Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 48
32 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Neil Young er búinn að vera að vinna í endurútgáfuverkefninu „Neil
Young Archives“ síðan á níunda áratugnum. Það skiptist í tvo megin-
hluta. Í fyrsta lagi diskakassar með óútgefnu efni frá ferlinum. Útgáfu
á þeim fyrsta af fjórum sem á að ná yfir árin 1963-1972 hefur verið
margfrestað, en nú er boðaður útgáfudagur 24. febrúar 2009. Í þessum
fyrsta kassa verða tíu diskar.
Í öðru lagi er það svo Performance Series-röðin sem samanstend-
ur af eftirminnilegum og mikilvægum tónleikaupptökum frá ferlin-
um. Þegar eru komnir út þrír diskar. 2006
kom Live at Filmore East sem Neil hljóð-
ritaði með Crazy Horse í mars 1970. 2007
kom Live at Massey Hall frá janúar 1971
og í lok síðasta árs kom Sugar Mountain
sem hefur að geyma upptökur frá tvenn-
um tónleikum í Canterbury House í Ann
Arbour í Michigan 9. og 10. nóvember
1968.
Tónleikarnir í Canterbury House fóru
fram þegar Neil var í millibilsástandi.
Hann var nýhættur í Buffalo Springfield
og var enn ekki búinn að senda frá sér
sína fyrstu sólóplötu. Hann bókaði þessa
tvo tónleika og kom þar fram einn með kassagítarinn. Titillagið, Sugar
Mountain, hefur áður komið út á nokkrum safnplötum, en stærsti hluti
þessarar 70 mínútna upptöku er fyrst að koma út núna, 40 árum eftir
að hann var hljóðritaður.
Sagan segir að Elliot Roberts sem Neil réði sem umboðsmann eftir
að hann yfirgaf Buffalo Springfield hafi vilja með þessum tónleikum
sjá hvernig viðtökur Neil fengi einn og óstuddur. Á dagskránni voru
bæði lög sem hann samdi fyrir Buffalo Springfield og ný lög. Hann
spjallaði mikið á milli laga og viðtökurnar voru mjög góðar. Lögin
koma mörg mjög vel út svona berstrípuð og tónleikarnir verða mjög
persónulegir. Neil Young aðdáendur hafa tekið útgáfunni fagnandi,
enda fá þeir þarna frábæra tónleika og eitt púsl enn í heildarmyndina.
Púsl í heildarmyndina
SUGAR MOUNTAIN Neil Young
einn með gítarinn.
> Í SPILARANUM
Loney, Dear - Dear John
Antony And The Johnsons - The Crying Light
Timber Timbre - Timber Timbre
Bruce Peninsula - A Mountain is A Mouth
Andrew Bird - Noble Beast
LONEY, DEAR ANDREW BIRD
> Plata vikunnar
Sin Fang Bous - Clangour
★★★
Skrautlegt og dúllulegt
hljóðdútl sem vantar sterkari
melódíur.
Dr. Gunni
Þriðja breiðskífa Franz Ferdin-
and, Tonight, kemur út á mánudag-
inn. Margir bíða hennar með mik-
illi eftirvæntingu enda sló sveitin
rækilega í gegn fyrir fimm árum
með sinni fyrstu plötu.
Hljómsveitin er Íslendingum að
góðu kunn því tvívegis hefur hún
spilað hér á landi, fyrst í Kapla-
krika árið 2005 og síðan á Nasa
tveimur árum síðar.
Tonight fær þrjár stjörnur af
fimm mögulegum í bresku tón-
listartímaritunum Q og Uncut og
einnig þrjár stjörnur í dagblöð-
unum The Guardian og Daily
Telegraph. Flestir gagnrýnendur
eru sammála um að platan hafi að
geyma slatta af hressilegu disk-
órokki en helsti gallinn sé hversu
lítið hljómsveitin hafi þróast síðan
hún kom fyrst fram á sjónarsvið-
ið og að lögin á plötunni séu of lík
hvert öðru. „Hún hljómar ekki allt-
af nógu vel en ætti samt að falla
í kramið þar sem henni er ætlað
að hljóma: af fullum krafti á indí-
diskóstöðum,“ segir í dómi Daily
Telegraph.
Rúmt þrjú og hálft ár er liðið
síðan síðasta plata Franz Ferdin-
and, You Could Have It So Much
Better, kom út. „Síðasta plata
hljómaði eins og unglingur að
stunda kynlíf. Þessi er öruggari og
hentar dansgólfinu aðeins betur,“
sagði söngvarinn Alex Kapranos
um Tonight.
Hljómsveitin ætlar í tónleika-
ferð um Evrópu til að fylgja gripn-
um eftir og hefst hún í Dublin 1.
mars.
Þriggja stjörnu diskórokk
FRANZ FERDINAND Þriðja breiðskífa
Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á
mánudaginn.
Að sögn Krumma er nú „geð-
veikur æsingur“ í hljóm-
sveitinni Mínus að setja allt
í gang á ný eftir pásu. „Við
höfum svarið þess eið að
koma með nýja plötu á þessu
ári,“ segir söngvarinn. „Það
er mikill metnaður í okkur
og við erum byrjaðir að hitt-
ast og ræða málin. Næst á
dagskrá er bara að hendast
í hús, semja, æfa og koma
sér í gírinn.“
Síðast var Mínus á ferð-
inni árið 2007 með plötuna
„The Great Northern Whale-
kill“ en um svipað leyti og
platan kom út urðu manna-
skipti í bandinu. Frosti og
Þröstur hættu, en Bjössi,
Bjarni og Krummi héldu
áfram og fengu bassaleik-
arann Sigurð Oddsson inn.
„Þetta band hefur bara tekið
upp eitt lag og við erum
spenntir fyrir að gera fleiri.
Menn hafa verið að sýsla
við hitt og þetta en þetta ár
verður Mínuss.“
Krummi á von á beittari
textum en vanalega enda
árferðið kjörið til þess. „Það
er ekki hægt annað en að
vera pólitískur í dag. Ekki
nema maður sé heiladauð-
ur, það er að segja,“ segir
Krummi. Hann ætlar jafnvel
að taka pólitísku línuna enn
þéttar í hliðarbandinu Dead-
fuck. „Það er nú bara svona
týpískt fyllirísband, sem ég
og nokkrir vinir höfum talað
um, hálfgert djók. Hugmynd-
in er að Deadfuck spili ind-
ustrial tónlist, pólitískan og
pönkaðan framtíðarmetal.
Kannski verður einhvern
tímann eitthvað úr þessu.“
- drg
Mínus sver eið
MÍNUS Nýja fjögurra manna
útgáfan.
Íslenskt tónlistarlíf, popp-
ið og rokkið ekki síður en
annað, hefur á undanförn-
um árum verið að miklu
leyti styrkt af stórfyrir-
tækjum og auðjöfrum. Nú,
þegar heldur betur kreppir
að, er spurning hvernig
spilast úr. Dr. Gunni tékk-
aði á stöðunni og komst að
því að staðan er bara fín.
Að undanförnu hefur styr staðið
um auðmanninn Ólaf Ólafsson,
kenndan við Samskip. Hann er
sagður hafa óhreint mjöl í poka-
horninu og stór orð eins og „land-
ráð“ heyrast um viðskipti hans.
Einn af þeim brauðmolum sem
hrotið hafa af milljarðaborði Ólafs
er velgerðasjóðurinn Aurora, sem
hann stofnaði með eiginkonu sinni.
Styrktarsjóðurinn Kraumur er á
vegum Auroru og hefur fimmtíu
milljónir til skiptanna. Fyrstu 20
millunum var úthlutað á síðasta
ári. Þá fékk Mugison mest, fjór-
ar milljónir til að stunda tónleika-
hald og kynna sig á erlendum vett-
vangi. Píanistinn Víkingur Heiðar
Ólafsson fékk 1,5 milljón og Ami-
ina 1,2 milljónir. Þá fengu sex aðil-
ar hálfa milljón hver, hljómsveit-
irnar Celestine, Dikta, FM Belfast
og Skakka manage, og tónlistar-
konurnar Elfa Rún Kristinsdóttir
og Ólöf Arnalds. Þá hefur Kraum-
ur styrkt fjölda annarra verkefna,
meðal annars veitti sjóðurinn fjár-
munum í að styrkja hljómsveitir til
tónleikahalds á landsbyggðinni.
Enn kraumar vel
„Við erum komin inn í annað
starfsár og höldum sjó og gott
betur,“ segir Eldar Ástþórsson,
framkvæmdastjóri Kraums. Hann
segir rekstrargrundvöll Kraums
tryggðan næstu tvö árin, fimmtán
milljónum verði veitt úr sjóðnum á
þessu ári og fimmtán til viðbótar
árið 2010. „Við erum að fara yfir
umsóknir og skipuleggja árið. Ég
á von á að við kynnum starfsemina
á næstu vikum og bæði stjórnin og
fagráðið eru virkilega ánægð að
geta haldið áfram með jafn góðan
hlut og Kraumur er.“
Ellefta Airwaves á þurru
Engan bilbug er að finna á Þor-
steini Stephensen og félögum hans
hjá Airwaves. Ellefta hátíðin verð-
ur haldin í október. „Við erum nú
þegar farin að fá fyrirspurnir frá
böndum að utan,“ segir Steini.
„Það eru náttúrulega tíu mánuðir í
þetta og við þurfum að sjá hvernig
gengið þróast. Ég held samt að við
getum farið að tilkynna um fyrstu
böndin um mánaðamótin febrú-
ar/mars. Það verða líklega minni
nöfn en oft áður, sem er allt í lagi.
Reynslan er sú að minni bönd
vekja oft meiri athygli til langs
tíma litið en stærri bönd eins og
Kaiser Chiefs eða hvað þetta heit-
ir. Ég held þetta verði flott hátíð
með flottu lænöppi.“
Eitt ár er eftir af samningi
hátíðarinnar við Reykjavíkurborg
og Icelandair svo reksturinn er
tryggður, að minnsta kosti fyrir
eina hátíð í viðbót. „Það eru fund-
ir fyrirhugaðir til að skoða fram-
haldið. Það er náttúrulega nauð-
synlegt að hægt sé að sjá lengra
inn í framtíðina en bara eitt ár,“
segir Þorsteinn.
Reykjavík Loftbrú var stofn-
að árið 2003 af borginni og Ice-
landair. Sjóðnum er ætlað að
styðja tónlistarfólk við að hasla
sér völl erlendis og felst styrkur-
inn í að borga undir listamenn í
flug til áfangastaða Icelandair.
Listamennirnir borga sjálf-
ir skatta og gjöld af miðunum.
Stjórnarfundur verður hjá Loft-
brúnni á morgun og er ekki búist
við miklum breytingum á fyrir-
komulagi styrksins.
Enn til peningar fyrir
íslenska tónlistarmenn
FJÓRAR MILLUR Mugison hristir spaðann á Ólafi Ólafssyni þegar hann fékk úthlutað
úr sjóði Kraums í fyrra.
föstudagur
fylgir Fréttablaðinu á morgun
föstudagur
Allt sem þú þarft