Fréttablaðið - 22.01.2009, Side 34
22. JANÚAR 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● þorrinn
Helga Þórarinsdóttir hefur verið meðlimur í Þjóðdansafélagi Íslands síðan það var stofnað árið 1951. Hún sinnir afgreiðslustörf-
um í búningaleigu félagsins og kennir gömlu dansana á mánudags- og miðvikudagskvöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tilvalið er að klæðast peysu-
fötum, upphlut og öðrum
hátíðarklæðnaði á þorranum.
Þorrinn gengur í garð föstudaginn
23. janúar með tilheyrandi matar-
og drykkjarveislum, þar sem há-
karl, súrmatur, svið og íslenskt
brennivín eru oftar en ekki undir-
staðan. Við slík tilefni prúðbúast
margir og kjósa sumir að klæðast
þjóðbúningum til að fanga betur
stemninguna. Þá má meðal ann-
ars leigja hjá Þjóðdansafélagi Ís-
lands.
„Hér erum við með allar teg-
undir af íslenska þjóðbúningnum;
upphlut, peysuföt, skautbúning og
kyrtil, sem hafa annaðhvort verið
keyptir eða fengist gefins. Ætli
þeir elstu séu ekki frá árinu 1930,“
segir Helga Þórarinsdóttir, sem
sinnir afgreiðslustörfum hjá bún-
ingaleigu félagsins við Álfabakka
14a.
Helga bendir á að hægt sé að fá
bæði búninga í anda gamalla og
nýrri tíma, því eins og kunnugt
er hafi hann tekið nokkrum breyt-
ingum í tímans rás. Sem dæmi um
þær má nefna að frá seinni hluta
19. aldar og á 20. öld var tekið að
sauma húfuna og peysuna við
peysufötin í stað þess að prjóna þau
og hálsklúturinn vék fyrir breiðum
borða eða slifsi. Nú er hann saum-
aður úr svörtu ullarefni, skotthúf-
an prjónuð úr svörtu ullargarni og
svuntan gerð úr köflóttu eða lang-
röndóttu silki.
„Mest er óskað eftir peysufötum
og upphlutnum frá 20. öld, þessum
svarta sem er algengastur og fólk
þekkir best. Enda var þetta helsti
sparibúningur kvenna hér áður
fyrr. Hann er ekki skreyttur silfri
eins og 19. aldar upphluturinnn en
hann hentar kannski betur þeim
sem vilja vera sem mest skreytt-
ir.“
Karlpeningurinn ætti svo ekki
að koma að tómum kofunum hjá fé-
laginu að sögn Helgu, þar sem hann
getur bæði fengið á sig þjóð- og há-
tíðabúning. „Hér er til dæmis hægt
að fá hnébuxur og vesti. Þetta er
gert úr ull og auðvitað mjög ólíkt
hátíðabúningnum,“ bendir hún á
og bætir við að búningarnir séu
ekki síður vinsælir meðal mennta-
skóladrengja en í þorrablót. Þetta
sé yfirhöfuð sá árstími þegar eftir-
sóknin er einna mest eftir búning-
um beggja kynja, til dæmis í brúð-
kaup og fermingarveislur. - rve
Uppábúin á þorranum
„Hefðin er sú að hver kemur með
sinn mat, hann er látinn í trog og
snæddur upp úr þeim með vasa-
hníf. Þeir sem eru með áhugabú-
skap koma oft með mat þaðan;
annars er þorramaturinn seldur
í búðunum,“ segir Þóra Hansdótt-
ir, tryggingafulltrúi sýslumanns-
ins í Bolungarvík, um fyrirkomu-
lag þorrablótsins í Bolungarvík,
sem hefur verið haldið óslitið frá
1944.
Að sögn Þóru er þorrablótið
að auki hálfgerð skemmtun fyrir
hjón. „Hér er hefð fyrir því að
konurnar bjóði mönnunum sínum
á blótið þar sem bóndadag ber upp
á fyrsta degi þorrans. Nauðsynlegt
er að eiga maka til að mega mæta
á þorrablótið í Bolungarvík. Auð-
vitað kemur fyrir að mennirnir
eru úti á sjó, en konurnar mega að
sjálfsögðu taka þátt,“ segir Þóra,
sem hefur mætt á yfir þrjátíu
þorrablót á staðnum, ætíð í sam-
floti við sama fólkið.
Blaðamanni verður brátt ljóst að
stutt er í þjóðarstoltið hjá húsfreyj-
unum í Bolungarvík þar sem Þóra
upplýsir hann um að allar konur á
svæðinu mæti í íslenskum þjóðbún-
ing. „Það er ósköp skemmtilegt að
fylgjast með uppáklæddum kon-
unum borða súrmat með hnífinn
einan að vopni,“ segir hún og hlær.
Aðspurð hvort körlunum sé skylt
að mæta í þjóðhátíðarbúningi neit-
ar hún því en bætir við að þeir séu
hins vegar skikkaðir til að klæðast
jakkafötum. „Körlunum hefur verið
komið í skilning um að æskilegt sé
að mæta í hátíðarbúningi. Þeir eru
flestir með það á hreinu.“
Hefð er fyrir því að halda þorra-
blótið í félagsheimilinu fyrsta laug-
ardaginn í þorra í Bolungarvík en
að þessu sinni færast veisluhöldin
yfir í íþróttahúsið. „Það er vegna
framkvæmda í húsinu,“ útskýrir
Þóra.
Spurð hvað henni þyki skemmti-
legast í tengslum við þorrablót-
ið svarar Þóra: „Lokaatriðið, en
það samanstendur af frumsömd-
um gamanvísum um konurnar í
nefndinni.“ - aóv
Hátíðleg hjónaskemmtun
Þóra Hansdóttir ásamt bónda sínum,
Sigurði Z. Ólafssyni. MYND/ÚR EINKASAFNI
HVAR ER ÞÍN AUGLÝSING ?
Allt sem þú þarft... ... alla daga
ÞRIÐJUDAGINN 24. JAN.
Nýsköpun
Sérblað um nýsköpun í hinum ýmsu atvinnugreinum
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Sigurðsson
í síma 512-5471 eða á netfangið bjarnithor@365.is
Eftirfarandi sérblöð fylgja Fréttablaðinu á næstunni
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2009
BEST SKREYTTU HÚSIN
Ljósin loga áfram
HÖNNUN
Hápunktar ársins 2008
KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR
Á mörkum draums
og veruleika
fasteignir
15. SEPTEMBER 2008
Fasteignasalan Perla Investments og RE/MAX
Bær eru með til sölu íbúðir við Punta Prima
strönd á Spáni.
Í búðirnar eru í blokk við Punta Prima-strönd, sem hefur notið mikilla vinsælda og er bæði í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli
og Murcia-flugvelli.
Íbúðin á myndinni til hliðar skiptist niður í opið
eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðher-
bergi og verönd. Íbúðunum fylgir sameiginlegur
garður með tveimur sundlaugum auk sameiginlegs
púttvallar.
Þær eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá
ströndinni, þar sem óviðjafnanlegt útsýni er út á
Miðjarðarhafið.
Þá er öll þjónusta innan seilingar. Hægt er að rölta
á nærliggjandi veitingastaði og eins eru kjörbúðir,
veitingastaðir, apótek, barir og fleira staðsett
í þjónustukjarna í tíu mínútna göngufjarlægð.
Að auki er stutt í ýmiss konar afþreyingu fyrir
alla fjölskylduna, þar á meðal golf, tívolíferðir,
vatnagarð og fleira.
Þess skal getið að íbúðirnar kosta frá 201.160
evrum.
Þessi eign ásamt fleirum verður kynnt í opnu húsi
á Spánareignum hjá Remax Bæ Malarhöfða 2, helg-
ina 20. og 21. september á milli klukkan 12 til 16
báða daga.
Nánari upplýsingar veitir RE/MAX Bær, um-
boðsaðili Perla Investments á Íslandi. Snorri Sig-
urfinnsson í síma 864 8090, ss@remax.is. Magnús
Ninni Reykdalsson í síma 694 9999, maggi@remax.
is. Frekari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni
eru fáanlegar á vefsíðunni www.perla.is.
Fyrsta flokks íbúðir
fáanlegar á Spáni
Íbúðin í blokkinni skiptist í opið eldhús, stofu/borðstofu,
tvö svefnherbergi, baðherbergi og verönd. Íbúðunum fylgir
sameiginlegur garður með tveimur laugum auk sameiginlegs
púttvallar. Öll þjónusta og afþreying eru innan seilingar frá
þeim.
Fr
um
Smærri fjármálafyrirtæki
Þrengingar
kalla á
samþjöppun
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Óli Kristján Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson
skrifa
Seðlabanki Íslands ætti að lækka stýrivexti um
0,25 prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum
á morgun, samkvæmt áliti skuggabankastjórnar
Markaðarins. Að þessu sinni voru skiptar skoðanir
innan bankastjórnarinnar. Tveir vildu fremur horfa
til væntinga erlendra greinenda og hættunnar á
frekara gengisfalli og halda vöxtum óbreyttum.
Hinir vildu hefja lækkunarferli stýrivaxta nú þegar
og forða með því frekara kreppuástandi.
Sameiginleg niðurstaða er svo varfærnisleg
lækkun sem undirbyggja þarf rækilega með gögn-
um, svo sem með því að birta nýjan stýrivaxtaferil.
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykja-
vík, segir stöðuna í efnahagslífinu einkennast af
mikilli óvissu og hættu, meðal annars vegna skorts
á lánsfé. Þá hafi ekki tekist að styrkja gjaldeyris-
forða Seðlabankans nema að takmörkuðu leyti.
„Það lán sem tilkynnt var um í síðustu viku, en
hefur reyndar ekki enn verið tekið, er auðvitað
aðeins sem lítið skarð í stórri ísaldarstæðunni og
var af kurteisisástæðum ekki hlegið beint út af
borðinu,“ segir hann.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar,
segir mestu skipta nú að vega saman verðbólgu-
hættuna annars vegar og hættuna á kreppu hins
vegar. Hann horfir meðal annars til reynslunnar af
fyrri samdráttarskeiðum, svo sem þegar lækkun
stýrivaxta hófst síðla árs 2001, skömmu áður en
verðbólga náði hámarki.
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar
Glitnis, segir verðbólguhorfur jafnframt góðar og
líkur á að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði
náð á þriðja fjórðungi næsta árs. „Í þessu háa
vaxtaumhverfi og í ljósi þessarar verðbólguspár tel
ég rétt að bankinn lækki vexti sína í nokkuð stórum
stökkum á næstu mánuðum,“ segir hann.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, telur einnig að Seðlabankinn þurfi að
bregðast hratt við með örum stýrivaxtalækkunum
þegar verðbólgan tekur að hjaðna og þá jafnvel
með fjölgun vaxtaákvörðunardaga. Lækkunarferlið
segir hann hins vegar kalla á góðan undirbúning og
telur vart hægt að hefja það nema í tengslum við
útgáfu Peningamála, efnahagsrits Seðlabankans, á
vaxtaákvörðunardegi í nóvember. Þar hafi bankinn
vettvang til að skýra ákvörðun sína og sýn á efna-
hagsframvinduna.
Skuggabankastjórnin
vill 25 punkta lækkun
Skuggabankastjórn Mark aðarins áréttar að tími sé kominn
á lækkun stýrivaxta. Hættara sé við kreppu en verðbólgu.
Olíuverð lækkar | Verð á hrá-
olíu hefur lækkað nokkuð hratt
upp á síðkastið og lá við 102 dali
á tunnu þegar best lét í gær. Í júlí
stóð verðið í hæstu hæðum, fór í
rúma 147 dali á tunnu.
Kauphöllin sprakk | Fjárfestar
í Bretlandi komu að lokuðum
dyrum hjá Lundúnamarkaðn-
um í Bretlandi á mánudag. Tvö-
falt meiri velta með hlutabréf en
aðra daga varð til þess að kaup-
hallarkerfið brann yfir. Þetta er
alvarlegasta kerfisbilun á bresk-
um hlutabréfamarkaði í átta ár.
Þjóðnýting gleður | Gengi
hlutabréfa tók kipp upp á við
víða um heim á mánudag eftir
að Henry Paulson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, greindi frá
yfirtöku ríkisins á hálfopinberu
fasteignalánasjóðunum Fannie
Mae og Freddie Mac á sunnu-
dag. Þetta eru umfangsmestu
björgunaraðgerðir í sögu fjár-
málageirans.
Mikið atvinnuleysi | Atvinnu-
leysi mældist 6,1 prósent í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði,
samkvæmt nýjustu tölum banda-
rísku vinnumálastofnunarinnar.
Atvinnuleysi hefur ekki verið
meira í tæp fimm ár.
Óbreyttir vextir | Bæði Eng-
landsbanki og evrópski seðla-
bankinn ákváðu í síðust viku að
halda stýrivöxtum óbreyttum. Að-
stæður í efnahagslífinu og yfir-
vofandi samdráttur í hagvexti lá
til grundvallar ákvörðununum.
Þóra Helgadóttir
Verðleiðrétting
ekki alslæm
6
Starfsmenn vilja kaupa
Heitt í holunum
hjá Enex
2 2
Hlutabréf í Eimskipafélaginu
voru færð á athugunarlista í
Kauphöllinni í gær, vegna um-
talsverðrar óvissu varðandi verð-
myndun vegna hættu á ójafnræði
meðal fjárfesta, líkt og segir í til-
kynningu.
„Þetta er ábending til fjárfesta
um að verðmyndun sé óvenju óviss
um þessar mundir og felur því í
sér hvatningu til þeirra að kynna
sér málið vel áður en ákvarðanir
eru teknar,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, í samtali við Markaðinn.
Verð á hlutabréfum í Eimskip
hefur nánast verið í frjálsu falli
síðustu vikur og mánuði. Á einni
viku hefur gengi bréfanna til að
mynda lækkað um ríflega þriðj-
ung. Fyrir um ári var gengið um
43, en var komið niður fyrir 10 kr.
á hlut í gær.
Eins og fram hefur komið í
Markaðnum situr Eimskip enn
uppi með ábyrgð upp á 25 millj-
arða króna vegna sölu á bresku
ferðaskrifstofunni XL Leisure
Group fyrir tveimur árum. Unnið
hefur verið að endurfjármögnun,
en henni er ekki lokið og herma
heimildir Markaðarins að skyndi-
legt fall nú geti tengst óvissu um
lyktir þeirrar vinnu. - bih
Eimskip í
frjálsu falli
www.trackwell.com
Vistvænn
kostur!
LAUGARDAGINN 24. JAN.
MÁNUDAGUR 26. JAN.
MIÐVIKUDAGUR 28. JAN.
Heimili & hönnun:
Vikulegt sérrit um heimili & hönnun, hugmyndir fyrir
öll rými heimilisins sem og áhugaverðar fréttir úr heimi
hönnunar jafnt innanlands sem utan.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Þ. Steingrímsson
í síma 5125439 eða hlynurs@365.is
Fasteignir:
Fasteignablað Fréttablaðsins - alla mánudaga.
Auglýsendur athugið að panta þarf auglýsingar
fyrir klukkan 12 föstudaginn 23. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Ingi Pétursson
í síma 512-5426 eða vip@365.is
Markaðurinn:
Vikulegt sérrit um allt er snýr að viðskiptum
og efnhagsmálum – alla miðvikudaga.
Nánari upplýsingar veitir Laila Awad
í síma 512-5451 eða laila@frettabladid.is
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
LEIKA FEÐGIN
Í ÞRIÐJA SINN
Sólveig Arnarsdóttir og
Arnar Jónsson leika feðgin í
fjölskyldudramanu Heiðri.
ÆVINTÝRA-
LEGA ÞJÓÐLEG
Ásthildur Sturludóttir
opnar heimili sitt og
sýnir uppáhaldshlutina.
16. janúar 2009
SETTU ÍBÚÐ-
INA Á SÖLU
Birgitta Haukdal og Bene-
dikt Einarsson selja glæsi
íbúð sína á Skólavörðustíg.
FÆR ÚTRÁS
Í GEGNUM LISTINA
Magnús Jónsson er
með sjónvarpsþátt,
tvær plötur og bíó-
mynd í vinnslu.
FÖSTUDAGUR 23. JAN.
Föstudagur:
Vikulegt sérrit á léttu nótunum. Viðtöl við þjóðþekkta
einstaklinga, allt það nýjasta í tísku, heilsu og hönnun
svo dæmi sé tekið.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
í síma 512-5462 eða sigridurdagny@365.is
LAUGARDAGINN 24. JAN.
Ferðir
Sérblað Fréttablaðsins um ferðir
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Freyr Jónsson
í síma 512-5411 eða á netfangið benediktj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2008
+ NÝÁRSFAGNAÐUR Í HONG KONG, FORSETASKIPTI Í BANDARÍKJUNUM OG ELDFLÓINN Í TASMANÍU
Almennt um námið
Námið tekur eina önn og veitir
svæðisleiðsöguréttindi. Kennt er þrjú
kvöld í viku frá mánudegi til miðviku-
dags, auk æfingaferða um helgar.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
stúdentsprófi eða öðru sambærilegu
námi. Æskilegt er að hafa gott vald á
einu erlendu tungumáli.
Nánari upplýsingar á www.mk.is, í síma: 594 4025 eða á netfanginu: lsk@mk.is
Markaðsráðgjafar Sérblaðadeildar
Benedikt Freyr Jónsson benedikt@365.is 512 5411
Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is 512 5471
Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is 512 5439
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is 512 5462