Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 58
42 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Iceland Express-deild kvk
Valur-Keflavík 74-80 (43-48)
Stig Vals: Signý Hermannsdóttir 18 (27 frák., 10
varin), Kristín Óladóttir 14, Guðrún Baldursdóttir
13, Lovísa Guðmundsdóttir 12 (7 frák., 7 stoðs.),
Kristjana Magnúsdóttir 10, Þórunn Bjarnadóttir 7
(12 frák., 11 stoðs.).
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 18, Ingibjörg
Elva Vilbergsdóttir 14, Rannveig Randversdóttir
14, Halldóra Andrésdóttir 13, Pálína Gunnlaugs
dóttir 11 (5 stoðs.), Svava Ósk Stefánsdóttir 6 (8
stoðs., 7 frák.), Lóa Dís Másdóttir 2, Marín Rós
Karlsdóttir 2.
Hamar-Haukar 73-79 (37-35)
Stig Hamars: Lakiste Barkus 36 (12 frák.), Julia
Demirer 20 (12 frák.), Hafrún Hálfdánardóttir 6,
Íris Ásgeirsdóttir 6, Fanney Lind Guðmundsdóttir
4, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 1.
Stig Hauka: Slavica Dimovska 33 (4 stoðs.), Mon
eka Knight 13 (5 stoðs.), Kristrún Sigurjónsdóttir
11 (9 frák., 4 stoðs.), Helena Hólm 7, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 6 (11 frák.), María Lind
Sigurðardóttir 6, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Sara
Pálmadóttir 1.
Grindavík-Snæfell 68-81 (33-41)
Stig Grindavíkur: Helga Hallgrímsdóttir 18 (10
frák.), Íris Sverrisdóttir 13, Jovana Lilja Stefáns
dóttir 13, Petrúnella Skúladóttir 9, Berglind Anna
Magnúsdóttir 6, Ólöf Helga Pálsdóttir 4, Ingibjörg
Jakobsdóttir 3, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 2.
Stig Snæfells: Kristen Green 23 (11 frák., 7
stoðs.), Gunnhildur Gunnarsdóttir 20 (7 stoðs.),
Berglind Gunnarsdóttir 13, Sara Sædal Andrés
dóttir 10 (8 frák.), Sara Mjöll Magnúsdóttir 8,
Unnur Ásgeirsdóttir 5, Ellen Högnadóttir 2.
Eimskipsbikar kvenna
FH-Fram 29-27 (15-11)
Mörk FH: Ragnhildur Guðmundsdóttir 10,
Guðrún Tryggvadóttir 4, Gunnur Sveindóttir 4,
Ásdís Sigurðardóttir 4, Ebba Særun Brynjarsdóttir
3, Hildur Þorgeirsdóttir 3, Brina Íris Helgadóttir 1.
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 11, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 4, Karen Knútsdóttir 3, Pavla
Nevarilova 3, Marthe Sördal 2, Ásta Birna
Gunnarsdóttir 2, Sara Sigurðardóttir 1, Guðrún
Þóra Hálfdánsdóttir 1.
Fylkir-Haukar 27-33 (12-15)
Enski deildarbikarinn
Burnley-Tottenham 3-2 (3-0)
1-0 Robbie Blake (34.), 2-0 Chris McCann (73.),
3-0 Jay Rodriguez (88.), 3-1 Roman Pavlyu
chenko (118.), 3-2 Jermain Defoe (120).
*Tottenham mætir Man. Utd í úrslitaleik 1. mars.
HM í handbolta
A-riðill:
Austurríki-Rúmenía 20-40 (9-21)
Ungverjaland-Argentína 31-20 (17-8)
Slóvakía-Frakkland 9-15 (26-35)
*Nicola Karabatic skoraði 9 mörk fyrir Frakkland.
B-riðill:
Kúba-Suður Kórea 26-31 (13-17)
Svíþjóð-Kúveit 30-19 (17-9)
Spánn-Króatía 22-32 (11-18)
C-riðill:
Alsír-Rússland 28-29 (14-17)
Makedónía-Þýskaland 23-33 (14-13)
Pólland-Túnis 31-27 (16-11)
*Tomasz Tluczynski skoraði 11 mörk fyrir Pólland.
D-riðill:
Saudi-Arabía-Brasilía 24-26 (10-14)
Noregur-Serbía 26-27 (10-12)
Egyptaland-Danmörk 17-26 (7-12)
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Valur Ingimundarson,
þjálfari Njarðvíkur, kom mörgum
á óvart með því að skella fjórtán
ára syni sínum inn í byrjunarliðið í
fyrsta leiknum á nýju ári en strák-
urinn, Valur Orri, hefur staðið sig
vel í krefjandi hlutverki leikstjórn-
anda. Valur hefur gefið fjölmörg-
um ungum og efnilegum strákum
tækifæri í vetur, tækifæri eins og
hann fékk sjálfur í Njarðvík fyrir
þremur áratugum.
Valur Orri Valsson varð yngsti
leikmaður úrvalsdeildar karla til
þess að spila, byrja inn á og skora
þegar hann spilaði sinn fyrsta leik
í vetur. Valur var 14 ára, 6 mán-
aða og 25 daga þegar hann spil-
aði á móti FSu 9. janúar 2009 og
bætti þar með met Pavels Ermol-
inskij sem var 14 ára, 9 mánaða og
17 daga þegar hann spilaði sínar
fyrstu mínútur í úrvalsdeild í leik
með Skallagrími gegn KR 2001.
Valur segir aðstæður í Njarð-
víkurliðinu, meiðsli og leikbönn
hafa kallað á að hann fór að taka
strákinn sinn með á æfingar milli
jóla og nýárs. „Það var enginn bak-
vörður á æfingum og ég fékk Val
til þess að fara með mér á æfingu.
Hann stóð sig bara vel og ég ákvað
bara að nota hann í leiknum,“ segir
Valur en Valur yngri spilaði í 16
mínútur í fyrsta leiknum á móti
FSu og skoraði tvö stig.
Fær mikinn stuðning frá liðinu
„Hann byrjaði inn á og stóð sig vel.
Hann hefur spilað þrjá leiki með
okkur og hefur staðið sig rosalega
vel í þeim. Hann sýnir mikla yfir-
vegun og missir mjög lítið bolt-
ann. Hann fær gríðarlegan stuðn-
ing frá Loga, Frikka, Magga og
öllum strákunum,“ segir Valur en
Valur hefur hækkað sig í stigum
og framlagi með hverjum leik og
var nú síðast með 8 stig og 3 stoð-
sendingar í sigri á Stjörnunni.
Valur er líka ánægður með
að tilkoma Vals Orra losar Loga
Gunnarsson og Magnús Þór Gunn-
arsson við að koma upp með bolt-
ann. „Hann hefur ótrúlegan leik-
skilning miðað við svona ungan
krakka,“ segir Valur.
Valur Orri er ekki eini kornungi
leikmaður Njarðvíkur í vetur þó
svo að hann sé sá yngsti. Fimm
aðrir strákar, 17 ára eða yngri,
hafa fengið að spila. „Ég hef gefið
öllum ungu strákunum tækifæri og
flestir hafa fengið töluvert mikil
tækifæri,“ segir Valur og þetta
hefur ekkert með það að gera að
hann sé sonur hans.
Hefur hjálpað okkur
„Hann hefur hjálpað okkur og
meðan hann gerir það þá fær hann
tækifæri. Þetta er ekki af því að
hann er pabbastrákur,“ segir Valur
í léttum tón. Hann passar þó alveg
ágætlega upp á strákinn sinn.
„Ég er tilbúinn á bekknum að
kippa honum út af eins og skot ef
það eru mikil læti,“ segir Valur
og hann hefur samt séð sáralítið
stress hjá stráknum sínum.
Fékk sjálfur tækifærið í Njarðvík
Valur Orri er eins og áður hefur
komið fram leikstjórnandi Njarð-
víkurliðsins en pabbi hans viður-
kennir að leikni hans með boltann
liggi kannski ekki í genunum.
„Mér finnst svolítið skrýtið
hvað hann er góður í að „dripla“
bolta miðað við það að ég gat ekki
„dripl að“ og móðurbróðir hans,
Kristinn Friðriksson, var enn þá
verri en ég. Hann hefur verið með
boltann í höndunum alla tíð, hann
er nánast jafnhentur og það hjálp-
ar honum mikið,“ segir Valur sem
lék sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík
í Kennaraháskólanum 18. október
1979.
„Ég var sautján ára og þá var
ég tiltölulega nýbyrjaður í körfu-
bolta og kunni nánast ekkert. Ég
fékk tækifæri í Njarðvík á sínum
tíma og það ýtti manni áfram.
Fyrir mig var það mikil hvatning
að fá tækifærið og ég held að það
sé það sama fyrir strákana í Njarð-
vík í dag,“ segir Valur sem er lang-
stigahæsti leikmaður úrvalsdeild-
ar karla en hann skoraði 7.355 stig
í 400 úvalsdeildarleikjum, eða 18,4
að meðaltali í leik.
Þetta er í þriðja sinn sem Valur
gerist þjálfari Njarðvíkur í hin
tvö skiptin, 1986-87 og 1993-94, þá
skilaði hann Íslandsmeistaratitli á
fyrsta ári. Valur vissi þó alveg að
hann væri að fara inn í allt annað
dæmi nú.
Ánægja með að guttarnir spili
„Ég er ekkert að byrja í þessu og
vissi alveg að þetta ár yrði erfitt.
Þetta er allt meðvitað hjá okkur og
við erum ekki að stressa okkur yfir
einu eða neinu. Það eru allir með
okkur í þessu í Njarðvík og það
hefur meira að segja verið klappað
fyrir okkur þegar við höfum tapað.
Njarðvíkingar styðja svo sannar-
lega við sitt lið í dag,“ segir Valur
og það hefur verið tekið mjög vel í
það að hann sé að nota framtíðar-
leikmenn félagsins.
„Fólk er mjög ánægt með það að
sjá guttana sína fá að spila. Þeir fá
mikinn stuðning þegar þeir koma
inn á völlinn. Með heppni gætum
við komist í Höllina og það er eitt-
hvað sem enginn reiknaði með
þegar allir leikmenn voru að fara
frá liðinu,“ segir Valur.
Næsti leikur er undanúrslitaleik-
ur bikarsins á sunnudaginn þegar
liðið heimsækir Njarðvíkinginn
Teit Örlygsson og lærisveina hans
í Stjörnunni.
Höllin væri algjör bónus
„Við erum að taka tímamótaár
hjá Njarðvík og að komast í Höll-
ina er algjör bónus ofan á öll plön
hjá okkur. Okkar plön fyrir þenn-
an vetur hafa gengið ágætlega og
við vitum alveg í hvaða stöðu við
erum. Við heitum enn þá Njarð-
vík þó að við séum með kornungt
lið og það eru allir rosalega hissa
þegar Njarðvík tapar,“ segir Valur
og bætir við.
„Við erum litlir og ungir og
mér finnst við búnir að gera ótrú-
lega hluti miðað við að hafa spilað
meirihluta af vetrinum leikstjórn-
endalausir. Við eigum kornunga
leikstjórnendur og Frikki er nán-
ast eini stóri maðurinn í liðinu. Það
er ekki alltaf hægt að vera á toppn-
um. Fólk er mjög ánægt með það
að það sé verið að endurnýja liðið.
Þessir strákar koma til með að búa
að þessum vetri,“ segir Valur að
lokum. ooj@frettabladid.is
Ekki af því að hann er pabbastrákur
Valur Orri Valsson er yngsti leikmaður til að spila, byrja inn á og skora í úrvalsdeild karla en hann var
aðeins 14 ára, 6 mánaða og 25 daga þegar faðir hans skellti honum beint í byrjunarliðið í fyrsta leik ársins.
Valur Orri er einn fjölmargra framtíðarmanna Njarðvíkur sem faðir hans hefur gefið tækifæri í vetur.
JAFNHENTUR Valur Orri Valsson hefur
haft boltann milli handanna frá fyrstu
tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VALUR ORRI OG VALUR Feðgarnir, Valur Orri Valsson og Valur Ingimundarson, saman
með boltann á milli sín FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Línur eru örlítið
farnar að skýrast í riðlakeppni
HM í handbolta sem fram fer
þessa dagana í Króatíu en
næst síðasta umferðin var
leikin í gær. Þar bar hæst
stórsigur Króatíu gegn
Spáni í b-riðli. Lokaum-
ferðin fer fram í dag
og kvöld þar sem í ljós
kemur hvaða þrjú lið úr
riðlunum fjórum kom-
ast áfram í milliriðla.
Króatar byrjuðu af
miklum krafti gegn
Spánverjum í gær
og voru fljótt komn-
ir með 2-7 forystu.
Heimamenn gáfu í
rauninni aldrei eftir í
leiknum og léku Spán-
verjana grátt með
gríðarlega öflugum
varnarleik, frábærri
markvörslu og hröð-
um sóknarleik. Stað-
an í hálfleik var 11-18 Króöt-
um í vil. Heimamenn héldu
uppteknum hætti í
síðari hálfleik og
bættu í hraðann
og Spánverjar
áttu engin svör
og svo fór að
Króatar
unnu tíu
marka sigur, 22-32.
Króatar sitja á
toppi b-riðils ásamt
Svíum en bæði lið hafa
unnið alla fjóra leiki sína hingað
til á mótinu og mætast í kvöld í
leik sem sker úr um hvort liðið
endar í toppsætinu. Spánverjar
og Suður-Kóreumenn mætast í
úrslitaleik um þriðja sæti riðils-
ins.
Í a-riðli eru Frakkar í efsta
sæti eftir sigur gegn Slóvakíu í
gær en Frakkar hafa unnið alla
fjóra leiki sína og mæta Ungverj-
um í úrslitaleik um efsta sætið í
kvöld. Slóvakía og Rúmenía mæt-
ast í úrslitaleik um þriðja sætið.
í c-riðli Þjóðverjar efstir og
Pólland í öðru sæti en liðin mæt-
ast í kvöld í baráttu um efsta
sætið í kvöld. Makedónar og
Rússar mætast í úrslitaleik um
þriðja sætið.
Í d-riðli eru Danir og Norð-
menn komnir áfram í milliriðla
en liðin mætast í úrslitaleik um
efsta sætið í kvöld. Brasilíumenn,
Serbar og Egyptar berjast um
þriðja sætið. - óþ
Næstsíðasta umferð riðlakeppninnar á HM í handbolta fór fram í gær:
Króatar rassskelltu Spánverja
FÖGNUÐUR Króatinn Petar
Metalic fagnar í leikslok í
gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Keflavík og Haukar
héldu áfram sigurgöngu sinni í
Iceland Express-deild kvenna í
gær og þá unnu nýliðar Snæfells
sinn annan leik í röð þegar liðið
vann öruggan sigur í Grindavík.
Nú verður deildinni skipt í
tvennt, Haukar, Keflavík, Hamar
og KR verða í efri hlutanum en
Valur, Grindavík, Snæfell og
Fjölnir í þeim neðri.
Haukar unnu tólfta deildarleik-
inn í röð þegar liðið vann Hamar
73-79 í Hveragerði í fyrsta leik
Moneku Knight.
Keflavík vann sinn sjötta leik í
röð þegar vann Val, 80-74, í Vod-
afone-höllinni. Með því að vinna
68-81 sigur í Grindavík vann
kvennalið Snæfells í fyrsta sinn
tvo leiki í röð í efstu deild en liðið
vann stórsigur á Fjölni í umferð-
inni á undan. - óój
Iceland Express deild kvenna:
Snæfell vann í
Grindavík
27 FRÁKÖST EKKI NÓG Signý Hermanns-
dóttir átti teiginn gegn Keflavík en það
dugði ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Hafnarfjarðarliðin FH
og Haukar komust í undanúrslit
Eimskipsbikars kvenna í hand-
bolta í gær. FH vann Fram 29-
27 í Kaplakrika og Haukar unnu
Fylki 27-33 í Fylkishöll.
Áður voru KA/Þór og Stjarnan
búin að tryggja sér farseðilinn í
undanúrslitin. - óþ
Eimskipsbikar kvenna:
FH og Haukar í
undanúrslitin
FRÁBÆR Ragnhildur Guðmundsdóttir
skoraði tíu mörk í sigri FH gegn Fram í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR