Fréttablaðið - 22.01.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 22.
janúar, 22. dagur ársins.
10.37 13.39 16.43
10.39 13.24 16.10
Í haugi válegra tíðinda er bein-línis lífsnauðsynlegt að eitthvað
lýsi upp svartnættið. Maður getur
þolað skammdegið ef maður veit
fyrir víst að vorið kemur aftur. Því
rígheldur maður í góðu fréttirnar.
Barack Obama er frábær frétt og
ekki síður upplífgandi fyrir and-
ann var fréttin um hetjudáð Sullen-
bergers flugmanns í þotunni sem
brotlenti á Hudson-á. Hann gekk
tvisvar um vélina til að fullvissa
sig um að allir væru komnir út og
fór svo síðastur frá borði. Alvöru
hetja sem „axlaði ábyrgð“.
ÞEGAR Ísland hrundi voru fyrir-
ferðarmestar myndlíkingar um
skip sem strandar. Hætta var á að
við „soguðumst niður með bönkun-
um“ og unnið var „björgunarstarf
á strandstað“. Mun nútímalegra
og eðlilegra í ljósi leiðandi ferða-
máta hefði verið að líkja hrun-
inu við flugslys. Við erum farþeg-
ar í sömu vél og öll á leið á sama
ákvörðunarstað. Það ætti að vera
kappsmál flugfélagsins að öllum
líði vel á ferðalaginu.
ÞAÐ voru engar hetjur við stýrið
þegar við hröpuðum. Þegar sjór-
inn kom æðandi á móti okkur sagði
flugstjórinn í kallkerfinu: Svona,
þetta er ekkert! Hættið að horfa
út um gluggann! Eftir brotlending-
una hljóp flugstjórinn fyrstur frá
borði, með súperfínu eftir launin
sín, og síðan var liðinu á Saga
Class smalað út og komið á þurrt.
Ekki nóg með það. Vesalingunum á
Economy Class, sem velkt ust um í
stórsjónum og reyndu að halda sér
í eitthvað, var sagt að þeir yrðu að
borga Saga Class-miðana fyrir
æðislega liðið. Ekki bara þessa
ferð, heldur allar aðrar ferðir,
bæði í fortíð og framtíð.
ÞAÐ er ömurlegur díll að vera
almennur farþegi á TF-HFF.
NÚ, næstum fjórum mánuðum
síðar, ættu farþegarnir að vera
komnir á land. Fötin ættu að vera
orðin þurr, einhverjir búnir að
byggja skýli og einhverjar hald-
bærar áætlanir uppi um að koma
okkur af eyðieyjunni. Það er ekki
þannig. Við velkjumst enn um
í öldusköflunum og höfum ekki
hugmynd um hvenær og þá hver
komi að hífa okkur upp í ylvolga
þyrlu. Við vitum bara það eitt að
við þiggjum ekki aftur far með
gamla flugstjóranum. Okkur lang-
ar ekki aftur til að hanga hnípin
fyrir aftan Saga Class-liðið vitandi
að við borgum miðana þess.
ÞESS vegna verður boðað til kosn-
inga í vor. Þess vegna verður skipt
um áhöfn.
TF-HFF
STÓRÚTSALA
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
LAUGARD. 11 – 16
afsláttur
www.utivistogsport.is
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322