Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 8
8 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Allt við suðumark
Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 3-7, 110 Reykjavík
sími 515 5000, www.oddi.is
Þeir lögreglumenn sem stóðu vaktina lengst við
Alþingishúsið í fyrradag og aðfaranótt miðviku-
dagsins voru að í allt að tuttugu klukkustundir, að
sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Þetta er ómanneskjulegt álag. En við höfum
það hlutverk að standa þarna og sinna okkar störf-
um,“ segir lögreglustjóri. „Við reynum að þjálfa
okkar mannskap þannig að hann sé undir þetta
búinn. Við reyndum að hvíla menn eftir föngum,
þannig að enginn væri allan tímann í fremstu línu.
Við eigum ekki að þurfa að fara yfir tólf til fjórtán
tíma vaktir.“
Spurður um aðstoð við lögreglumenn eftir að
þeir hafa staðið vaktina við aðstæður eins og und-
anfarna daga segir Stefán það einn stærsta þáttinn
í stjórnun í mannfjöldastjórnunarhópi að stjórn-
andinn og mennirnir í hópnum hafi til að bera
þann styrk og þá sjálfstjórn sem til þurfi hverju
sinni. „Ef eitthvað óvenjulegt gerist þá er unnið
á því eftir á,“ útskýrir Stefán. „En það er hluti af
þjálfun þessara lögreglumanna að þeir missi ekki
stjórn á sér, fari ekki fram úr sjálfum sér og fylgi
skýrt þeirri línu sem mörkuð hefur verið og hlýði
þeim fyrirmælum sem gefin eru um valdbeitingu
og annað.“
Stefán segir að eftir störf við erfiðar aðstæð-
ur séu bæði fyrir hendi hefðbundin áfallahjálp og
félagastuðningur við lögreglumenn.
„Menn draga lærdóm af hverju verkefni og laga
það sem betur má fara. Það er einn liðurinn af
mörgum í þessu starfi að vinna úr þessari erfiðu
reynslu fyrir hvern og einn lögreglumann.“
Spurður um hvort einhverjar ráðstafanir séu
fyrir hendi hjá lögreglu fari starfsaðstæður versn-
andi á næstu dögum vegna stöðunnar í samfélag-
inu segir Stefán svo vera.
„Það er ljóst að þetta kallar á aðstoð frá öðrum
lögregluliðum. Það er okkar helsta úrræði. Þá
gerum við breytingar á verkefnum lögreglumanna
og færum til hliðar verk sem mega bíða. Hið góða
við lögregluliðin í landinu er að þau vinna sem ein
heild. Því eru allir boðnir og búnir til að senda fólk
til aðstoðar þar sem er aflögufært.“
Stefán segir ekki vera til umræðu nú að auka
búnað lögreglunnar. - jss
Lögreglustjóri segir störf við erfiðar aðstæður kalla á áfallahjálp og stuðning:
Þetta er ómanneskjulegt álag
TRUMBURNAR SLEGNAR Mótmælendur mættu með ýmis verkfæri
sem þeir nýttu til að valda sem mestum hávaða.
AÐSÚGUR AÐ FORSÆTIS-
RÁÐHERRA Þegar mót-
mælendur fréttu af Geir H.
Haarde forsætisráðherra í
Stjórnarráðinu færðust mót-
mælin þangað. Lögreglu-
menn fylgdu ráðherra út úr
Stjórnarráðinu og brugðust
við af hörku þegar mót-
mælendur létu ófriðlega við
bifreið ráðherra. Eftir um
klukkustundar mótmæli
við Stjórnarráðið fluttust
mótmælin svo aftur á Aust-
urvöll. Í Dómkirkjunni fór
útför fram og af tillitssemi
við aðstandendur frestuðu
mótmælendur aðgerð-
um þar til útför var lokið.
Mótmælin hófust aftur með
því að mótmælendur sungu
Öxar við ána og svo hélt
slátturinn áfram.
„Ég er hér að mótmæla þeim
hroka sem ríkisstjórnin sýnir
endalaust,“
segir Páll
Gestsson mót-
mælandi.
„Friðsöm mót-
mæli ganga
ekki endalaust.
Mér finnst
kominn tími til
að láta þing-
menn heyra það og leiðin til þess
er að hafa háreysti og læti svo
þingmenn heyri.“
Hroki ríkis-
stjórnarinnar
„Ég er búin að segja ríkisstjórn-
inni upp. Nú eru liðnir hundrað
dagar frá hrun-
inu og lítið sem
ekkert hefur
gerst, óhæf-
an viðgengst
enn þá. Þetta
er í fyrsta
skipti sem ég
mótmæli. Mér
blöskraði svo
atgangur lögreglunnar í gær að
nú er ég komin,“ segir Berglind
Birgisdóttir.
Meðvitundar-
laus ríkisstjórn
„Ég er hér af sömu ástæðum og
fólkið sem hefur safnast saman
undanfarna
hundrað daga,“
segir Kristján
Skúlason. „Við
viljum koma
ríkisstjórninni
burt, fá kosn-
ingar og leyfa
fólkinu að ráða
hvaða ákvarð-
anir verða tekn-
ar. Ef það þarf byltingu þá verður
svo að vera. Ég held því áfram að
mæta þar til eitthvað gerist.“
Við viljum rík-
is stjórnina burt
„Ég er hér til að heimta kosn-
ingar. Ég kaus Samfylkinguna á
sínum tíma og mér finnst að það
hafi eiginlega verið vörusvik. Ég
er með pottlok-
ið og sleifina í
skólatöskunni
þannig að þegar
ég er ekki í
skólanum þá er
ég hér að mót-
mæla. Ég held
að þessi mót-
mæli séu það
áhrifaríkasta
sem við höfum gert hingað til,“
segir Jónína Borgþórsdóttir. - ovd
Vörusvik
SKÝR SKILABOÐ Mótmælendur kröfðust
þess að ríkisstjórnin segði af sér.
ALÞINGISHÚSIÐ VARIÐ Eggjum og málningu var kastað í lögreglumenn sem stóðu vörð um Alþingishúsið í gær auk þess sem einhverjir mótmælendur hræktu á lögreglu-
menn. Mótmælin fóru lengst af fram við Alþingishúsið og var talið að á tímabili hafi um tvö þúsund manns verið á svæðinu.
FRÁ AUSTURVELLI Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk
liðstyrk frá öðrum lögregluembættum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N