Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 22. janúar, 22. dagur ársins. 10.37 13.39 16.43 10.39 13.24 16.10 Í haugi válegra tíðinda er bein-línis lífsnauðsynlegt að eitthvað lýsi upp svartnættið. Maður getur þolað skammdegið ef maður veit fyrir víst að vorið kemur aftur. Því rígheldur maður í góðu fréttirnar. Barack Obama er frábær frétt og ekki síður upplífgandi fyrir and- ann var fréttin um hetjudáð Sullen- bergers flugmanns í þotunni sem brotlenti á Hudson-á. Hann gekk tvisvar um vélina til að fullvissa sig um að allir væru komnir út og fór svo síðastur frá borði. Alvöru hetja sem „axlaði ábyrgð“. ÞEGAR Ísland hrundi voru fyrir- ferðarmestar myndlíkingar um skip sem strandar. Hætta var á að við „soguðumst niður með bönkun- um“ og unnið var „björgunarstarf á strandstað“. Mun nútímalegra og eðlilegra í ljósi leiðandi ferða- máta hefði verið að líkja hrun- inu við flugslys. Við erum farþeg- ar í sömu vél og öll á leið á sama ákvörðunarstað. Það ætti að vera kappsmál flugfélagsins að öllum líði vel á ferðalaginu. ÞAÐ voru engar hetjur við stýrið þegar við hröpuðum. Þegar sjór- inn kom æðandi á móti okkur sagði flugstjórinn í kallkerfinu: Svona, þetta er ekkert! Hættið að horfa út um gluggann! Eftir brotlending- una hljóp flugstjórinn fyrstur frá borði, með súperfínu eftir launin sín, og síðan var liðinu á Saga Class smalað út og komið á þurrt. Ekki nóg með það. Vesalingunum á Economy Class, sem velkt ust um í stórsjónum og reyndu að halda sér í eitthvað, var sagt að þeir yrðu að borga Saga Class-miðana fyrir æðislega liðið. Ekki bara þessa ferð, heldur allar aðrar ferðir, bæði í fortíð og framtíð. ÞAÐ er ömurlegur díll að vera almennur farþegi á TF-HFF. NÚ, næstum fjórum mánuðum síðar, ættu farþegarnir að vera komnir á land. Fötin ættu að vera orðin þurr, einhverjir búnir að byggja skýli og einhverjar hald- bærar áætlanir uppi um að koma okkur af eyðieyjunni. Það er ekki þannig. Við velkjumst enn um í öldusköflunum og höfum ekki hugmynd um hvenær og þá hver komi að hífa okkur upp í ylvolga þyrlu. Við vitum bara það eitt að við þiggjum ekki aftur far með gamla flugstjóranum. Okkur lang- ar ekki aftur til að hanga hnípin fyrir aftan Saga Class-liðið vitandi að við borgum miðana þess. ÞESS vegna verður boðað til kosn- inga í vor. Þess vegna verður skipt um áhöfn. TF-HFF STÓRÚTSALA OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16 afsláttur www.utivistogsport.is Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.