Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 52
36 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Tólfta hljóðversplata U2 kemur
út í byrjun mars en fyrsta lagið
af henni „Get on your boots“
er byrjað að heyrast. Lagið
er hressandi rokkpopp drif-
ið áfram af gítarriffi og venst
ágætlega. Þá hefur umslag nýju
plötunnar verið opinberað. það
er eftir japanska listamanninn
Hiroshi Sugimoto, heldur grá-
mygluleg mynd af sjóndeild-
arhring en rímar vel við titil
plötunnar, No line on the horiz-
on. Umslagið er nánast eins og
á minimalískri plötu Richards
Chartier og Taylors Deupree,
Specification. Fifteen, sem kom
út fyrir nokkrum árum. Félagarnir ætla þó ekki að kæra.
U2 setja í gang
UMSLAG NÝRRAR PLÖTU U2
Engin lína á sjóndeildarhringnum.
Friðrik Ómar og Regína Ósk
voru heiðruð fyrir hönd Euro-
bandsins í sannkallaðri Euro-
vision-veislu sem haldin var
í München á laugardaginn.
Þessi árlega árshátíð Eur-
o vision-nörda stóð yfir í heilan
dag og var haldin í glæsileg-
um salarkynnum Wirtshaus
zum Isartal. Fólk alls stað-
ar að úr Evrópu mætti til að
berja Euro vision-stjörnurnar
augum en yfir tvö hundruð
manns fylltu salinn.
Eins og Fréttablaðið
greindi frá fyrir jól var
tvíeykið tilnefnt til sjö
verðlauna hjá aðdá-
endavefsíðu Eurov-
isionkeppninnar
og fór síður en svo tómhent
heim. Var meðal annars valin
besta hljómsveitin í síðustu
Eurovisionkeppni. Og fengu
verðlaunagrip því til stað-
festingar frá framkvæmda-
stjóra ESC Radio, Matthiasi
Petermann. En ESC Radio er
útvarpsstöð sem er alfarið
tileinkuð þessari vinsælu en
umdeildu lagakeppni.
Eurobandið var augljóslega
hugsað sem stjarna kvöldsins
því sjálf Sandra Kim hitaði
upp fyrir íslensku tónlistar-
mennina sem stigu síðust á
svið. Regína lét óléttuna ekki
aftra sér heldur söng tvíeyk-
ið vinsæl Eurovisionlög á borð
við My Number One, Wild
Dances og Eurovisionslagar-
ann A-Ba-Ni-Bi. Að sjálfsögðu
fékk svo íslenska framlagið,
This is my Life, að fljóta með
við mikinn fögnuð viðstaddra
enda naut lagið mikilla vin-
sælda meðal evrópskra Eur-
ovisionspekinga. -fgg
Eurobandið verðlaunað> VILL FARA AÐ LEIKA
Kryddpían fyrrverandi Emma Bunton hefur
hug á að reyna fyrir sér í Holly-
wood, í von um að komast aftur
í sviðsljósið. Söngkonan er nú
þegar farin að sækja leiklistar-
tíma til að undirbúa sig, en eftir
að Spice Girls lagði upp laup-
ana hefur hún einnig reynt
fyrir sér sem sjónvarpskynn-
ir. Emma segist vera tilbúin að
leggja söngferilinn á hilluna
fyrir leiklistina þrátt fyrir að það
krefjist mikils tíma og vinnu.
Leikkonan Kate Winslet ætlar að
semja þakkarræðu fyrir Bafta-
verðlaunin sem verða afhent í
næsta mánuði. Ástæðan er tilfinn-
ingarík og algjörlega óundirbúin
ræða sem hún hélt á Golden Globe-
hátíðinni á dögunum. „Ég ætti að
hafa ræðu tilbúna vegna þess að á
Golden Globe hélt ég að ég myndi
ekki vinna,“ sagði Winslet. Winslet
er tilnefnd til Bafta-verðlaunanna
fyrir hlutverk sín í Revolutionary
Road og The Reader.
Winslet með tilbúna
ræðu á Bafta
KATE WINSLET Leikkonan Kate Winslet
ætlar að hafa þakkarræðuna tilbúna á
Bafta-verðlaununum.
Athafnamaðurinn Steinar
Jónsson leitar þessa dagana
að arftökum rappsveitar-
innar vinsælu Quarashi.
Hann hefur stofnað hljóð-
verið Stúdíó Róm ásamt
félögum sínum og vonast til
lokka þangað hæfileikaríka
tónlistarmenn, þar á meðal
sjóðheita rappara.
„Þetta er konsept sem ég er mjög
svo til í að endurnýja. Þeir sjálfir
hafa sagt að það hafi engin hljóm-
sveit komið eins og Quarashi eftir
að þeir hættu, enda eru þeir með
sérstakt „sánd“,“ segir hinn sautj-
án ára gamli Steinar Jónsson sem
nú leitar að hæfileikaríkum tónlist-
armönnum til að prófa sig í hljóð-
veri hans. Steinar játar að hafa
verið mikill aðdáandi þegar hann
var yngri. „Ég keypti allar plöturn-
ar þeirra en reyndar fékk ég aldrei
að mæta á tónleika með þeim því ég
var of ungur.“
Þrátt fyrir aldurinn hefur Stein-
ar verið iðinn við kolann undanfar-
in ár. Hann hélt tónlistarhátíðina
Iceland Music Festival á Tunglinu
í fyrra þar sem ungar hljómsveit-
ir fengu að spreyta sig og einnig
gaf hann út fyrstu plötu rapparans
Dabba T.
Í framhaldinu stofnaði hann
útgáfufyrirtækið MediaStream
Records og var um tíma umboðs-
maður nokkurra tónlistarmanna.
Steinar ætlaði á síðasta ári að
sýna söngleik byggðan á söngva-
myndinni vinsælu High School
Musical en hætti við á síðustu
stundu. „Ég held að það sé ekki
nógu stór markaður fyrir þetta á
Íslandi. Það var búið að þýða söng-
leikinn og semja um öll leyfin en
síðan gekk dæmið ekki upp,“ segir
hann.
Þeir sem hafa áhuga á að reyna
fyrir sér í tónlistinni með hjálp
Steinars geta sent honum póst á net-
fangið hamraborg@mediastream-
records.com. freyr@frettabladid.is
Leitar að arftökum Quarashi
Ísland er stundum ekki alveg jafn
stórt og íbúar þess vilja láta. Það
sannast kannski best í spænsku
myndbandablaði.
Starfsmenn þess hlupu aðeins á
sig fyrir skömmu. Íslenska kvik-
myndin Strákarnir okkar kom
út á spænskar myndbandaleigur
fyrir skömmu. Myndin, sem er
í leikstjórn Júlíusar Kemp, fjall-
ar um knattspyrnukappann Óttar
Þór sem leikur með meistaraliði
KR. Hann kemur út úr skápnum
í blaðaviðtali og í kjölfarið hefst
kolsvört kómedía, Óttar byrjar að
spila með hommaliði og myndin
fjallar um ástalíf þessarar fyrr-
um hetju Vestubæjarstórveldis-
ins.
Spænska myndbandablaðið
tæpir aðeins á söguþræði mynd-
arinnar og birtir opinbert vegg-
spjald hennar. Og þetta væri
eflaust ekki í frásögur færandi
ef ekki væri fyrir litla mynd sem
skotið er með í umfjöllun blaðs-
ins.
Þar gefur nefnilega hvorki að
líta Björn Hlyn Haraldsson né
aðra leikendur myndarinnar held-
ur þá Loga Geirsson og Ásgeir
Örn Hallgrímsson, silfurdrengi
íslenska landsliðsins í handbolta.
Vissulega eru leikmennirnir í
innilegum faðmlögum eftir ein-
hvern frækinn sigur landsliðs-
ins en þeir Logi og Ásgeir koma
hvergi fyrir í myndinni. Svo vitað
sé. Sé orðinu „Strákarnir okkar“
slegið inn á myndaleit google-leit-
arvélarinnar skýrist málið hins
vegar því myndin af silfurdrengj-
unum er ein af þeim fyrstu sem
koma upp þegar niðurstöðurnar
birtast. Svo er náttúrulega spurn-
ing hvort um sé að ræða gáska-
fullan hrekk spænskra blaða-
manna sem máttu horfa upp á
„strákana okkar“ rúlla spænska
liðinu upp í undanúrslitaleik
Ólympíuleikanna síðasta sumar.
- fgg
Landslið tengt hommamynd
SKONDIÐ Þeir Logi Geirsson og Ásgeir
Örn fagna innilega sigri íslenska lands-
liðsins. Þeir hafa þó vafalítið ekki búist
við því að myndin yrði bendluð við
hommakvikmynd.
ÓTTAR OG UNNUSTINN Íþróttamaðurinn Óttar kemur óvænt út úr skápnum. Hann er
hins vegar knattspyrnumaður en ekki handboltakappi eins og spænskt myndbanda-
blað vill meina.
Í STÚDÍÓ RÓM Steinar Jónsson ásamt félögum sínum Óskari Axeli Óskarssyni og
Tóna í nýja hljóðverinu, Stúdíó Róm. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÁT AÐ LOKNUM TÓNLEIKUM Regína Ósk
og Friðrik Ómar tóku við verðlaununum
úr hendi Matthíasar Peterman, fram-
kvæmdastjóra ESC Radio.