætisráðherra. Þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins fund-
aði í Valhöll í gær. Að sögn Geirs
var um hefðbundinn þingflokks-
fund að ræða en ekki viðbrögð við
atburðum síðustu daga. „Við erum
að vinna okkar störf eins og gert
er ráð fyrir.“
Spurður hvort ríkisstjórnarsam-
starfið væri í hættu sagði Geir svo
ekki vera, það hefðu þau Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, staðfest í samtali
fyrr um daginn.
Geir telur það ábyrgðarleysi
að boða til kosninga eins og sakir
standa. „Það væri gríðarlegt ólán
fyrir allan almenning í landinu,
fyrir þá sem hugsanlega eru að
missa vinnuna, fyrirtækin sem
eru að berjast í bökkum, því það
væri ekki hægt að klára stóru
málin sem snúa að bönkunum,
erlendum lánardrottnum og öllum
þeim verkefnum sem fram undan
eru. Að hlaupa frá því núna til að
kalla á kosningar í vor væri mikið
glapræði.“
Um mótmælin í gær og í fyrra-
dag sagði Geir að hann teldi ekki
ástæðu til að grípa til sérstakra
aðgerða til að koma á ró; fólk hafi
fullan rétt á að mótmæla, en brjóti
fólk af sér sjái lögreglan um það.
„Lögreglan hefur staðið sig afar
vel í þessum erfiðu aðstæðum,
sýnt mikla þolinmæði og stjórn-
visku, finnst mér, og við vonum
að hún haldi áfram að ráða við sín
verkefni.“
Geir gerir lítið úr áhrifum mót-
mælanna á störf Alþingis; þingið
hafi haldið sínu striki á þriðjudag
og fundað meðan ástæða þótti til.
Fundi hafi hins vegar verið frestað
í gær til þess að geta betur und-
irbúið umræðu um efnahagsmál
í dag. Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins verður haldinn um aðra
helgi. Geir segir það óbreytt að
hann ætli að gefa kost á sér í for-
mannsembætti. Hann hefur ekki
áhyggjur af því að mótmælend-
ur setji strik í reikninginn. „Við
vitum ekkert hvernig það verður.
Ég held að það þurfi allir að reyna
að róa sig niður í þessum efnum.
Þó að fólk hafi fullan rétt á því að
mótmæla þá er það ekki við hæfi
að gera aðsúg að valdastofnunum
samfélagsins eins og gert hefur
verið.“ bergsteinn@frettabladid.is
Allt við suðumark
LOKA-
DAGAR
RISAÚT
SÖLUNN
AR
Í DAG, F
ÖSTUDA
G OG LA
UGARD
AG
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
1
-3
1
1
1
3
5
4
5
2
1
16
14
10
13
15
20
15
18
10
16
20
28
1
3
1 3
5
54
2
4
5
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
15°
7°
7°
5°
3°
7°
4°
1°
2°
3°
19°
10°
2°
16°
1°
10°
12°
1°
Á MORGUN
18-25 m/s norðvestan og
vestan til annars 8-15 m/s
LAUGARDAGUR
18-23 m/s á Vestfjörð-
um og Snæfellsnesi
annars 5-13 m/s
STORMASAMT
Í dag verður víða
stormasamt á landinu
og sýnu hvassast
suðaustanlands, á
miðhálendinu og
síðan á Vestfjörðum
og norðvestan til
síðdegis. Á morgun
og hinn verður áfram
norðaustanstormur á
Vestfjörðum og víða
norðvestan og vestan
til með snjókomu eða
slyddu. Suðvestanvert
landið verður almennt
úrkomuminnst næstu
daga.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Glapræði að kjósa í vor
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki í hættu og telur það ábyrgðarleysi að boða til kosninga.
Ekki sé ástæða til að bregðast við mótmælum síðustu daga. Hann hvetur fólk til þess að róa sig.
VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ Aðsúgur var gerður að Geir H. Haarde forsætisráðherra í gær þegar hann yfirgaf Stjórnarráðið. Mótmælendur eltu Geir að forsætisráðherrabílnum sem
komst ekki frá Stjórnarráðinu fyrr en lögreglan hafði rýmt leið fyrir bílinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innan úr þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins heyrist:
■ Að stjórnarslit sem og tímasetn-
ing kosninga hafi verið rædd
á þingflokksfundinum í gær.
Umræður í samfélaginu séu
einfaldlega þess eðlis að ekki hafi
verið hjá því komist.
■ Samdóma niðurstaða fundarins
var að það væri óábyrgt að boða
til kosninga við þær aðstæður
sem eru í samfélaginu og ríkis-
stjórnin verði að beina kröftum
sínum að tvennu. Viðreisn
fjármálakerfisins og aðgerðum
sem sniðnar verða að þörfum
heimilanna. Þegar þeirri vinnu
er lokið sé hins vegar eðlilegt að
ræða um kosningar.
■ Mikil spenna sé á milli stjórnar-
flokkanna en samband formann-
anna, Ingibjargar og Geirs, sé gott
og þau ræðist við reglulega.
■ Sívaxandi óánægja innan þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins með
að forsætisráðherra hafi ekki beitt
sér fyrir breytingum á embættis-
mannakerfinu, og er þar vísað til
Seðlabanka og Fjármálaeftirlits.
Það hafi veikt stöðu formannsins
og jafnframt séu slíkar breytingar
forsenda áframhaldandi stjórnar-
samstarfs.
■ Vegna óróa í samfélaginu, sem
hefur kristallast í mótmælaað-
gerðum undanfarna daga, sé
nauðsynlegt að skýra fyrir fólki
hvort og hvenær boðað verði
til kosninga. Þar komi til greina
að menn komi sér saman um
dagsetningu kosninga; að öðrum
kosti muni alda mótmæla rísa
enn hærra.
■ Samverkamenn Geirs hafa þrýst
mjög á hann að bregðast við á
sýnilegan hátt.
■ Ekki sé endilega þörf á mikilli
endurnýjun í þingflokknum í
heild en ráðherraliðið muni klár-
lega taka miklum breytingum.
- shá
Samflokksmenn þrýsta á Geir
Mótmælendur umkringdu bíl
Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra við Stjórnarráðið í gær.
Þeir köstuðu eggjum í bílinn og
börðu hann að utan þar til lög-
regla skakkaði leikinn og Geir
ók burt. Hann segir að sér hafi
brugðið.
„Ég viðurkenni það fúslega að
mér brá. Þetta var ekki skemmti-
legt upplifun.“
Geir vonar að þetta sé ekki
vísir að því sem koma skal. „Við
erum nú vön því hér á Íslandi að
sýna samborgurunum virðingu
og leyfa fólki að komast óhindrað
ferða sinna. Ég vona svo sannar-
lega að það verði ekki breyting á
því og að allir nái áttum í þessu
máli.“ - bs
Umkringdu forsætisráðherra:
Geir vonar að
allir nái áttum
Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, telur
rétt og eðlilegt að fyrir liggi
skýrsla nefndar Alþingis sem
rannsakar aðdraganda og orsök
falls bankanna áður en gengið
verði til kosninga. Þjóðin þurfi
upplýsingar áður en hún kýs.
Guðjón segir ástandið í þjóð-
félaginu slæmt en Alþingi og
ríkisstjórn – hvort heldur sú er
situr eða þjóðstjórn – þurfi að
einhenda sér í að setja lög sem
stuðli að því að verja heimilin og
atvinnulífið. - bþs
Formaður Frjálslynda flokksins:
Vill upplýsingar
fyrir kosningar
„Ef það tekst ekki að koma
bankakerfinu í eðlilegt horf
á næstu mánuðum þá dýpkar
kreppan, gjaldþrotum fjölg-
ar og atvinnuleysið verður enn
meira,“ segir Illugi Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Hann segir viðreisn bankanna
stærsta verkefnið áður en gengið
verður til kosninga.
Illugi segir að stjórnin eigi að
sitja á meðan hún telur að hún
geti unnið landinu gagn. Hins
vegar kæmi það honum á óvart
ef hún starfaði út kjörtímabil-
ið. „Það er heldur engin ástæða
til að streða við það í sjálfu sér.“
Hann segir að þrátt fyrir aðgerð-
ir til að hjálpa heimilunum í land-
inu sé mikið enn ógert þar. „Það
er líka kaldur raunveruleiki að
það verður ekki hægt að hjálpa
öllum. Það er það hörmulegasta í
þessu öllu saman.“ - shá
Illugi Gunnarsson:
Fjármálakerfið
er í forgangi