Fréttablaðið - 22.01.2009, Síða 50
34 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Titanic-parið Kate Winslet og Leon-
ardo DiCaprio leiða aftur saman
hesta sína í hinni dramatísku
Revolutionary Road sem verður
frumsýnd á morgun.
Mörgum er eflaust enn í fersku
minni ástarsamband Winslet og
DiCaprio í hinni ógnarvinsælu Tit-
anic árið 1997. Neistaflugið á milli
þeirra var umtalað og átti tvímæla-
laust stóran þátt í vinsældum mynd-
arinnar.
Síðan þá hefur vegur þeirra
beggja aukist jafnt og þétt og
skín stjarna þeirra skærar núna
en nokkru sinni fyrr, sérstaklega
Winslet sem hampaði nýlega tvenn-
um Golden Globe-verðlaunum. Voru
önnur þeirra einmitt fyrir frammi-
stöðuna í Revolutionary Road.
Á þessum tólf árum síðan Titanic
gerði allt vitlaust hafa peningamenn
í Hollywood beitt öllum brögðum til
að fá gamla dúettinn til að endur-
vekja töfrana en án árangurs, allt
þar til nú. Skipti þar eflaust mestu
máli að leikstjóri myndarinnar er
enginn annar en eiginmaður Wins-
let, hinn virti Sam Mendes sem á
að baki fín verk á borð við Amer-
ican Beauty, Road to Perdition og
Jarhead. Revolutionary Road fjall-
ar um April og Frank, ung hjón með
tvö börn í úthverfi Connecticut um
miðjan sjötta áratuginn. Þrátt fyrir
að allt sé slétt og fellt á yfirborðinu
finnst þeim eitthvað vanta í lífið.
Frank skaffar vel í skrifstofustarfi
sem honum hundleiðist og April átti
sér drauma um að verða leikkona
en sinnir nú húsmóðurstörfum. Þau
taka sig til og ákveða að flytja til
Frakklands í von um nýtt og betra
líf. Þessi umbreyting gengur aftur
á móti afar brösuglega með sífelld-
um rifrildum sem gætu mögulega
bundið enda á samband þeirra.
Myndin fær mjög góða dóma
í erlendu pressunni og svo virð-
ist sem neistinn á milli Winslet og
DiCaprio hafi hvergi nærri dofnað.
Myndin fær 7,9 af 10 mögulegum
á síðunni Imdb.com og 67% á Rot-
tentomatoes.com.
- fb
Gamanmyndin Role Models og
spennumyndin Underworld: Rise
of the Lycans verða frumsýnd-
ar á morgun. Role Models fjallar
um óábyrgu sölumennina Danny
og Wheeler sem fara á fyllerí og
skemma bíl vinnuveitanda síns. Í
réttarsalnum mega þeir velja um
að fara í fangelsi eða vera leiðbein-
endur fyrir vandræðaunglinga.
Með aðalhlutverkin fara Paul Rudd
og Seann William Scott, sem er
þekktastur sem Stifler í American
Pie. Role Models fær fína dóma,
eða 7,8 af 10 á síðunni Imdb.com
og 76% á Rottentomatoes.com.
Underworld: Rise of the Lycans
er þriðja myndin í þessari blóðugu
seríu sem fjallar um baráttu vamp-
íra og varúlfa. Rhona Mitra hefur
tekið við aðalhlutverkinu af Kate
Beckinsale og bregður sér því í
þröngt leðurdressið á meðan þeir
Bill Nighy og Michael Sheen mæta
aftur til leiks sem hinir hrikalegu
Viktor og Lucian. Myndin fær 6,9
á Imdb.com.
Grín og hryllingur
UNDERWORLD Rhona Mitra leikur
aðalhlutverið í Underworld: Rise of the
Lycans.
Sýningar á Lost hófust að nýju í
gærkvöldi á ABC sjónvarpsstöð-
inni í Bandaríkjunum með tveimur
fyrstu þáttum fimmtu seríunnar.
Tveimur söguþráðum verður fylgt
í sautján þáttum þessarar seríu.
Annars vegar verður fylgst með
atburðum á eyjunni sem leiddu til
dauða Lockes árið 2007 en Benja-
min var sem kunnugt er búinn
að færa eyjuna til bæði í tíma og
rúmi. Hins vegar verður fylgst
með afdrifum sexmenninganna
sem sluppu af eyjunni, þá aðal-
lega Jacks og Bens, sem reyna að
fá alla til að sameinast um að snúa
aftur með líkið af Locke. Gefið
hefur verið út að svikahrappur-
inn Sawyer verði fyrirferðarmik-
ill í þessari seríu, en hann er einn
af þeim sem urðu eftir á eyjunni.
Sjötta og síðasta Lost-serían verð-
ur svo sýnd á næsta ári og verður
öllum spurningum svarað, að sögn
höfunda. Ríkissjónvarpið byrjar að
sýna fimmtu seríuna í apríl.
Lost hefst að nýju
Neistaflugið enn til staðar
Tilkynnt verður um tilnefn-
ingar til Óskarsins í dag og
bíða margir kvikmynda-
unnendur spenntir eftir
því hvort The Dark Knight
hljóti náð fyrir augum aka-
demíunnar.
Hingað til hafa vinsælar sum-
armyndir á borð við The Dark
Knight ekki þótt merkilegur papp-
ír í augum Óskarsakademíunnar.
Myndir sjálfstæðra framleiðenda
sem sumir telja „listrænni“ og
„alvarlegri“ (Crash, No Country
for Old Men, Million Dollar Baby)
hafa hingað til verið inni í hlýjunni
og sankað að sér Óskarsverðlaun-
um. Núna telja samt margir að
ekki verði hægt að líta fram hjá
Leðurblökumanninum, myndin sé
einfaldlega of vönduð til þess og
hún verðskuldi tilnefningu í virt-
asta flokknum, sem besta mynd-
in.
Flestir telja öruggt að Golden
Globe-verðlaunahafinn Slum dog
Millionaire fái þá tilnefningu
ásamt The Curious Case of Benja-
min Button, Frost/Nixon og Milk.
Óvissa er á hinn bóginn um fimmtu
tilnefninguna og talið er að kapp-
hlaupið þar standi á milli The Dark
Knight, Gran Torino, Doubt og The
Wrestler.
Talið er nánast pottþétt að hinn
sálugi Heath Ledger fái tilnefn-
ingu sem Jókerinn enda hefur
hann sópað til sín verðlaunum
að undanförnu. Líkurnar á því
að Nolan verði tilnefndur sem
besti leikstjórinn og að handrit-
ið verði tilnefnt eru einnig tald-
ar þónokkrar. Hvort The Dark
Knight fái stærstu tilnefninguna
er aftur á móti stóra spurningin.
Til dæmis hlaut hún níu tilnefn-
ingar til bresku Bafta-verðlaun-
anna á dögunum en samt ekki
sem besta myndin. „Ég veit ekki
betur en að kvikmyndir séu gerð-
ar til þess að almenningur komi að
sjá þær,“ sagði Peter Guber, sem
framleiddi fyrstu Batman-mynd-
ina árið 1989. Hann hefur áhyggj-
ur af því að vinsældirnar hái The
Dark Knight þegar Óskarinn er
annars vegar. „Ef mynd er mjög
vinsæl ætti hún ekki sjálfkrafa að
vera dæmd niður í aðra deild.“
Þrátt fyrir að vinsældir hafi
hingað til verið ávísun á tilnefn-
ingaleysi hjá akademíunni eru
undantekningar frá þeirri reglu.
Má þar nefna Star Wars, Rocky og
Titanic sem voru allar tilnefndar
sem bestu myndirnar. Hlutu þær
tvær síðarnefndu á endanum verð-
launin eftirsóttu og skaut Rocky til
að mynda Taxi Driver í leikstjórn
Martins Scorsese ref fyrir rass.
Möguleikinn er því vel fyrir hendi
og hver veit nema Batman fái loks-
ins að leika sér á meðal þeirra
bestu? Það kemur allt saman í ljós
í dag. freyr@frettabladid.is
Aðdáendur Batmans vilja
tilnefningu til Óskarsins
THE DARK KNIGHT Margir kvikmyndaunnendur vonast til að The Dark Knight hljóti
náð fyrir augum Óskarsakademíunnar. Víst má telja að Heath Ledger verði tilnefndur
fyrir leik sinn í hlutverki The Joker, en óvíst er hvort The Dark Knight fá tilnefningu
sem besta myndin.
Jim Carrey og Ewan McGregor leika ást-
fangið par í svörtu kómedíunni I Love
You Phillip Morris sem var frumsýnd
á Sun dance-kvikmyndahátíðinni fyrir
skömmu.
Myndin fjallar um svindlara frá Texas
(Carrey) sem er stungið í fangelsi og verður
ástfanginn af klefafélaga sínum (McGreg-
or). Hún er byggð á sönnum atburðum og er
fyrsta leikstjórnarverkefni þeirra Glenns
Ficarra og Johns Requa, sem eru þekkt-
astir fyrir handrit sitt að Bad Santa.
I Love You Phillip Morris fær prýði-
lega dóma á heimasíðu Variety. Þar
segir að Jim Carrey leiki sitt flókn-
asta grínhlutverk síðan í The Cable
Guy. „Persóna hans er svo glæpsamleg
og samkynhneigð að áhorfendur geta
ekki annað en hlegið og á sama tíma
verið í sjokki,“ segir gagnrýnandinn.
„Hið hráa handrit Glenns Ficarra og Johns
Requa og það hversu samband Carreys og
Ewans McGregor er opinskátt gæti dregið
úr vinsældum myndarinnar en forvitnin um
„umbreytingu“ Carreys mun örugglega fá
fullt af fólki í bíó.“
Leika ástfangið par
ÁSTFANGNIR Jim Carrey og Ewan McGregor kyssast
í svörtu kómedíunni I Love You Phillip Morris.
> KATIE Í GAMANMYND
Katie Holmes hefur tryggt sér að-
alhlutverkið í gamanmyndinni
The Extra Man. Á móti henni
leika Paul Dano, John C. Reilly
og Kevin Kline. Holmes hefur
lítið sést á hvíta tjaldinu síðan
hún giftist Tom Cruise en nú
virðist hún tilbúin til að stíga
aftur fram í sviðsljósið.
REVOLUTIONARY ROAD Kate Winslet og
Leonardo DiCapro í Revolutionary Road.
Ralph Macchio, sem lék aðalhlut-
verkið í Karate Kid á níunda ára-
tugnum, vill ekki að myndin verði
endurgerð. Hann er ánægður
með að aðdáendur fyrstu mynd-
anna hafi mótmælt endurgerð-
inni. „Það er gott ef fólki finnst
að menn eigi ekki að snerta við
ákveðnum hlutum. Stundum gera
menn það en hefðu kannski betur
sleppt því,“ sagði hinn 47 ára
Macchio. „Að mínu mati verður
erfiðast að fylla skarð Hr. Miy-
agi og ná fram þeim töfrum sem
sú persóna hafði yfir að ráða.“
Jackie Chan mun líklega leika Hr.
Miyagi og sonur Wills Smith leik-
ur karatestrákinn.
Ósáttur við
endurgerð
9. HV
ER
VINN
UR!
S E N D U S M S ESL DND
Á N Ú M E R I Ð 1900
O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð !
V I N N I N G A R E R U B Í Ó M I Ð A R
Á M Y N D I N A , T Ö LV U L E I K I R , D V D ,
P E P S I O G M A R G T F L E I R A
W W W . S E N A . I S / U N D E R W O R L D
HEIMSFRUMSÝND 12 · 12 · 08
Ó M I S S A N D I F Y R I R A L L A A Ð D Á E N D U R
S P E N N U - O G H R Y L L I N G S M Y N D A .
H E I M S F R U M S Ý N D 2 3 . J A N Ú A R
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum
– Skógarlind 2. M
eð því að taka þátt ertu kom
inn í SM
S klúbb. 149 kr/skeytið.