Tíminn - 17.10.1992, Page 21
Laugardagur 17. október 1992
Tíminn 21
Söngskólinn í
Reykjavík
Söngskólinn í Reykjavík var stofnað-
ur árið 1973 af Garðari Cortes, og var
hann rekinn fyrstu fimm árin sem
einkaskóli. En eftir að ráðist var í
kaupin á núverandi húsnæði skólans
við Hverfisgötu var stofnað Styrktarfé-
lag Söngskólans í Reykjavík, sem nú
rekur skólann en nýtur til þess styrkja
frá ríki og borg, samkvæmt lögum.
Inntökuskilyrði í skólann eru þau að
á hverju vori fara fram inntökupróf og
eru aldursmörk umsækjenda 16-30 ár
o'g eru metin raddgæði, tónnæmi og
undirstöðumenntun. Nám í almenn-
um deildum tekur 5-7 ár, sem fer að
mestu eftir þætti tónlistar í undir-
stöðumenntun viðkomandi. Að loknu
8. stigi gefst kostur á framhalds-
menntun á háskólastigi, sem tekur að
jafnaði tvö ár.
í almennu deildinni eru aðalnáms-
greinin einsöngur, en jafnframt er
kenndur píanóleikur, tónfræði, hljóm-
fræði, tónheym, nótnalestur, tónlist-
arsaga, sönglistarsaga og íjóða og
óperutúlkun. Almennu deildinni lýk-
ur með 8. stigs prófi og tónleikum.
Síðan gefst, eins og áður sagði, kostur
á námi í framhaldsdeildum, sem eru
einsöngvaradeild og söngkennara-
deild, og er 8. stigs próf úr almennu
deildinni skylda til að fá inngöngu.
Námið er á háskólastigi og lýkur með
prófum í samvinnu við „The Associat-
ed Board of the Royal Schools of Mus-
ic“, sem njóta alþjóðlegrar viðurkenn-
ingar. Mikill fjöldi kennara kennir við
skólann, en Garðar Cortes er skóla-
stjóri og Þuríður Pálsdóttir er yfir-
kennari. Nánari upplýsingar um nám-
ið er að fá á skrifstofu skólans að
Hverfisgötu 45,101 Reykjavík, í síma
Fósturskóli
íslands
Fósturskóli Islands er ríkisskóli
með aðsetur í Reykjavík og er það
hlutverk hans að mennta fólk til
uppeldisstarfa á hvers konar uppeld-
isstofnunum fyrir börn, allt frá fæð-
ingu til skólaaldurs, auk þess sem
fóstrur starfa einnig á skóladag-
heimilum og barnadeildum sjúkra-
húsa.
Námstími við skólann er þrjú ár og
eru inntökuskilyrði nemenda stúd-
entspróf eða grunnskólapróf að við-
bættu tveggja ára námi við fram-
haldsskóla eða sambærilegu námi,
en umsækjandi má ekki vera innan
18 ára aldurs. Nemendur við Fóstur-
skóla íslands eiga rétt á almennum
námslánum úr Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Námið í skólanum er
bæði verklegt og bóklegt, og er verk-
lega námið um þriðjungur náms-
tímans sem dreifist á öll árin. Fyrstu
tvö árin er bekkjakerfi og greina-
bundin kennsla, en á þriðja ári er
þemanám, þar sem tekin eru fyrir
ákveðin efnissvið, þar sem bókíegt
og verklegt nám er að mestu leyti
samþætt. Nemendur fara til útlanda
og kynna sér nýjungar í dagvistunar-
málum undir stjórn nokkurra kenn-
ara. í þeim þáttum námsins, sem
lýkur með prófum, verður nemandi
að sækja í það minnsta 80%
kennslustunda. Til þess að hefja nám
í næsta bekk þarf nemandi að hafa
hlotið í það minnsta einkunnina 5 í
hverri grein.
Nánari upplýsingar um námið er að
fá í Fósturskóla Islands v/Leirulæk í
Reykjavík, í síma 813866.
Garðyrkjuskóli
ríkisins
Garðyrkjuskóli ríkisins er staðsett-
ur skammt frá Hveragerði, nánar til-
tekið að Reykjum í Ölfusi, og veitir
skólinn menntun í garðyrkju- og
umhverfisfræðum á fimm náms-
brautum. Auk þess vinnur skólinn
að tilraunum, endurmenntun, nám-
skeiðahaldi, útgáfu garðyrkjufrétta
og leiðbeiningaþjónustu. Náms-
brautirnar eru: garðyrkjubraut,
skrúðgarðyrkjubraut, umhverfis-
braut og ylræktarbraut, en nám á
Tölvuhá-
skóli Vf
Tölvuháskóli VÍ býður upp á kerf-
isfræðinám. sem tekur fjórar annir.
Skólinn hóf starfsemi sína árið
1988 og er það markmið námsins
að útskrifa kerfisfræðinga, sem
geta unnið við öll stig hugbúnaðar-
gerðar, skipulagt og séð um tölvu-
væðingu hjá fyrirtækjum og annast
kennslu og þjálfun starfsfólks.
Tölvuháskólinn er mjög vel búinn
tækjum til námsins. Inntökuskil-
yrði í skólann er stúdentspróf eða
sambærileg menntun.
Nánari upplýsingar:
Tölvuháskóli VÍ
Ofanleiti 1
103 Reykjavík
S: 91-688400
þessum fjórum brautum tekur þrjú
ár. Verknám er samtals 20 mánuðir,
en bóklegt 16 mánuðir. Inntökuskil-
yrði eru þau að nemandi þarf að hafa
lokið rúmlega fimmtán mánaða
verknámi, auk þess sem hann þarf að
hafa lokið bóknámi sem svarar til 2-
4 anna í framhaldsskóla.
Auk fyrrgreindra brauta er einnig
kennt á blómaskreytinga- og mark-
aðsbraut, sem tekur tvö ár. Verknám
tekur 16 mánuði, reynslutími er þrír
mánuðir og kjörtími 13 mánuðir, en
bóknám 8 mánuðir. Inntökuskilyrði
eru þau að nemandi þarf að hafa lok-
ið 7 mánaða verknámi, auk bóknáms
sem svarar til 2-4 anna í framhalds-
skóla.
Nánari upplýsingar:
Garðyrkjuskóli ríkisins
Reykjum
810 Hveragerði
S: 98-34340
Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur breytt úthlutunar-
reglum sem þrengir mjög lánshæfni iðn- og verknáms. Kristinn H.
Einarsson formaður Iðnnemasambands íslands:
))
Er UN ríki í ríkinu?"
Stjóm Iðnnemasambands íslands
er allt annað en ánægð með nýjar út-
hlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, sem stjómin segir að
þrengi mjög lánshæfni iðn- og verk-
náms. Kristinn H. Einarsson spyr
hvort Lánasjóðurinn sé orðinn ein-
hvers konar ríki í ríkinu, sem þurfi
ekki að taka tillit til vilja Alþingis.
Við afgreiðslu úthlutunarreglna í
stjóm Lánasjóðs íslenskra náms-
manna á dögunum, tók stjómin þá
ákvörðun að þrengja verulega láns-
hæfni iðn- og verknáms, eftir tillög-
um sem komu frá nefnd sem hafði
þann starfa að endurskoða lög um
Lánasjóðinn, en áður hafði Alþingi
ákveðið að fella út þær þrengingar
sem stjómin samþykkti.
Samkvæmt lögunum sem samþykkt
vom á Alþingi í vor átti íyrirkomu-
lagið að vera óbreytt sem hefði þýtt
það að lánshæfni náms í grunndeiíd-
um iðnáms hefði verið óbreytt,
þ.e.a.s. að nemendur í grunndeild-
um, sem orðnir væru eða yrðu 20
ára á árinu væru lánshæfir, en sam-
kvæmt nýju úthlutunarreglum eiga
nemendur í grunndeildum rafiðna,
málmiðna og tréiðna ekki möguleika
á láni úr Lánasjóðnum.
Kristinn H. Einarsson, fram-
kvæmdarstjóri Iðnemasambands ís-
lands, segir að þetta sé gert þvert of-
an í vilja Alþingis, sem hafi legið fyr-
ir með samþykki gildandi laga.
„Þama teljum við að embættis-
mennimir innan stjómar Lánasjóðs-
ins séu að taka fram fyrir hendurnar
á löggjafarvaldinu og þess vegna
framkvæmdarvaldinu líka,“ sagði
Kristinn.
Stjóm Iðnnemasambands íslands
hefur sent menntamálaráðherra
bréf, þar sem hann er spurður hvort
Lánasjóðurin sé einhvers konar ríki í
ríkinu, sem móti sína eigin mennta-
stefnu, óháð því hvaða menntastefna
sé boðuð af sitjandi ráðherra og sam-
þykktaf Alþingi.
Þegar núgildandi lög vom til um-
fjöllunar hjá Alþingi, var inn í þeim
tillögum sem þar vom til umfjöllun-
ar hugmyndir um að nám í gmnn-
deildum fyrir iðnnám yrði ekki láns-
hæft og lánshæfni iðnnáms yrði því
þrengt mjög mikið frá sem það var í
gömlu lögunum um Lánasjóðinn.
„Við vöktum athygli á þessu og bent-
um á að það væri í raun og veru, ver-
ið að skera niður lán til tiltölulega
lítils hóps og þetta myndi ekki virka
Krístinn H. Einarsson, formaður iðnnemasambands íslands.
sem hvatning fyrir ungt fólk að hefja
iðnnám. Það kom meðal annars
fram í könnun sem Félagsvísinda-
stofnun birti á dögunum að það væri
verulegt brottfall nemenda úr iðn-
námi og það þyrfti að hvetja fólk til
að velja þær greinar. Því töldum við
að ef að ætti að þrengja lánshæfni til
iðnnáms, þá væri verið að beina
mönnum meira til bóknáms og inn á
stúdentsprófsleiðir og það væri vafa-
mál hversu miklu þær leiðir skila til
þjóðfélagsins," sagði Kristinn H.
Einarsson.
Þessu hafi fleiri mótmælt, s.s. Al-
þýðusamband íslands, Landssam-
band iðnaðaramanna og allir alþing-
ismenn sem tjáðu sig um málið á Al-
þingi og voru andvígir því að þrengja
lánshæfni iðn- og verknáms og töl-
uðu um að það þyrfti að auka vægi
starfstengds náms þar sem litið væri
til þarfa atvinnulífsins. Kristinn
bendir á að bæði starfandi mennta-
málaráðherra, sem og allir fyrrum
ráðherrar hafi talað á þessum nót-
um. Lögin eru síðan Samþykkt og
þar eru engar breytingar á lánshæfni
iðnnáms gerðar, enda var þingheim-
ur á móti því að þrengja lánshæfn-
ina.
Kristinn segir að stjórn Iðnnema-
sambandsins hafi lagt á það ríka
áherslu við afgreiðslu laganna að fá
fulltrúa í stjóm Lánasjóðsins, þar
sem sambandið væri einu heildar-
samtök námsmanna sem ættu ekki
fulltrúa innan sjóðsins og ættu þar
enga möguleika til að hafa áhrif á
ákvarðanatöku. Stjómin telji að
margar ákvarðanir innan sjóðsins,
sem hafi snert iðn- og verknáms-
nema, hafi verið teknar af hreinni
vanþekkingu á málefnum þeirra.
Kristinn segir að stjórn sambands-
ins hafi sent út fjölmörg erindi til
menntamálaráðherra og stjórnar
sjóðsins um að fá aðild að stjóm
lánasjóðsins, en engu þeirra hafi ver-
ið svarað og svo hafi komið að
stjórnarformaður Lánasjóðsins neiti
að taka málið fyrir. Þó liggi fyrir bréf
frá aðstoðarmanni ráðherra til
stjórnar LÍN, þess efnis að Iðnnema-
sambandið fái áheyrnarfulltrúa, sem
myndi fullnægja óskum sambands-
ins.
Kristinn sagði að það væri athyglis-
vert að stjómarformaðurinn, sem
neitar að taka beiðni Iðnnemasam-
bandsins, Gunnar Birgisson, væri
einnig formaður Verktakasambands
íslands. Menn héldu að hann myndi
sýna því einhvem skilning að sjónar-
mið þeirra sem stunda verk- og iðn-
nám, kæmu fram.
Fiskvinnsluskólinn
Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði
útskrifar fiskiðnaðarmenn og fisk-
tækna, auk þess sem hann heldur
ýmiss konar námskeið fyrir starfs-
fólk í fiskiðnaði. Námi við skólann er
skipt í tvær deildir: Fiskiðnaðardeild,
sem tekur þrjár annir, og Tækni-
deild, ein önn.
Náminu er skipt í bóklegt og verk-
legt nám, auk starfsþjálfunar á
vinnustöðum, og fer námstími eftir
undirbúningi og því að hvaða náms-
lokum er stefnt. Bóklega náminu er
skipt í sérgreinar, sem kenndar eru í
skólanum, og almennar námsgrein-
ar, s.s. stærðfræði, eðlisfræði o.s.frv.,
sem unnt er að stunda í ýmsum
framhaldsskólum. Til að öðlast
starfsréttindi sem fiskiðnaðarmaður
skal nemandi hafa staðist próf upp úr
fiskiðnaðardeild og auk þess hafa
lokið 36 vikna skipulagðri starfs-
þjálfun á vinnustöðum frá því hann
innritaðist í skólann.
Skilyrði fyrir inntöku í Fiskvinnslu-
skólann eru að viðkomandi verður
að hafa lokið undirbúningsnámi eftir
grunnskóla og er þá bent sérstaklega
á fyrri hluta tæknibrautar í fram-
haldsskólum, sem viðmiðun.
Nánari upplýsingar:
Fiskvinnsluskólinn
Hvaleyrarbraut 13
220 Hafnarfirði
S: 91-53547
Iþróttakennaraskóli Islands
íþróttakennaraskóli íslands er
heimavistarskóli, staðsettur á Laug-
arvatni, og tekur nám við skólann
tvö ár. Hlutverk skólans er að búa
nemendur undir kennslu í íþróttum,
skyndihjálp í skólum og ennfremur
að búa nemendur undir kennslu í
íþróttum og félagsstörfum hjá stofn-
unum, ungmenna- og íþróttafélög-
um. Inntökuskilyrði eru þau að við-
komandi verði 18 ára á umsóknarári,
sé heilsuhraustur og hæfur til iþ-
róttaiðkana. Að nemandi sé reyndur
að reglusemi, heilbrigði og sé góður
félagi. Stúdentspróf eða tveggja ára
nám við framhaldsskóla er skilyrði,
en þar sem stóraukin aðsókn stúd-
enta er að skólanum, ganga þeir fyr-
ir um skólavist og eru nemendur
innritaðir árlega. Helstu námsgrein-
ar eru: sálarfræði, uppeldis- og
kennslufræði, kennsluæfingar, líf-
eðlisfræði, þjálffræði, hreyfingar-
fræði, heilsufræði, íþróttasaga, tón-
fræði, skyndihjálp, auk kennslu í
þeim íþróttagreinum sem stundaðar
eru hér á landi.
Umsóknir um skólavist þurfa að
hafa borist fyrir 1. júní ár hvert, en
nánari upplýsingar er að fá hjá skóla-
stjóra. Heimilisfang skólans er:
íþróttakennaraskóli íslands
840 Laugavatni
S: 98-61110