Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 56
40 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson, sem náð
hefur frábærum árangri í þjálfun kvennaliða undanfarin ár,
söðlaði um í desember. Hætti hjá Fylki og samdi við þýska
C-deildarliðið Kassel þar sem hann þjálfar meistaraflokk hjá
körlum í fyrsta skipti.
Byrjunin hjá Aðalsteini lofar góðu en liðið hefur unnið
fjóra af fimm fyrstu leikjunum undir hans stjórn. Fimmta leikn-
um lyktaði með jafntefli og því er Aðalsteinn enn ósigraður í
þýska boltanum. Kassel situr í fjórða sæti í deildinni, þrem
stigum frá öðru sæti og níu stigum frá toppnum.
„Nei, það er ekki enn byrjað að kalla mig kónginn frá
Kassel en ég set það inn í nýja samninginn,“ sagði
Aðalsteinn Reynir léttur við Fréttablaðið í gær. „Það
er búið að ganga mjög vel fyrir utan jafnteflið sem
var hálfgert klúður. Við höfum lagað vörnina mikið og
erum að gera færri tæknifeila. Þetta er allt að koma.“
Aðalsteinn lætur liðið æfa meira en það var að gera
og hann segir leikmenn bregðast vel við því sem hann
er að predika. „Ég er mjög sáttur við þeirra framlag.
Annars hefur margt verið að koma mér á óvart hérna. Bæði gæðin
á deildinni og hversu sterkir leikmennirnir eru. Flest hér hefur farið
fram úr mínum björtustu vonum,“ sagði Aðalsteinn en aðeins
eitt lið í deildinni fer upp. Þrátt fyrir það eru enn möguleikar að
Kassel komist upp enda er fjárhagur margra liða í Þýskalandi
ekki góður og Kassel gæti hagnast á því fari einhver lið í þrot.
Aðalsteinn er búinn að koma sér vel fyrir í fínni íbúð og hann
segir lífið leika við sig í nýju landi.
„Þetta er mjög fínt allt saman. Allt vel skipulagt,
félagið flott og vel séð um mig. Þetta er 250 þúsund
manna borg og allar aðstæður eins og best verður
á kosið. Ég er því bara hamingjusamur en ekki
í þunglyndinu heima,“ sagði Aðalsteinn sem
hefur sjö atvinnumenn innan sinna raða og
svo sjö hálfatvinnumenn. „Það er stefnt að því
að komast upp í efstu deild á fjórum árum. Það
eru peningar hjá félaginu og fari liðið upp er von
á fleirum,“ sagði hamingjusamur Aðalsteinn að
lokum.
AÐALSTEINN REYNIR EYJÓLFSSON: BYRJAR FRÁBÆRLEGA MEÐ ÞÝSKA C-DEILDARLIÐIÐ KASSEL
Ekki byrjað að kalla mig kónginn frá Kassel
HANDBOLTI N1-deild karla í hand-
bolta hefst að nýju í kvöld eftir
langt frí en þá fer fram heil
umferð og hefjast allir leikirn-
ir kl. 19.30. Hinir stórefnilegu
Rúnar Kárason hjá Fram og Aron
Pálmarsson hjá FH verða í eld-
línunni þegar félögin tvö mæt-
ast í Krikanum en báðir hafa
þeir samþykkt að ganga í
raðir þýskra félaga eftir
yfirstandandi tímabil,
Rúnar til Füchse Berlin og Aron
til Kiel.
„Það er mikil eftirvænting að
byrja aftur og ég held að við séum
bara með alla leikmennina heila
heilsu og Viggó þjálfari er búinn
að tala um að hann verði í vand-
ræðum með að velja liðið, í fyrsta
skiptið í vetur. Við erum búnir að
vera að spila ágætlega í vetur en
samt ekkert frábærir og ég tel
okkur enn eiga slatta inni,“ segir
Rúnar.
Fram og FH gerðu 28-28
jafntefli í fyrri leik félag-
anna í Framhúsinu.
„Leikurinn í Framhúsinu
var mjög jafn og við lentum
satt best að segja í miklu
basli með FH-ingana. FH-
ingarnir komu á óvart til að
byrja með en svo fóru liðin
kannski að læra aðeins á þá
en þeir eru engu að síður með
hörkulið og hafa líka verið að
styrkja sig mikið,“ segir
Rúnar.
FH-ingar hafa
notað fríið vel og
fengið til sín
landsliðs-
manninn
Bjarna
Fritzson og hægri skyttuna efni-
legu Hermann Björnsson frá
Stjörnunni og verða þeir báðir
með í kvöld.
„Það er óhætt að segja að það
sé mikil spenna í mannskapnum
eftir í raun annað undirbúnings-
tímabil þar sem við erum ekkert
búnir að spila í fimm vikur. Við
mætum hins vegar á allt öðrum
forsendum til leiks núna held-
ur en í upphafi móts þar sem við
vitum alveg hvað við getum gert
gegn hinum liðunum í deildinni
og höfum því sett okkur ný
markmið. Við erum
líka búnir að styrkja
leikmannahópinn
með tveimur mjög
góðum leikmönn-
um sem hafa
verið að koma
ekkert smá vel
út á æfingum
og smellpassa báðir inn í okkar
leik,“ segir Aron Pálmarsson sem
er klár eftir að hafa meiðst á nára
á æfingarmóti með landsliðinu í
byrjun janúar.
„Ég tognaði eitthvað aðeins en
er alveg orðinn hundrað prósent
klár og við erum búnir að nota
tímann vel og æfa af krafti og
erum allir í frábæru formi. Við
gerðum jafntefli við Fram í fyrri
leiknum en okkur fannst við eiga
meira skilið út úr þeim leik og við
hræðumst ekkert lið í deildinni.
Við förum bara í alla leiki til þess
að vinna þá, það er ekkert flókið,“
segir Aron. omar@frettabladid.is
Uppgjör efnilegustu leikmannanna
Topplið Fram heimsækir nýliða FH í kvöld en innan raða félaganna eru tveir efnilegustu handknattleiks-
menn landsins, Rúnar Kárason hjá Fram og Aron Pálmarsson hjá FH, sem halda brátt báðir til Þýskalands.
Skyttan örvhenta hjá Fram,
Jóhann Gunnar Einarsson, gæti
verið á leið frá Fram. Svissneska
félagið Kadetten Schaffhausen
og þýska B-deildarliðið Aue hafa
borið víurnar í Jóhann sem og
þýska C-deildarliðið Kassel.
Jóhann segist
reikna með því að
kíkja á aðstæður hjá
einhverjum félögum
strax í febrúar og stefnan sé
að komast út næsta sumar. Daníel
Berg Grétarsson, fyrrum Framari, er
aftur á móti líklega á leið til Kassel eftir
að hafa skoðað aðstæður þar nýlega.
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Kári
Árnason hefur verið lánaður frá
AGF til Esjberg út þessa leiktíð.
Hjá Esbjerg hittir Kári fyrir Eyja-
manninn Gunnar Heiðar Þorvalds-
son.
Kári hefur verið mikið meiddur
og ekki gengið sem skyldi að vinna
sér sæti í liði AGF og því var
ákveðið að senda hann til Esbjerg
þar sem hann fær að spila.
Forráðamenn Esbjerg fagna lið-
styrknum en liðið er í mikilli fall-
baráttu. - hbg
Kári Árnason:
Lánaður frá
AGF til Esbjerg
KÁRI ÁRNASON Fær meira að spila
næstu vikurnar. MYND/OLE NIELSEN
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Wil-
son Palacios hefur ákveðið að
yfirgefa Wigan og ganga í raðir
Tottenham og er þegar búinn að
gangast undir læknisskoðun og
ná samkomulagi um fimm ára
samning við Lundúnafélagið, en
aðeins á eftir að fá atvinnuleyfi
leikmannsins samþykkt hjá ensku
úrvalsdeildinni. Talið er að kaup-
verðið sé á bilinu 12-14 milljónir
punda en Palacios kom til Wigan
fyrir ári síðan á eina milljón
punda.
Hinn 24 ára gamli Palacios
hefur vakið verðskuldaða athygli
fyrir frábæra spilamennsku með
Wigan í vetur og verið orðaður
við stórlið á borð við Manchester
United og Real Madrid og knatt-
spyrnustjórinn Harry Redknapp
hjá Tottenham er því afar ánægð-
ur með nýja leikmanninn.
„Palacios er leikmaður sem
mér líkaði mjög vel við um leið
og ég sá hann fyrst spila og ég
bind vonir við að hann eigi eftir
að verða enn betri í framtíðinni
fyrir Tottenham. Hann mun koma
með mikla baráttu inn í liðið og
hann er mjög vinnusamur og
lokar svæðum vel og er einmitt sá
maður sem okkur vantar,“ segir
Redknapp.
Redknapp er þekktur refur á
leikmannamarkaðnum og sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum í gær
er hann hvergi nærri hættur að
kaupa í janúar-félagsskiptaglugg-
anum. Redknapp er sagður vera
búinn að leggja fram fyrirspurn
til Inter um möguleikann á að fá
til sín varnarmennina Marco Mat-
erazzi, Nicolas Burdisso, miðju-
manninn Patrick Vieira og sókn-
armanninn Mario Balotelli. - óþ
Tottenham gekk í gærdag frá kaupunum á Wilson Palacios frá Wigan:
Palacios í raðir Tottenham
PALACIOS Í leik með Wigan gegn
Tottenham í byrjun janúar.
NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Vefur norska sjón-
varpsins TV2 segist hafa heimild-
ir fyrir því að Þórir Hergeirsson
verði kynntur sem nýr lands-
liðsþjálfari Evrópu- og Ólympíu-
meistara Noregs á næstu dögum.
Þórir tekur við af Marit Brei-
vik sem hefur stýrt liðinu í fjór-
tán ár en Þórir hefur verið henni
til aðstoðar síðustu ár. - óþ
TV2 í Noregi í gær:
Þórir tekur við
af Breivik
RÚNAR KÁRASON (FRAM)
Fæddur: 24. maí 1988
Hæð: 194 sm.
Þyngd: 105 kg.
Aron um Rúnar: „Rúnar er búinn að eiga frábært tímabil og hann reyndist okkur
mjög erfiður í fyrri leiknum í Framhúsinu þar sem hann setti fimmtán „slummur“.
Hann er gífurlega kraftmikill og frábær skytta og við þurfum að reyna að mæta
honum framarlega til að stoppa hann,“ segir Aron um Rúnar.
ARON PÁLMARSSON (FH)
Fæddur: 19. júlí 1990
Hæð: 193 sm.
Þyngd: 95 kg.
Rúnar um Aron: „Það er lykilatriði ef þú ætlar að vinna FH að stoppa Aron því
hann er í hörkuformi strákurinn. Hans helsti kostur er að það er ekkert sem hann
getur ekki gert og veikleikar hans eru fáir. Hann er frábær skotmaður, með gott
auga fyrir leiknum og vanmetinn varnarmaður,“ segir Rúnar um Aron.
MAGNAÐIR Efnilegustu handboltamenn
landsins etja kappi í Kaplakrikanum í kvöld.
> Jóhann Gunnar eftirsóttur