Tíminn - 17.10.1992, Page 18
18 Tíminn
Laugardagur 17. október 1992
Ingólfur Guðmundsson á markaössviöi Landsbankans:
Landsbankmn hóf fyrstur banka
að bjóða sérstaka þjónustu fyrir
námsmenn í september árið
1989 með stofnun Námunnar. í
dag eru Námufélagar yfir tíu þús-
und talsins, en þetta er langfjöl-
mennasta bankaþjónusta náms-
mannna á landinu.
„Með Námunni bjóðum við náms-
mönnum upp á heildarlausn í banka-
viðskiptum," segir Ingólfur Guð-
mundsson á markaðssviði Landsbank-
ans. „Markmiðið er að bjóða náms-
mönnum bestu fjármálaþjónustuna á
markaðinum. Við höfum verið leið-
andi á þessu sviði og tíu þúsund virkir
Námufélagar eru okkar besta auglýs-
ing. Landsbankinn hefur haft foryst-
una og ætlar að halda henni.“ Náms-
mannnaþjónusta Landsbankans var
íyrsta skref bankans til þess að fara út
í heildarþjónustu við ákveðinn hóp
viðskiptavina og var í raun ákveðin
þróun í þjónustu bankans. Það skal
tekið fram að gefnu tilefni að bankinn
hefúr ekki gert sérsamninga við ein-
staka hópa námsmanna, heldur sam-
starfssamninga við skóla og samtök
námsmanna.
Náman samanstendur af mörgum
þáttum. Námsmönnum er boðið upp á
að stofna Einkareikning, sem er
tékkareikningur með dagvöxtum.
Þeim gefst kostur á að fá 50 þús. kr. yf-
irdráttarheimild þar sem einungis
þarf að greiða fyrir þann hluta sem er
nýttur. Að auki er Námufélögum boð-
in mjög sveigjanleg Einkareiknings-
lán. Lánþegum LÍN gefst kostur á að
fá Námureikningslán til framfærslu á
meðan beðið er eftir greiðslum frá
Lánasjóðnum. Þau geta numið allt að
100% af væntanlegu láni og felast í yf-
irdráttarheimild sem námsmaður get-
ur látíð hækka eftir því sem líður á
veturinn.
Þjónusta Námunnar er opin öllum
námsmönnum frá 16 ára aldri. Bank-
inn setur einungis þau skilyrði að þeir
sem ganga í Námuna stofni Einka-
reikning. Jafhframt verður viðkom-
andi að fallast á að námslánin séu sett
beint inn á reikninginn, en þetta á að
sjálfsögðu aðeins við um þá sem taka
lán hjá LÍN. Þeir sem gerast aðilar að
Námunni geta fengið greiðslukort
strax við upphaf viðskipta. Námsmenn
undir 18 ára aldri eiga þó ekki kost á
að fá afhent greiðslukort eða tékk-
hefti, þar sem það er óheimilt sam-
kvæmt lögum. Að öðru leyti njóta þeir
sömu réttinda og aðrir viðskiptavinir
bankans.
Landsbankinn afhendir félögum í
Námunni ókeypis filofax minnisbók
strax við upphaf viðskipta. Þá eru ár-
lega veittir á- vegum bankans sjö
námsstyrkir og eiga allir Námumenn
kost á að sækja um þessa styrki. Um-
sóknir hafa verið auglýstar í dagblöð-
unum (en upplýsingar um þá er einn-
ig hægt að fa í útibúum Landsbank-
ans) og skal senda inn upplýsingar um
námsferil, heimilishagi og framtíðar-
áform fyrir 16. mars nk.
Lanndsbankinn annast móttöku
skjala fyrir lánasjóðinn en í öllum af-
greiðslum bankans liggja frammi
eyðublöð og bæklingar lánasjóðsins.
„Yfir 10 þúsund
virkir Námufélagar“
Þjónustufulltrúar bankans hafa í sum-
ar verið sendir á sértök námskeið í
málefnum LÍN, en hver og einn
Námufélagi fær alla þjónustu og fyrir-
greiðslu hjá sínum þjónustufulltrúa í
viðkomandi útibúi.
Frá upphafi hefur Landsbankinn haft
frumkvæði og forystu í að þjónusta
námsmenn erlendis en samkvæmt
upplýsingum bankans er nú svo kom-
ið að um 90% íslenskra námsmanna
erlendis eru félagar í Námunni. Þessi
árangur hefur vakið nokkra athygli,
m.a. hlaut markaðsdeild bankans að
þessu tilefni 2. verðlaun fyrir besta
beina markaðssetningarátakið á Norð-
urlöndum sl. vetur. Megnið af þjón-
ustu við námsmenn erlendis annast
Austurbæjarútibúið, sem er í sama
húsnæði og Lánasjóðurinn.
Ingólfur vill að lokum taka fram að
unnið er að frekari þróun á þjónustu
Landsbanka íslands við námsmenn. í
því sambandi eru margar hugmyndir
uppi, en allar ábendingar frá náms-
mönnum um bætta þjónustu eru vel
þegnar.
Námsmenn/Námufé-
lagar á íslandi. Nánari
upplýsingar
Sparireikningun
Þarf að leggja inn 3 þúsund kr. við
stofnun reiknings. Þú færð afhent
Einkakort sem veitir þér aðgang að
25 Hraðböknum.
Einkareikningun
Einkareikningnum fylgja ýmis
hlunnindi, en ætlast er til að náms-
lánin séu lögð inn á þennan reikn-
ing. Við stofnun þarf að leggja inn 15
þúsund kr. Námsmenn eiga kost á
300 þúsund kr. Einkareikningsláni
með sveigjanlegum afborgunarskil-
málum. Mögulegt er að fá 50 þúsnd
kr. yfirdrátt. Aðeins þarf að greiða
fyrir heimildina sé hún notuð og þá
af þeirri upphæð sem er í mínus
hverju sinni.
Sparivelta:
Þeir námsmenn sem legga fyrir
reglubundið inn á Spariveltu þann
tíma sem þeir fá greidd laun eiga
hugsanlega kost á að fá Námureikn-
ingslán á lægri vöxtum en aðrir.
Lágmarks spamaðartími á Spari-
veltu er aðeins 3 mánuðir. Sparivelt-
an virkar hvetjandi á þá sem vilja
sýna fyrirhyggju og eiga varasjóð
fyrir veturinnn og hafa tök á að
leggja smáræði til hliðar mánaðar-
lega.
Námureikningslán:
Er svar bankans við breyttum regl-
um LÍN. Það felst í yfirdráttarheim-
ild, sem námsmaður getur látið
hækka eftir því sem líða tekur á vet-
urinn. Námsmaður greiðir einungis
vexi af mínusstöðu hvern dag.
Námsmaður getur lækkað yfirdrátt
sinn með því að leggja inn tilfallandi
greiðslur sem hann fær. Náist tilskil-
inn námsárangur ekki geta endur-
greiðslur verið sveigjanlegar.
Námsmenn/Námufé-
lagar erlendis. Frekari
upplýsingar
Einkareikningun
Grundvöllur þess að geta nýtt sér
skuldfærslu á greiðslukortareikning-
um og/eða lánafyrirgreiðslu í formi
skuldabréfs eða yfirdráttarheimildar
er stofnun Einkareiknings. Hægt er
að fá allt að 50 þúsund kr. yfirdráttar-
heimild. Aðeins þarf að greiða vexti af
þeirri fjárhæð, sem er í mínus. At-
huga þarf að veita umboðsmannni
eða öðrum umboð til að annast hugs-
anlega lántöku. Stöðluð eyðublöð
liggja fyrir.
Námureikningslán:
Sjá upplýsingar fyrir innlenda náms-
menn.
Sparivelta:
Sjá upplýsingar fyrir innlenda náms-
menn.
Námslokalán:
Sjá upplýsingar fyrir innlenda náms-
mennn. Námsmenn erlendis eiga rétt
á fá allt að helming lánsins tveim al-
manaksmánuðum áður en námi lýk-
ur.
Einkanáman:
Vegleg minnisbók (filofax) afhent
endurgjaldslaust við inngöngu í
Námuna.
Styrkveiting:
Einu sinni á ári eru veittir sjö styrk-
ir til Námufélaga.
Námslokalán:
Þeir sem hafa verið í viðskiptum við
bankann öðlast sjálfkrafa rétt til
námslokaláns. Önnur lán viðkom-
andi í bankanum koma til frádráttar.
Greiðslukort:
Öllum Námufélögum gefst kostur á
að fá greiðslukort við 18 ára aldur.
Cjaldeyrisreikningun
Þeir bera í mörgum tilfellum hærri
vexti en bjóðast á óbundnum reikn-
ingum erlendis. Við afgreiðslu á gjald-
eyri er tekin lægsta leyfileg þóknun,
nú 0,4%. Ef óskað er eftir að fá milli-
fært af þessum reikningi inn á reikn-
ing erlendis er nauðsynlegt að fylla
skilmerkilega út millifærslubeiðni.
Millifærslan á sér stað í SWIFT-kerf-
inu og er kostnaður fyrir hverja send-
ingu á erlendan banka nú 540 kr.
Ráðgjafi í Austurbæjarútibúi:
Hægt er að snúa sér beint til Odd-
bjargar ögmundsdóttur eða Einars
Gröndal í síma 354 1 606729 (fax: 354
129759).
6 0 D Þ JONUSTA,
MARGRA ÁRA REYNSLA
midsviifý
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 634000.
\