Tíminn - 05.12.1982, Blaðsíða 31
■ „Það er kannski ekki nein sérstök
ástæða fyrir þvi að við fórum út í
tölvupoppið svokallaða. Þetta var nýtt
og forvitnilegt auk þess sem við áttum
allir hljóðgervla (syntheseizera) og
fjögurra rása upptökutæki en á það
tókum við upp okkar fyrsta lag “Skyr
með rjóma“ sögðu þeir félagarnir í
Sonus Futurae í samtali við Tímann er
við spurðum þá um tónlist þeirra
tölvupoppið. Sonus hefur nýlega sent
frá sér sína fyrstu skífu, 12 tommu, með
sex lögum en sveitina skipa þeir Þor-
steinn Jónsson, Krístinn R. Þórísson og
Jón Gústafsson
„Við byrjuðum að spila saman í
áttunda bekk en síðan slitnaði samband-
ið um nokkurn tíma. Við komum síðan
saman aftur um jólin í fyrra og þá má
segja að sveitin hafi orðið til en nafnið
kom ekki fyrr en seinna. Opinberlega
byrjuðum við síðan að spila í sumar,
fyrst í Óðali en síðan í félagsmiðstöðv-
um... skruppum svo til Akraness um
daginn en eftir að platan er komin út
förum við sennilega aftur á þessa staði
til að kynna hana“.
Félagarnir í Sonus koma allir af
Seltjarnamesinu, Þorsteinn og Kristinn
sjá um lagasmíðina en Nonni sér um
textana. Þeir segja að yfirleitt séu lögin
samin fyrst á gítar eða píanó, ekki beint
á hljóðgervlana þótt stundum komi fyrir
að allur gangur sé á þessu.. „sum lögin
hafa orðið til við að djammað sé á
hljóðgervlana en yfirleitt höfum við
samið eitthvert grunnstef áður sem við
vinnum útfrá“....
Hvað framtíð tölvupoppsins varðar
eru þeir í Sonus mjög bjartsýnir.
„Þessi bóla springur ekki strax, mjög
margar hljómsveitir em byrjaðar að
nota þessi tæki í einhverjum mæli enda
eru möguleikamir sem þau bjóða upp á
■ Hljómsveitin Sonus Futurae
..ÞETTA VAR NYIT
OG FORVIT\ILEGT”
— rætl við Sonus Futurae sem nýlega sendi frá sér
sína fyrstu plötu en tónlist þeirra flokkast undir
tölvupopp
óendanlegir, hvað varðar hljóð og
samsetningar og það mun líða mjög
langur tími þar til búið verður að nota
alla þá möguleika til hlítar auk þess sem
stöðugt er verið að finna upp eitthvað
nýtt á þessum vettvangi.
Annað er að um leið og menn fara að
nota þessi tæki að ráði til að búa til
tónlist verða menn opnari fyrir öllu og
leyfa sér meira í sköpuninni" sögðu
Sonus menn.
Þeir sem ekki þekkja Sonus hafa
kannski sé þá í Skonrokki í gærkvöldi
þar sem þeir riðu á vaðið sem fyrsta
íslenska númerið í þeim þætti, með lag
sitt „Myndband".
-FRl
Þeyr ríða
á vaðið
■ Heimsmetstilraun SATT hefst
nú um helgina. Það verður líklega
hljómsveitin Þeyr sem ríður á vaðið,
en síðan taka við aðrar þekktar og
óþckktar hljómsveitir og leika næsta
hálfa mánuðinn þar til takmarkinu er
náð.
Heimsmetstilraunin fer fram í
Tónabæ og rennur allur ágóði, ef
einhver verður í byggingarsjóð
SATT, en samtökin eru að gera
mikið átak í þeim málum um þessar
rnundir, m.a. með byggingarhapp-
drætti. Hver hljómsveit mun leika í
scx til tólf klukkustundir og ríkir
mikill áhugi meðal hljómlistarmanna
með þessa tilraun. Allir gefa þeir
vinnu sína og enn hcfur enginn
neitað ef til hans hefur verið leitað.
Gamla heimsmetið sem sett var í
V-Þýskalandi fyrir mörgum árum
hljóðar upp á 13 sólarhringa
og níu klukkustundir. Er því ljóst að
þetta verður mikil törn, cn stefnt er
að því að engin hljómsveit komi
oftar frant en einu sinni. Til að gera
þessa tilraun enn skemmtilegri verð-
ur dregið úr nöfnum allra þeirra
hljómsveita sem komast yfír sex
klukkustunda markið og fær hin
útvalda hljómsveit sex þúsund krón-
ur í verðlaun. Einnig verður dregið
úr nöfnunt þeirra sem sigrast á 12
klukkustunda múrnum, en vcrö' -
launin þar eru 20 tímar f einhverju
þeirra stúdíóa sem gefið hafa SATT
tíma í tilefni af byggingarfram-
kvæmdunum. ESE
BYGGINGARHAPPDRÆTTISATT '82
Verðlaunagetraun -
Dregið út vikulega úr réttum svörum
Ath! rétt svör þurfa að hafa borist
innan 10 daga frá birtingu hvers seðils.
SATT
SAMTÖK ALÞÝÐUTÓNSKÁLDA
OG TÓNLISTARMANNA
EFLUM LIFANDITONLIST
HVAÐ HEITA ÞESSIR TONLISTARMENN?????
Myndimar hér að ofan em af þekktum tónlistarmönnum sem allir em meðlimir i SATT (Samband Alþýðutónskálda- og Tónlistarmanna)
Ef þið vitið nöfn þeirra, skrifið þá viðeigandi nafn undir hverja mynd.
Fyllið síðan ut i reitinn hér fyrir neðan: nafn sendanda, heimilisfang, stað, símanúmer. Utanáskriftin er: Gallery Laskjartorg, Hafnarstræti 22 Rvík., sími 15310
Látið 45 kr. fylgja með og við sendum um hæl 1. miða í Byggingarhappúrætti SATT (dregið 23. des.).
ATHI Rétt svör þurfa að berast innan 10 daga frá birtingu hvers seðils, en þá verður dregið ur réttum lausnum.
ALLS BIRTAST 4 SEÐLAR FYRIR JÓL.
VINNINGAR í BYGGINGARHAPPDRÆTTISATT: (Dregið 23. des. '82)
ca
o
PQ
cn
<c
o
í.
2.
I 3'
I 4.-5.
: 6.
M
7.
8.-27.
Renault9
FiatPanda
RENAULT 9 -1 Evrópu kosinn bíll ársins '82
Verð í daq kr. 149.000.
Uttekt i hljóðfæraversl. Rin & Tónkvisl
aðupphkr. 20.000, samt.
Kenwood ferðatæki ásamt tösku
Eenwood hljómtækjasett i bilinn
Úttekt i Gailery Lækjartorgi og Skifunni
- íslenskar hljómplötur að upphæð kr. 1.000,-
kr.121.000,-
kr. 46.000,-
kr. 40.000,-
kr. 19.500,-
kr. 19.500,-
kr. 20.000.-
Dregið verður nk. fimmtudag úr réttum
/
svörum viö seðli nr. I. - Urslit birtast
i Helgarblöðunum
NAFN -
HEIMILI
STAÐUR
SÍMI —
Verðmæti vinninga alls kr. 375.000,-
Ath. utanáskrift:
Gallery Lækjartorg,
Hafnarstræti 22, Rvik, sími 15310.
Vinningar í boði í verðlaunagetrauninni:
1. IWAMA - klassískur kassagítar frá hljóðfæraversl.
Tónkvísl, verð kr. 2.330,-
HEILD ARVERÐMÆTIVINNINGA
SAMTALS KR. 2.330,-
ATH: Þú mátt senda inn eins marga
' seðla og þú vilt. Kr. 45 þurfa að fylgja
hveij'um seðli og þú færð jafnmaiga miða
í Byggingahappdrætti SATT
senda um hæl.