Tíminn - 17.10.1992, Side 20
20 Tíminn
Laugardagur 17. október 1992
Samvinnuháskól-
inn á Bifröst
Samvinnuháskólinn að Bifröst í
Borgarfirði er sérskóii á háskóla-
stigi, sem veitir samvinnuháskóla-
próf í rekstrarfræðum og tekur
námið tvö ár. Náminu er skipt í fjög-
ur misseri og er hvert þeirra fjórir
mánuðir í fullu og stöðugu námi. Á
hverju misseri beinist námið að til-
teknu viðfangsefni, s.s. að þjóðfélagi
og lögformlegu og efnahagslegu
umhverfi atvinnurekstrarins, á öðru
misseri að markaðsstjórnun ásamt
ýmsum skyldum sérgreinum o.s.frv.
Umsækjendur um rekstrarfræði-
nám við Samvinnuháskólann verða
að hafa lokið stúdentsprófi af hag-
fræði- eða viðskiptabraut eða öðru
sambærilegu námi. Þeir umsækj-
endur hafa forgang, sem orðnir eru
meira en tuttugu ára að aldri og hafa
öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu.
Auk rekstrarfræðináms býður skól-
inn upp á nám í Frumgreinadeild,
sem er eins árs undirbúningsnám
fyrir rekstrarfræðinám. Inntökuskil-
yrði í það nám er þriggja ára nám á
framhaldsskólastigi, án tillits til
námsbrauta.
Nánari upplýsingar:
Samvinnuháskólinn á Bifröst
311 Borgamesi
S: 93-50000
Þroskaþjálfaskóli
(slands
Þroskaþjálfaskólinn er ríkisskóli,
sem starfar undir yfirstjórn Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
is. Nám við skólann tekur þrjú ár og
em inntökuskilyrði þau, að viðkom-
andi verður að hafa náð 18 ára aldri,
hafa lokið stúdentsprófi (annað nám
er þó viðurkennt, ef skólastjóm met-
ur það gilt) og í þriðja lagi þarf við-
komandi að hafa starfað í a.m.k. í sex
mánuði á stofnun fyrir fatlaða.
Eins og áður sagði er námstíminn
þrjú ár, en þó er heimilt að ljúka
námi á allt að fimm ámm. Námið er
bæði bóklegt og verklegt og tekur
bóknám 2/3 hluta námstímans, en
verklega námið 1/3 hluta. Skóla-
stjóri er Bryndís Víglundsdóttir.
Nánari upplýsingar:
Þroskaþjálfaskóli íslands
Skipholti 31
105 Reykjavík
S: 91-814390
Ferðaskóli
Flugleiða
Ferðaskóli Flugleiða var settur í
(yrsta sinn 12. október síðastliðinn,
en námið var fyrst auglýst í vor.
Skólanum er ætlað að bjóða upp á
undirbúningsnám fyrir störf í ferða-
þjónustu og er farið í fargjaldaút-
reikning, farseðlaútgáfu, ferðalanda-
fræði, sölutækni og vinnu við al-
þjóðlega tölvudreifikerfið Amadeus.
Námið á Ferðabrautinni er 400
stundir og er kennt frá kl. 13-17 alla
virka daga.
Eftir áramótin hefst síðan kennsla á
Hótelbraut, sem einnig verður 400
stunda nám og í því felst undirbún-
ingur fyrir störf við gestamóttöku
hótela. Brautirnar við Ferðaskóla
Flugleiða verða þrjár, en undirbún-
ingurinn að stofnun Flugbrautar er
þegar hafinn hjá skólanum. Þar er
ætlunin að bjóða upp á átta vikna
námskeið fyrir verðandi flugfreyjur
og flugþjóna.
Nánari upplýsingar:
Ferðaskóli Flugleiða
2. hæð Hótel Esju
Reykjavík
S:690100
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
Aðalaðsetur Stýrimannaskólans er
í Reykjavík, en þó em einnig stýri-
mannaskólar í Vestmannaeyjum og
á Dalvík. Nám við skólann í Reykja-
vík skiptist í fjögur stig, en aðeins er
kennt á fyrstu tveimur stigunum í
skólunum í Eyjum og á Dalvík.
Almenn inntökuskilyrði í skólann
og í 1. stigs skipstjórnarpróf er 24
mánaða hásetatími eftir 15 ára aldur
á skipum yfir 12 rúmlestir, en þó er
skólameistara heimilt að meta ann-
an siglingatíma. Þá þarf viðkomandi
að kunna sund, auk þess sem vott-
orð um sjón, heyrn og málfæri þarf
að liggja fyrir. Auk þess þarf um-
sækjandi að hafa gmnnskólapróf.
Eins og áður sagði geta nemendur
fengið 1. og 2. stigs skipstjórnarrétt-
indi í skólunum í Eyjum og á Dalvík,
en 3. og 4. stig verða menn að sækja
í skólann í Reykjavík.
Nánari upplýsingar:
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
105 Reykjavík
Vélskóli fslands
Hlutverk Vélskólans er að veita
nemendum bóklega og verklega
menntun, sem gerir þá hæfa til að
hljóta prófskírteini á fjórum stigum
og geta tekið að sér störf í þágu at-
vinnuveganna til lands og sjávar.
Til að fá inngöngu í skólann þarf
viðkomandi að hafa lokið gmnn-
skólanámi, eða að hafa náð 18 ára
aldri. Námið tekur 10 annir, eða þrjú
ár.
Nánari upplýsingar:
Vélskóli íslands
105 Reykjavík
Jón Gunnar Aöils. „ Við vildum að lánafyrirgreiðslan yrði einföld og þægileg fyrir náms menn. “
íslandsbanki markaðssetur Menntabraut undir kjörorðinu „frá
menntun til framtíðar":
Yfirgripsmikil þjón-
usta sniðin að pörf-
um námsmanna
í byijun þessa árs hóf íslandsbanki að þróa sérstaka þjónustu
fyrir námsmenn. Við þá vinnu fékk bankinn í lið með sér náms-
menn, frá framhaldsskólunum, sérskólum og Háskóla íslands.
Útkoman varð Menntabraut íslandsbanka, en þar voru annars
vegar hafðar að leiðarljósi þarfir námsmanna 18 ára og eldri og
hins vegar breytingar sem urðu á úthlutunarreglum Lánasjóðs
íslenskra námsmanna í sumar.
Menntabrautin er yfirgripsmik-
il þjónusta, sniðin að þörfum
námsmanna í námi hér á landi og
erlendis. Með því að skrá sig á
Menntabrautina tryggir náms-
maður sér greiðan aðgang að sér-
þjálfuðu starfsfólki bankans í
málefnum námsmanna í öllum
útibúum bankans. Þeir hafa að-
S;ang að allri almennri þjónustu
slandsbanka. Fyrir utan al-
menna þjónustu bankans fá
námsmennn á Menntabraut
ýmsa sérþjónustu auk vandaðrar
íslenskrar skipulagsbókar og
penna.
Skipulagsbókin inniheldur m.a.
kafla um greiðsluáætlun og
heimilisbókhald, nám hér á landi
og erlendis, strætisvagnaleiðir,
auk dagbókar.
„Þegar við fórum af stað við þró-
un þjónustunnar áttum við ekki
von á því að lánafyrirgreiðslan
yrði jafnveigamikill þáttur f
henni og raun varð á,“ segir Jón
Gunnar Aðils. sérfræðingur í
markaðsdeild Islandsbanka.
„Strax og endanlegar upplýsigar
um nýjar starfsreglur Lánasjóðs-
ins lágu fyrir skoðuðum við þær
leiðir sem best hentuðu náms-
mönnum. Við vildum að lánafyr-
irgreiðslan yrði einföld og þægi-
leg fyrir námsmenn þannig að
fyrirgreiðslan gengi fljótt og vel
fýrir sig.“
Menn borga fyrir þá
heimild sem þeir nýta
Námsmenn, sem eru með lánslof-
orð frá Lánasjóði íslenskra náms-
manna, eiga kost á 100% fram-
færsluláni frá íslandsbanka,
þ.e.a.s. bankinn lánar þeim að fullu
þá upphæð sem lánasjóðurinn hef-
ur gefið lánsloforð fyrir. Sé náms-
maður að byrja í námi getur hann
fengið 90% af áætluðu framfærslu-
Iáni frá LÍN. Námsmenn, sem eru
að byrja nám, þurfa ábyrgðarmenn
en eftir að þeir hafa lokið tveggja
anna námi og náð 100% námsár-
angri hafa þeir möguleika á láni án
ábyrgðarmanns.
Framfærslulán íslandsbanka til
námsmanna er veitt í formi stig-
hækkandi yfirdráttarheimildar á
tékkareikningi. NemL sem er t.d.
með lánsloforð frá LIN upp á 200
þúsund krónur, getur þannig feng-
ið 50 þúsund krónur á mánuði í
fjóra mánuði frá bankanum. „Kost-
urinn við þetta fyrirkomulag er að
á þennan hátt greiðir námsmaður-
inn einungis vexti af þeim hluta yf-
irdráttarheimildarinnar sem hann
nýtir sér hverju sinni," segir Jón
Gunnar.
Námsmenn erlendis eiga kost á
sérþjónustu í tengslum við
Menntabraut. Lánafyrirgreiðslu
getur námsmaður erlendis fengið
inn á tékkareikning og samið um
mánaðarlega millifærslu á reikn-
ing erlendis. Gjaldeyrisþóknun
fellur niður þegar námsmenn á
Menntabraut íslandsbanka milli-
færa eða senda gjaldeyri á milli
landa.
íslandsbanki býður námsmönn-
um erlendis upp á svokallaða
greiðslu- og innheimtuþjónustu,
sem getur sparað vinum þeirra og
ættingjum marga tímafreka snún-
inga. Námsmenn í framhaldsnámi
erlendis eiga oft á tíðum húsnæði
hér heima, sem þeir leigja út. Sem
dæmi um innheimtuþjónustuna
má nefna að bankinn býðst til að
innheimta húsaleigu Mennta-
brautarnemum að kostnaðarlausu.
Það sama gildir um greiðslu á
reikningum námsmanna erlendis.
Námsstyrkír og at-
hafnasfyrkir
Árlega verða veittir sjö náms-
styrkir á vegum íslandsbanka til
námsmanna hérlendis og erlendis.
Þessir styrkir eru ekki bundnir eða
skilyrtir við ákveðin námsfög eða
skóía. Allir námsmenn, 18 ára og
eldri, geta sótt um styrkina, hvort
sem þeir eru viðskiptavinir ís-
landsbanka eða ekki. Hver styrkur
er föst fjárhæð, að svipaðri upp-
hæð og hjá öðrum bönkum.
Þá ráðgerir íslandsbanki að veita
einn til tvo „athafnastyrki" á
hverju ári, en umsóknir um þá
verða auglýstar eftir áramót. Þetta
eru styrkir til námsmanna, sem
hafa hugmyndir að nýsköpun í at-
vinnulífinu, eða eru að hefja sjálf-
stæðan atvinnurekstur eftir nám
eða með námi. Allir námsmenn 18
ára og eldri geta sótt um athafna-
styrk.
Leiklistarskóli Islands
Hlutverk skólans er að þroska leik-
listarhæfileika nemenda og þjálfa þá
til leiklistarstarfa, en námið tryggir
þó ekki atvinnu. Um er að ræða
þriggja ára nám, auk eins árs í starfi
hjá Nemendaleikhúsinu.
Til að fá inngöngu í skólann þurfa
viðkomandi að standast kröfur inn-
tökunefndar. Þeir þurfa að hafa náð
19 ára aldri, lokið a.m.k. grunn-
skólanámi eða fengið sambærilega
menntun, hafa gott vald á íslensku
og geta kynnt sér lestrarefni á tveim-
ur erlendum tungum. Skólinn tekur
inn nemendur þrjú ár í senn, en ekki
fjórða hvert ár, og eru ekki teknir
fleiri en átta nemendur í senn. Nem-
endur eiga rétt á láni úr Lánasjóði ís-
Ienskra námsmanna.
Um það bil helmingur kennslunnar
er leiktúlkun, en einnig er lögð rík
áhersla á þjálfunargreinar, s.s. al-
menna líkamsrækt, hreyfingar-
spuna, skylmingar, raddþjálfun og
margt fleira. Fræðigreinar eru einn-
ig kenndar í fyrri hluta náms, s.s.
listasaga, tónlistarsaga o.fl.
Nánari upplýsingar:
Leiklistarskóli íslands
Sölvhólsgata 13
Pósthólf 1654
121 Reykjavík