Tíminn - 17.10.1992, Qupperneq 15
Laugardagur 17. október 1992
Ttminn 15
korti gegn því að skila inn trygging-
arvíxli með tveimur ábyrgðara-
mönnum. Jaínframt geta þeir fengið
sérstakt námsmannadebetkort, sem
hægt er að nota víða um heim og
tekur væntanlega gildi um áramót.
Hópum skólafólks, sem hyggjast
fara til útlanda t.d. í útskriftarferða-
lög, er boðið upp á skólaferðalán.
Hópurinn leggur mánaðarlega
ákveðna upphæð inn á reikning,
sem er laus í lok þess spamaðartíma
sem ákveðinn hefúr verið. Þegar
haldið er utan á hann kost á skóla-
ferðaláni. Sparisjóðurinn tekur tillit
til aðstæðna og lánsupphæðin er
samningsatriði hverju sinni.
Námsmenn erlendis
'Námsmönnum erlendis bjóða
sparisjóðirnir upp á sérstaka þjón-
ustu, sem er að grunni sú sama og
veitt er námsfólki innanlands, en að
auki taka þeir að sér að senda náms-
lán inn á reikning viðkomandi er-
lendis. Námsmaðurinn þarf að fylla
út yfirlýsingu áður en hann fer, þar
sem kemur fram hvar hann býr,
hvert hann vilji fá peningana,
hversu oft hann vill fá millifærslu
o.fl. Sparisjóðimir taka enga þókn-
un fyrir að senda gjaldeyrinn þannig
að einungis þarf að greiða sending-
arkostnað. Einnig gefst kostur á
telefaxþjónustu, þannig að ef náms-
maður þarf td að senda símbréf til
umboðsmanns á íslandi er hægt að
senda það til sparisjóðsins, sem
sendir það síðan áfram til umboðs-
mannsins. Þá er boðið upp á ókeypis
greiðslu- og innheimtuþjónustu fýr-
ir námsfólk erlendis.
Að loknu framhaldsnámi eiga
námsmenn, sem hafa verið í við-
skiptum við sparisjóðina í þrjú ár
eða lengur, kost á námslokaláni.
Lánið er einkum ætlað þeim sem
standa í húsnæðiskaupum. Það get-
ur numið allt að einni milljón króna
og verið til sjö ára. Hafi námsmaður
verið í viðskiptum við sparisjóð í
skemur en þrjú ár er hvert tilvik
metið fyrir sig.
Félögum í Liðveislu sparisjóðanna
býðst margvísleg fjármálaráðgjöf,
s.s. á sviði innláns- og verðbréfavið-
skipta, útskrift á greiðslubyrði
skuldabréfa og auk þess veita spari-
sjóðirnir ráðgjöf varðandi LÍN.
Þá má nefna að við inngöngu í Lið-
veisluna fá námsmenn vandaða
skipulagsbók. Einnig skipuleggur
Liðveislan annað slagið fjölbreyttar
uppákomur s.s. tónleika og dans-
leiki.
Allir þjónustufulltrúar sparisjóð-
anna sinna málefnum námsmanna.
Þeir hafa allir sótt sérstök námskeið
hjá LÍN, þar sem farið var í gegnum
reglur Lánasjóðsins, og eiga því að
vera nokkuð vel undir það búnir að
svara þeim málum sem upp koma.
Námsmenn utan af landi, sem vilja
halda viðskiptum við sinn sparisjóð,
geta sinnt nær öllum sínum málum
í gegnum sparisjóðina á höfuðborg-
arsvæðinu. Hjá SPRON fást til að
mynda tékkhefti frá flestum spari-
sjóðum á landinu.
Stjórntækni-
skóli íslands
Skólinn sérhæfir sig í námskeiðum
sem lúta að mannlegum samskipt-
um og stjórnun, þar sem áhersla er
lögð á árangursrík samskipti, fram-
komu og tjáningu. Lögð er áhersla á
virka þátttöku eintaklinganna og að
hver og einn fái þjálfun í að beita sér
af fullum þunga og einurð án þess að
skaða aðra.
Námið er fyrir alla þá sem vilja
dýpka skilning sinn á mannlegum
samskiptum og auka færni sína til að
umgangast aðra og skapa gott and-
rúmsloft í kringum sig.
Nánari upplýsingar:
Stjórntækniskóli íslands
Höfðabakka 9
112 Reykjavík
S: 91-671466
— 1 'mSmml Greiðslukortaþjónusta
ÁímEiÐ?
Það fylgir því talsverð fyrirhöfn
að ffytjast búferlum. Meðal annars þarf
að pakka búslóðinni niður, ganga ftá
bókunum í skip, flutningsskjöium
og tiyggingum, fá útflutningsleyfi og huga
að tollafgreiðslu og greiðsluskilmálum.
Láttu EIMSKIP einfalda
þér verkið. Hafðu samband í tíma
og fáðu bækling
EIMSKIPS um búslóðarflutninga
ásamt þjónustuáætlun sendan til þín.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
Reykjavík, sími 1-697100
lUUÍsOtÍfúj
HÖFÐABAKKA9
SÍMI634000
ICJL TRAUST NAFN
í HEIMI VÉLSLEÐAMANNA
Fjölbreytt úrval af vara- og aukahlutum.
Leggjum áherslu á góöa og trausta
varahlutaþjónustu í allar gerðir vélsleöa
Veröum meö á lager helstu varahluti
Sérpantanir - Hagstætt verö.
Áralöng reynsla og þjónusta