Tíminn - 17.10.1992, Síða 2
2 Tfminn
Laugardagur 17. joktóber 1992
Járnblendifélagið á Grundartanga:
Auka eigendur
hlutafé sitt?
Ríkisstjómin hefur ákveöið að
hefja viðræður við aðra eigendur
Jámblendifélagsins á Grundartanga
um leiðir til að bæta fjárhagslega
stöðu Jámblendifélagsins. Ein leið-
in sem skoðuð verður er að eigend-
ur félagsins leggi fram aukið hluta-
fé. íslenska jámblendifélagið er að
55% hluta í eigu íslenska ríkisins,
norska fyrirtækið Elkem á 30% hlut
og japanska fyrirtækið Sumitomo
Corporation á 15%.
Horfur em á að Jámblendifélagið
tapi um 400 milljónum á þessu ári.
Félagið tapaði yfir 400 milljónum á
síðasta ári. -EÓ
Umhverfisráðuneytið:
Magnús skipaður
ráðuneytisstjóri
Magnús Jóhannesson hefur veríð
skipaður ráðuneytisstjóri í umhverf-
isráðuneytinu. Jafnframt hefur
Magnúsi verið veitt lausn frá embætti
siglingamálastjóra, en hann hefur
verið í leyfi frá því starfi í rúmt ár
meðan hann hefur gengt starfi að-
stoðarmanns umhverfisráðherra.
Magnús Jóhannesson er fæddur á fsa-
firði 23. mars 1949. Hann lauk B. Sc.
prófí í efnaverkfræði frá Háskólanum í
Manchester í Englandi árið 1973 og
M.Sc. prófi frá sama skóla árið 1975.
Að námi loknu réðst hann til starfa
sem verkfræðingur hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og síðan sem deild-
arverkfræðingur hjá Siglingamála-
stofnun. Árið 1980 varð hann deildar-
stjóri Alþjóða- og mengunardeildar
Siglingamálastofnunar og jafnframt
staðgengill siglingamálastjóra frá
1982. Magnús var skipaður siglinga-
málastjóri 1985 og gegndi því starfi
fram á mitt ár 1991 þegar hann varð
aðstoðarmaður Eiðs Guðnasonar um-
hverfisráðherra.
Magnús er kvæntur Ragnheiði Her-
mannsdóttur æfingakennara og eiga
þau tvö böm.
-EÓ
LÍTIL SENDIBIFREIÐ valt þegar hann lenti I árekstri við bíl á mótum Súðarvogs og Sæbrautar I fyrrakvöld.
Farþegi I framsæti sendibílsins fótbrotnaði og varð að fá tækjabíl slökkviliðsins til að ná honum út úr bilnum.
Tfmamynd Sigursteinn
Sighvatur hvetur sýslu-
menn til að hækka meðlög
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra telur eðlilegt að ein-
stæðir foreldrar nýti sér í auknum mæli rétt sinn til að fara fram á
hærri meðlagsgreiðslur. Sighvatur sagði að sýslumenn felli með-
lagsúrskurði og eðlilegt sé að þeir taki í auknum mæli tillit til fjár-
hagsgetu þess foreldris sem meðlagið greiðir.
Guðný Guðbjömsdóttir, varaþing-
maður Kvennalistans, spurði heil-
brigðisráðherra á Alþingi hvort
Egilsstaðabær:
Þokkalegt atvinnuástand
Atvinnuástandið í Egilsstaðabæ
hefur verið þokkalegt sem af er en
þó eru nokkrar konur án atvinnu
vegna óvissu með framtíð pijóna-
stofunnar Dyngjunnar.
Stefán Bragason bæjarritari segir
að atvinnulífið í bænum einkennist
öðru fremur af stöðugleika: „Lítið
um toppa og lægðir.“
Nokkuð hefur verið um bygginga-
framkvæmdir í bænum, bæði af
hálfu einstaklinga og hins opinbera.
Vinna við þessar byggingar er víða
að komast á lokastig og þar sem ekki
er vitað með vissu um frekari verk-
efni fyrir byggingaiðnaðinn kann að
bregða til beggja vona um afkomu-
möguleika iðnaðarmanna þegar
fram í sækir. -grh
hann væri tilbúinn til að nýta sér
lagaheimildir til að hækka meðlags-
greiðslur til einstæðra foreldra, ann-
aðhvort almennt þannig að meðlag
nemi helmingi af framfærslukostn-
aði barns eða þannig að meðlags-
greiðslur endurspegli greiðslugetu
þess foreldris sem er meðlagsskylt.
í svari heilbrigðisráðherra kom
fram að það væri á valdi sýslumanna
að úrskurða um upphæð meðlags-
greiðslna. Lágmarksmeðlag má ekki
vera lægra en sem nemur bamalíf-
eyri á hverjum tíma. Ráðherra sagð-
ist geta beitt sér fyrir að bamalífeyr-
ir verði hækkaður en svaraði því
ekki hvort hann hygðist gera það.
Hann sagði að þessi mál öll séu í
skoðun í framhaldi af niðurstöðu
sérstakrar nefndar sem fjallaði um
tryggingabætur til einstæðra for-
eldra.
„Þessi ákvörðun er í valdi sýslu-
manns. Hann getur úrskurðað, sam-
kvæmt gildandi lögum, þá meðlags-
greiðslu sem hann telur eðlilega
miðað við framfærslukostnað og
miðað við fjárhagsgetu þess foreldr-
is sem meðlagið á að greiða. Það er
ekkert í lögum sem kemur í veg fyr-
ir það. Hins vegar hafa þeir, sem um
þessi mál hafa fjallað hingað til, af
einhverjum ástæðum ekki gert slíkt
nema í algjömm undantekningartil-
vikum. Heilbrigðisráðuneytið mun
beita sér fyrir því að kynna fólki rétt
sinn til þess að fara fram á hærri
meðlagsúrskurð en sem nemur
bamalífeyri og mun ítreka ósk um
að sýslumenn skoði þau mál við úr-
skurð á meðlagsgreiðslum," sagði
Sighvatur. -EÓ
Rekstur Flugleiða:
Tapið nemur
66 millj. kr.
Flugleiðir töpuðu 66 milljón-
um kr. á fyrstu sjö mánuðum árs-
ins en á sama tíma í fyrra var
hagnaður 64 millj. kr.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu. Þar segir að af-
koma þessa mánuði hafi versnað
um 130 milljónir króna milli ára.
Sigurður Helgason, forstjóri fé-
lagsins, segir að félagið verði að
laga útgjöld að þessum staðreynd-
um.
Hann bætir við að þessa versn-
andi afkomu megi rekja til þess að
rekstrartekjur eru 7% lægri en í
fyrra á sama tíma og rekstrargjöld
hafi aðeins lækkað um 3%. Aðal-
ástæðan fyrir minni tekjum eru
lægri fargjöld.
Stjómendur Flugleiða eru nú að
skoða allar ieiðir til að draga úr
kostnaði við reksturinn. Til greina
kemur að fækka starfsfólki. Tals-
menn Flugleiða hafa þó sagt að
hópuppsagnir séu þó ekki á dag-
skránni. -HÞ
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BIRMINGHAM
Maastricht bjargaö?
Leiðtogar EB landanna hófu neyöar-
fund I gær til bjargar Maastricht sam-
komulaginu sem ógnaö er af mótþróa
Dana og Breta sem vilja ekki sæta yf-
irstjórn skrífræöisafla I Brussel.
SARAJEVO
Rafmagn kom og fór
Rafmagn komst á aftur I Sarajevo I
gær en borgin hefur veriö straumlaus
I þrjár vikur. Þaö stóö þó ekki lengi
viö þvl aö háspennullnumastur var
skotiö niöur nokkrum tlmum slöar aö
sögn rafveitustjóra borgarinnar.
GENF
Ógnavetur framundan
Hjálparstofnanir beijast nú viö þaö
aö flytja sem allra mest af vistum og
fatnaöi til Júgóslavfu. Vetur er þar aö
ganga I garö og kuldar og vosbúö
ógna lífi 400 þúsunda fólks.
BANDARlKIN
Bush slappur
Bush forseti kom stjórnmálaskýr-
endum á óvart meö aö ráðast ekki aö
Clinton I kappræöu forsetaframbjóð-
enda meö áburö eöa getsakir um
landráö. Þess I staö var hann I vöm I
kappræöunni og þótti afar linur.
Möguleikar Clintons til aö ná forseta-
kjöri þykja hafa aukist eftir kappræö-
una.
BEJING
Forystan yngd upp
Blaö I Bejing segir aö kommúnista-
flokkurinn hyggist yngja rækilega upp
I liöi æöstu embættismanna rlkis og
flokks. Leiötogi Klnakomma, Deng
Xiaoping, er 88 ára og nánustu sam-
starfsmenn hans eru á svipuöu reki.
OSLO
Friöarverölaun Nóbels
Friöarverölaun Nóbels 1992 féllu I
skaut Rigobertu Menchu frá Guate-
mala. Hún er indíáni og hefur leitt
réttindabaráttu indlána I S- Ameríku.
MOSAMBIK
Loks vopnahlé
Jóakim Chissano forseti Mósambik
segir aö vopnahlé milli stjómar lands-
ins og Renamo uppreisnarmanna
hafi nú komist á eftir 16 ára borgara-
styrjöld og aö friöarsamningar hafi
veriö undirritaöir.
ANGOLA
Engir friðarsamningar
Hætta varö viö fund milli Jose Edu-
ardo dos Santos, forseta Angóla, og
Jónasar Savimbi sem halda átti I dag
vegna þess aö á siöasta augnabliki
kraföist Jónas þess aö úrslit I nýaf-
stöönum forsetakosningum yröu gerö
opinber.
DENNI DÆMALAUSI