Fréttablaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 6
6 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Meirihluti þingflokks Samfylkingar hefur, ýmist
nú eða fyrir áramót, sagst vilja kosningar í vor. Um
leið verða efasemdaraddir um núverandi stjórnar-
samstarf háværari meðal þingmanna flokksins.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður flokksins,
sagðist í gær vilja kjósa í vor. „Kosningar eru nauð-
synlegur liður í þeirri uppbyggingu sem nú fer í
hönd,“ segir Ágúst.
Stjórnarsamstarfið var rætt á þingflokksfundi
flokksins í gær. Lúðvík Bergvinsson sem er for-
maður þingflokksins segir að taka eigi hugmynd-
ir varaformannsins um vorkosningar til skoðunar.
„Það var mikill einhugur um það að vinna þjóðinni
eins vel og nokkur er kostur, hlusta á hana og fylgja
hennar ráðleggingum.“
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist
skilja kröfu almennings um kosningar. „Ríkisstjórn-
in hefur unnið sér inn reiði almennings með því að
standa ekki við þær hreinsunaraðgerðir sem menn
hafa viljað; til dæmis hvað varðar Seðlabankann og
þá sem bera ábyrgð á bankahruninu.“
Þingmennirnir Karl V. Matthíasson og Guðbjart-
ur Hannesson sögðust í samtali við Fréttablað-
ið vera opnir fyrir kosningum í vor. Áður höfðu
Björgvin G. Sigurðsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Katrín Júlíusdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og
Ellert B. Schram öll tekið í svipaðan streng. - kóp, ss
Allt við suðumark
Peningabréf
Landsbankans
OPINN FUNDUR
Laugardalshöll fi mmtud. 22. jan. kl. 20:00
Réttlæti.is, samtök sem berjast fyrir réttlátu uppgjöri
á Peningabréfum Landsbankans, boða til opins fundar
fi mmtudaginn 22. janúar kl. 20.
Fundarstaður:
Íþróttahöllin í Laugardal, inngangur A, salur 1
Fundarefni m.a.:
Stutt kynning á starfsemi RÉTTLÆTIS.is
Hilmar Gunnlaugsson hrl. fer yfi r lagalegu hliðina.
Fyrirspurnir o.fl .
rettlaeti@rettlaeti.is - www.rettlaeti.is
„Við bjóðumst til að leysa úr málum
með þessum hætti og koma þannig
á ríkisstjórn sem getur tekið á
málum,“ segir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, sem í gær bauðst til að
verja ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna falli á meðan kosn-
ingar yrðu undirbúnar. Það er háð
því að kosið verði fyrir 25. apríl.
Sigmundur Davíð segir að í raun
séu Framsóknarmenn að bjóðast
til að höggva á hnútinn. Svo virð-
ist sem ríkisstjórnin sé strand.
„Einnig viljum við að boðað verði
til stjórnlagaþings sem semji nýja
stjórnarskrá og að svo verði geng-
ið til kosninga ekki seinna en í lok
apríl.“ Sigmundur Davíð segir ein-
hug í þingflokki Framsóknarflokks-
ins um að bjóða þessa leið. Hann
segir ljóst að stór hluti samfylking-
armanna sé mjög ósáttur við ríkis-
stjórnarsamstarfið.
Við erum nátt-
úrulega í sam-
starfi með Sjálf-
stæðisflokknum
og því samstarfi
hefur ekki verið
slitið og því ekki
t ímabært að
ræða þetta núna.
Hins vegar er
athyglisvert að
þeir skuli lýsa
því yfir og hafa á okkur mikið
traust og við fögnum því,“ segir
Lúðvík Bergvinsson, þingflokks-
formaður Samfylkingar. Hann segir
ekki verða rætt við aðra á meðan á
núverandi samstarfi stendur.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, fagnar tilboði
Framsóknarflokks. „Þetta sam-
rýmist okkar meginkröfu um að
kosið verði sem fyrst. Ég fagna því
að Framsóknarflokkurinn taki af
skarið með að hann vilji kosningar.
Það hefur verið okkar meginkrafa
allan tímann. Þetta endurspeglar
þá skoðun flestra að kosningar séu
óumflýjanlegar; það sé ekki spurn-
ing um hvort heldur hvenær. Ein-
hvern veginn þarf að haga stjórnun
landsins á meðan og það er ágætt
að afstaða Framsóknarflokks ligg-
ur fyrir.“
„Geir H. Haarde, forsætisráð-
herra, segir stjórnina standa traust-
um fótum. Hann er ekki hissa á
tilboði Framsóknar. „Mér finnst
ekkert skrítið að nýr formaður í
Framsóknarflokki vilji láta til sín
taka með einhverjum hætti strax.
Maður skilur þetta út frá því sjón-
armiði. En það gildir sem ég sagði
áðan að það væri mikið ábyrgðar-
leysi að ætla að stefna þjóðinni í
kosningar á næstu vikum.“
olav@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
Samfylkingin þiggur
ekki boð Framsóknar
Framsóknarflokkurinn býðst til að verja vinstri stjórn falli verði kosið fyrir 25.
apríl. Formaður Vinstri grænna fagnar og segir flokkinn tilbúinn í ríkisstjórn.
Samfylkingin segist ekki ræða við aðra á meðan hún er í stjórnarsamstarfi.
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
ELDAR Á AUSTURVELLI Til harðra mótmæla kom á Austuvelli í gær, annan daginn í röð, þar sem mótmælendur kröfðust afsagnar ríkisstjórnarinnar og að boðað yrði til kosn-
inga. Ólíkt mótmælunum á þriðjuaginn fóru mótmælin í gær að mestu fram framan við Alþingishúsið og á Austurvelli enda hafði lögreglan lokað Alþingisgarðinum.
Meirihluti þingflokks Samfylkingarinnar hefur sagst vilja kjósa í vor:
Líkur á vorkosningum aukast
„Ég taldi nauðsynlegt að eiga
fund með formönnum stjórn-
málaflokkanna til að fara yfir
fyrirhugaða umræðu [í dag],
sem verður skýrsla forsætisráð-
herra,“ segir
Sturla Böðvars-
son, forseti
Alþingis um
frestun þing-
fundar í gær.
Hann fund-
aði tvisvar í
gær, fyrst með
formönnum
þingflokka um
morguninn og
svo með formönnum stjórnmála-
flokkanna eftir hádegi.
Hann segir ástæðu fyrir frest-
un þingfundar tvíþætta. Annars
vegar hafi starfsfólk þingsins
þurft næði til að koma öllu í röð
og reglu. Þá hafi hann talið mik-
ilvægt að þingmenn fengju tíma
til að undirbúa sig undir umræðu
dagsins í dag. Auk þessa hafi
verið skipulagðir þingflokksfund-
ir í gær.
Aðspurður hvort hann telji að
mótmælin haldi ekki áfram í dag
og muni trufla þingfund segir
Sturla: „Ég vona að þó að mót-
mælin séu hávær og mikilvæg, þá
fáum við frið til að sinna skyldum
okkar hér innandyra.“ - ss
Þingforseti frestaði fundi:
Vonast eftir
vinnufriði
STURLA
BÖÐVARSSON
„Engin lýðræðisleg stjórn getur
sleppt því að svara jafn umfangs-
miklum mótmælum og hafa
verið í gangi,“ segir Silja Bára
Ómarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla
Íslands. Hún
segir ríkis-
stjórninni
ýmsar leið-
ir færar til að
bregðast við
kröfum almenn-
ings.
Forsætisráð-
herra geti sagt
af sér og í kjöl-
far þess rjúfi
forseti þing og boði til kosninga.
Ríkisstjórnin geti kallað minni-
hlutann til samstarfs og mynd-
að þjóðstjórn. Önnur leið sé að
mynda bráðabirgðastjórn sem
sitji fram að boðuðum kosning-
um. Aðrir möguleikar geti falist
í myndun neyðarstjórnar og/eða
minnihlutastjórnar.
„Ef við setjum þetta í samhengi
við Bandaríkin jafngilda mót-
mælin á þriðjudag því að tvær
milljónir manna hefðu mótmælt
fyrir utan þinghúsið. Ríkisstjórn-
in verður að bregðast við þessum
þrýstingi.“ - hhs
Silja Bára Ómarsdóttir:
Margar leiðir
eru færar
SILJA BÁRA
ÓMARSDÓTTIR
AÐ LOKNUM ÞINGFLOKKSFUNDI Lúðvík Bergvinsson segir ein-
hug um að fylgja ráðleggingum þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Lögreglan beitir piparúða á
íslenska mótmælendur“ er fyrir-
sögnin á frétt Reuters-fréttastof-
unnar um mótmælin á Austur-
velli.
Fréttir af mótmælunum birt-
ust í mörgum helstu fjölmiðlum
heims, þar á meðal á vefsíðum
breska útvarpsins BBC og bresku
dagblaðanna Guardian, Times og
Telegraph. Þá var sagt frá mót-
mælunum víða á Norðurlöndum,
svo sem í finnska og norska ríkis-
útvarpinu.
Skýrt er frá því að eitt til
tvö þúsund manns hafi safnast
saman fyrir utan Alþingishúsið,
barið þar á potta og pönnur og
tuttugu manns hafi verið hand-
teknir. - gb / ghs
Ísland í heimsfréttum:
Piparúðinn
vekur athygli
GAS Valdbeiting íslenskra lögreglu-
manna vekur athygli erlendra fjölmiðla.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM