Tíminn - 17.10.1992, Qupperneq 11
Laugardagur 17. október 1992
Tfminn 11
K.‘:
Abu AbdulAziz, foringi f heilögu stríöi og barnakennari.
Krossferðaandi vakn-
ar
Aðrir TVrkir, Ósmanar nefndir,
urðu endingarbetri en Seldjúkar
og stofnuðu stórveldi, sem að víð-
áttu slagaði hátt upp í Arabaveldi
hið forna. Ósmanar unnu Konst-
antínópel, einn af höfuðstöðum
kristninnar frá fornu fari, 1453 og
gerðu hana að íslamskri Istanbúl.
Sálrænt varð það mikið áfall fyrir
kristnina.
Ósmanar gerðu aðra innrás ís-
lams í röðinni í Evrópu, og í þetta
sinn var álfan sótt úr suðaustri.
TVrkjaveldi Ósmana braut undir
sig allan Balkanskaga, síðan Ung-
verjaland eftir sigur sinn við Mo-
hacs 1526 og gerði því næst
áhlaup á Vínarborg, sem í rúmlega
hálfa aðra öld varð helsta varnar-
virki Mið- og Vestur-Evrópu (og
vesturkristninnar þar með) gegn
TVrkjaveldi og íslam. Austar gerð-
ust Mongólar, sem á 13. öld lögðu
undir sig kristið Rússland, tyrk-
neskir að máli og íslamskir að trú.
Kristnin hafði upphaflega náð
fjöldafylgí sem einskonar stjórnar-
andstöðuhreyfmg í Rómaveldi, en
breiddist síðan út í skjóli ríkisvalds
þess o.fl. ríkja. Atlögurnar frá ís-
lam hafa að öllum líkindum gert
hana herskárri. Þess kunna heiðn-
ir Saxar að hafa goldið er Karla-
magnús Frankakeisari knúði þá til
kristni með hernaði og fjölda-
morðum um 800. Krossferðimar
margfrægu, heilög stríð af kristn-
innar hálfu, hófust öðmm þræði í
varnarskyni gegn sókn Seldjúka á
hendur Býsans, fyrir utan trúar-
legan vilja til að endurheimta upp-
hafslönd kristninnar. Kristni
Spánverja gagntókst af krossferða-
anda í margra aldra stríðum við ís-
lam á Pýreneaskaga og af því
máttu indíánar o.fl. súpa seyðið.
Hliðstæð áhrif hafði viðureignin
við íslam á Rússa. Þeir þreyðu fyrst
undir ruddalegu og niðurlægjandi
oki íslamskra tartara og útþensla
Rússaveldis gífúrleg varð möguleg
öðru fremur á grundvelli stríðs-
sigra á íslömskum ríkjum, tartör-
um Suðaustur- og Suður-Rúss-
lands og Tyrkjaveldi Ósmana. Þau
stríð vom a.m.k. öðmm þræði
heilög í augum Rússa og í þeim
vöndust þeir á að eigna þjóð sinni
og ríki heilagleika, sem átt hefur
drjúgan þátt í mótun viðhorfa
þeirra gagnvart umheiminum
Bókstafshyggja í
sókn
Frá því síðla á 17. öld fór TVrkja-
veldi yfirleitt halloka í hernaði
gegn kristnu stórveldunum Aust-
urríki og Rússlandi og innan þess
var þá tíð stöðnunar og hnignun-
ar, er svo lauk að kristin veldi
sundurlimuðu það í lok heims-
styrjaldarinnar fyrri. Þá hafði
gagnsókn kristninnar gegn íslam
náð það langt að heita mátti að
gervallur íslamsheimur væri und-
ir yfirráðum kristinna ríkja eða
háður þeim að einhverju marki.
Margir spáðu því þá að tími trúar-
stríða væri liðinn. Kristni heimur-
inn, nú ríkjandi á hnettinum, var
fyrir löngu orðinn næsta verald-
legur í viðhorfum og þess sáust
merki að þau viðhorf breiddust út
til íslams. Veraldlega sinnaðir
valdhafar reyndu að breyta ríkjum
þar eftir evrópskum/vestrænum
fyrirmyndum.
En eftir heimsstyrjöldina síðari
voru Evrópuríkin — að Sovétríkj-
unum frátöldum — veikburða og
misstu yfirráð í Asíu og Afríku, þ.á
m. yfir íslömskum löndum. Við
það dró úr virðingu múslíma al-
mennt fyrir kristna heiminum.
Einskonar sósíalismi, sem sum ís-
lamsríki höfðu um skeið á oddin-
um og studdist hvað helst við sov-
éskar fyrirmyndir, þótti ekki
heppnast vel og þvarr nánast full-
komlega að áliti við hrun sovét-
kommúnismans. Við það urðu og
áður rússnesk/sovésk íslamslönd í
Kákasus og Mið-Asíu sjálfstæð
ríki.
Jafnframt þessu óx ásmegin
bókatafshyggju (fundamental-
isma) íslams, herskárri og út-
þenslusinnaðri stefnu sem beinir
mjög spjótum sínum gegn áhrif-
um frá kristna heiminum og hon-
um sjálfum. Bókstafssinnar koll-
vörpuðu veraldlega og vestrænt
sinnuðum keisaradómi í íran og
hafa orðið mikil völd og áhrif í
flestum öðrum íslamslöndum.
Þessi hreyfing ætlast til að þjóðfé-
lögunum sé í einu og öllu stjórnað
í samræmi við lögmál íslams. Það
þýðir að samkvæmt bókstafs-
hygájunni er fullt jafnrétti með ís-
lam og öðrum trúarbrögðum
óhugsandi. Allmiklum erfiðleik-
um mundi vera bundið að reyna
að samræma þetta vestrænum
hugmyndum og lýðræði og fjöl-
ræði (plúralisma).
Verður Kosovo
næst?
íslamsheimur á ekki hægt um vik
við að aðstoða Bosníumúslíma,
þar eð flutningar til þeirra verða
að fara fram um yfirráðasvæði
Króata, og Króatar eru vísir til að
loka þeim leiðum þá og þegar, ef
mujahedin gerast of umsvifamikl-
ir í Bosníu að þeirra dómi. Hins-
vegar er margra spá að þá og þegar
fari allt í bál og brand milli Serba
og íslamskra Albana í Kosovo, og
inn í slíkan ófrið myndi Albanía,
íslömsk á ný eftir að trúarbragða-
bann Hoxha heitins er að engu
orðið, að öllum líkindum dragast.
Albanía hefur hafnir, svo að þang-
að væri auðvelt að koma vopnum
og hjálparliði frá íslamska heimin-
um. Hætt er við að Grikkjum og
Búlgörum, með Tyrkland hinum
megin við sig, færi þá að þykja
þröngt fyrir dyrum.
í Transkákasíu hefur um skeið
geisað stríð milli kristinna Ar-
mena (sem hafa elstu ríkiskirkju
heims) og tyrkneskra og íslamskra
Azera. TVrkir og Azerar útrýmdu
Armenum að miklu leyti fyrr á öld-
inni og Armenar óttast að þessir
grannar þeirra hyggist nú ljúka
því verki. Meðal TVrkja og Azera
heyrast raddir um að Armenía,
sem liggur á milli landa þessara
tveggja tyrknesku þjóða, sé óþol-
andi þröskuldur er hindri samein-
ingu TVrkjafólks annars vegar í
TVrklandi og hins vegar í Azerbæd-
sjan og Mið-Asíu.
í Mið-Asíu hefur afganska óöldin
breiðst út inn í Tadsjíkistan og
Rússar og aðrir Evrópumenn þar
óttast ofsóknir af hálfú múslíma
eða eru þegar famir að sæta þeim.
í Kazakstan, þar sem tyrkneskir og
íslamskir Kazakkar eru nú við
völd, er fjölmennur rússneskur
minnihluti uggandi um sinn hag. í
Rússlandi hafa íslamskir tartarar
og Tjetjenar lýst yfir sjálfsstjórn
eða sjálfstæði, í trássi við rússnesk
stjómvöld. Eftir takmörkuðum
fréttum af borgarastríðinu í Súdan
að dæma, hefur það snúist upp í
útrýmingarhernað bókstafssinn-
aðrar íslamskrar ríkisstjómar
gegn kristnum og heiðnum
blökkumönnum.
Ótti Evrópu við íslam er sam-
ofinn kvíða út frá mikilli fólks-
fjölgun í íslamslöndum, á sama
tíma og kristnum Evrópuþjóðum
fjölgar ekki og jafnvel fækkar.
Fólksfjölgunin í íslamsheimi hef-
ur þegar leitt af sér, ásamt með
öðm, mikinn innflutning músl-
fma til Evrópu. í mörgum ríkjum
þar hafa á fáeinum áratugum vaxið
upp fjölmennir íslamskir minni-
hlutar. Samkvæmt einni heimild
em múslímar þegar 8% íbúa
Frakklands.
ítök bókstafshyggju meðal þess-
ara minnihluta em vemleg og þar
með í þjóðfélögum þessum í heild
sinni. Það sýnir sig t.d. f því að
breskur rithöfúndur af íslömskum
ættum, Salman Rushdie, verður
að vera í felum í eigin landi vegna
þess að yfirvöld þess treysta sér
ekki til að vernda hann með öðm
móti gegn ofsóknum bókstafstrú-
aðra múslíma.
Sérstaklega Suður-Evrópuríkin
óttast að framundan sé stóraukinn
innflutningur fólks frá Atlaslönd-
um, vegna bæði innanlandsátaka
þar út frá sókn bókstafshyggju og
fólksfjölgunar. Sumir Suður-Evr-
ópumenn kvíða því að út frá þessu
spinnist illindi við íslömsku ríkin
sunnan Miðjarðarhafs, sem sum
verða kannski áður en varir komin
með í hendurnar eldflaugar hlaðn-
ar gereyðingarvopnum.
Ótrúlegt
afmælisverð!!!
Síðustu íækin á þessu einsfaka verði
3V;
t - . tr/úsr
20" litsjónvarp + myndbandstæki............49.900 stgr. Aðeins 19 stk. eftir
5132 Adyson 20" litsjónvarp m/flarst.......27.900 stgr.
2800 ELTA myndbandstæki m/fjarst...........24.900 stgr.
2032 ELTA 20" litsjónvarp m/fjarst..........29.900 stgr. Aöeins 8 stk. eftir
2013 ELTA14" litsjónvarp m/ljarst...........22.900 stgr. Aðeins 6 stk. ettir
2616 ELTA hljómflutningstæki ...............25.900 stgr. Uppselt
(útv., pl.sp., geislaspilari, tvöf. kassettut., tónjafnari og tveir hát.)
CD-25 Stariite bíltæki með CD- spilara.....26.900 stgr. Aðeins 9 stk. eftir
7660 ELTA bíltæki með stöðvaminnum.........9.900 stgr.
Sjónvörp - myndbandstæki ■ hljómtæki ■ ferðaútvörp ■ útvarpsklukkur
vasadiskó ■ ferðatæki ■ heyrnartól ■ hljómborð ■ bíltæki - bilhátalarar
TONVER
Garðastræti 2, Reykjavík, sími 91-627799.
Sendum hvert á land sem er
Þýskt gæðamerki — Munalán — Ábyrgð.
Félagshyggja
í fögru landi
Ég undirritaður/uð óska hér með að gerast áskrifandi að Tímanum Nafn áskrifenda: ^ É ^ rr-'* r I T íminn
Heimilisfang: Póstnúmer:
Sími: Lynghalsi 9.110 Reykjavík Póstfax 68769. Pósthólf 10240
__ __ __ _________________ j