Tíminn - 17.10.1992, Page 26
26 Tíminn
Laugardagur 17. október 1992
Ásta Kr. Ragnarsdóttir námsráðgjafi segir að menn geti ekki lengur leyft sér tilraunastarfsemi í námsvali:
Brvnt að taka ákvörðun
áður en námið er hafið
Námsmenn standa frammi fyrir fjölmörgum valkostum við upphaf náms á
haskólastigi, en augljóslega henta þessir valkostir einkum nemendum mis-
jafnlega vel. Við H.í. eru starfandi námsráðgjafar sem Ieiðbeina náms-
mönnum og aðstoða í þessum frumskógi æðri menntunar og Tíminn hitti
að málu Ástu Kr. Ragnarsdóttur sem stýrir Námsráðgjöf H.í. Hún var fyrst
spurð um það hvaða meginatriði það væri sem huga þyrfti að hjá framhalds-
skólanemum þegar þeir útskrifast og hygðu á frekara nám.
„Þegar kemur að vali hjá framhald-
skólanemum um það í hvaða nám
þeir ætla að fara, þá tel ég mjög mik-
ilvægt að þeir átti sig á því að það er
ekki nema lítið hlutfall af því námi
sem hægt er að stunda hér sem er
starfsmiðað. Þ.e.a.s. nám sem gefur
einhver ákveðin starfsréttindi á til-
teknum sviðum þegar því er lokið.
Hins vegar er það algengt að vænt-
ingarnar eru talsverðar til þess að
nám í Háskóla íslands sé starfsmið-
að. f rauninni má segja að háskóla-
námið sé oft frekari grunnmenntun,
í framhaldi að stúdentsprófmu, sem
síðan þarf að bæta við framhalds-
menntun til að sérhæfa sig á
ákveðnum sviðum. Ég tel að það sé
afskaplega mikilvægt að fólk skilji
þetta fullkomlega og geri það upp
við sig hvort það er tilbúið til að fara
í slíkt langskólanám. Ef fólk er ekki
alveg tilbúið til þess, þá er eðlilegt
að skoða aðra möguleika, sem eru í
takt og samræmi við þær væntingar
sem svo margir hafa. Það eru til
margir skólar sem eru verknáms- og
starfsmiðaðir sem eru á háskóla-
stigi. En það virðist sem einhver
meinloka hrjái margt ungt fólk eftir
að stúdentsprófi lýkur og því finnst
það eina sem blasi við sé nám í Há-
skóla íslands. Því er einmitt mikil-
vægt að undirstrika að hann er alls
ekki eini kosturinn sem í boði er.
— Er e.t.v. talsvert um það að nem-
endur eru að uppgvöta það eftir að
vera löngu byrjaðir í einhverju námi
að þeir eru að læra eitthvað sem þá
langar ekki til að læra?
Já, það er heilmikið um það. í slík-
um tilfellum er fólk yfirleitt ekki
nógu vel undirbúið hvað varðar
sjálft sig, þ.e. að gera sér grein fyrir
hvað væntingar það hefur, hvaða
áhuga og í hverju framtíðaráformin
felast. Það má kannski orða það
þannig að fólk hefúr þá ekki unnið
með sjálft sig sem skyldi, en það er
gífurleg vinna sem felst í því að at-
huga hver maður er og hvað maður
vill. Það verður líka að taka þessu
sem vinnu og gefa því þann tíma
sem það þarf. Fólk er misfljótt að
taka þessa ákvörðun og þannig hef-
ur það verið lengi. En í dag geta
nemendur í rauninni ekki leyft sér
mikla tilraunastarfsemi í þessum
efnum, með tilliti til fjárhags og
m.a. nýrra reglna hjá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna. Nú er t.d. að-
eins lánað í fimm ár til grunnnáms
og veðji námsmaður á rangan hest í
upphafi og noti í það t.d. eitt ár, þá
er hann búinn að taka af sínum
námslánakvóta. Kjósi þessi nemandi
síðan að fara í nám sem tekur 4-5 ár
í grunninn þá nær hann ekki að vera
lánshæfur allan tímann. Þess vegna
er alltaf að verða þýðingarmeira að
menn hugsi sinn gang vegna þess að
kjör og aðstæður eru að breytast."
— Og hver eru þá skiiaboðin til
þessara námsmanna?
„Ég held að menn verði að kort-
leggja betur hvað það er sem þeir
eru að sækjast eftir. Ekki að seilast
eftir umbúðum heldur innihaldinu.
Fólk þarf að spyrja hvað það er sem
hver skólagerð hefur upp á að bjóða
og hvernig það falli að þeirra eigin
áhuga og getu.
Síðan eru náttúrlega þeir sem kjósa
þessa leið og koma í nám í Háskól-
anum og líta á það sem áframhald-
andi grunnmenntun — eins konar
sökkul til að standa á í framtíðinni
— þá getur þetta vitaskuld verið
mjög farsæl Ieið. Ef fólk temur sér
gott verklag á námstímanum og
nær tökum á náminu, þ.e. að skilja
þau lögmál sem gilda í hverri grein,
þá er viðkomandi vel staddur upp á
framtíðina að gera. Þegar námsmað-
urinn hefur skilið lögmál sinnar
greinar og tileinkað sér það, getur
hann yfirfært reynsluna á milli
fræðigreina og viðfangsefna og þetta
er mjög mikilvægt, ekki síst með til-
liti til símenntunar eða endur-
menntunar, sem er að öðlast sívax-
andi mikilvægi."
— Ertu að segja að menn læri að
tileinka sér ákveðin vinnubrögð?
,dá, en ekki bara vinnubrögð held-
ur líka ákveðinn skilning. Þetta er í
raun spumingin um að ná þekkingu
og tökum á því á hverju fræðigrein
byggir og hvernig við nálgumst ný
viðfangsefni. „
— Að lokum, hvað með nám er-
lendis?
,Almennt gildir það sama og um
nám hér heima. Hins vegar hafa
leiðir verið að þrengjast í þeim efn-
um og nemar hafa ekki lengur það
svigrúm sem þeir höfðu áður til að
fara til náms erlendis. Vegna lána-
málanna geta námsmenn í dag ekki
verið eins öruggir um sig úti og
einnig stýra lánamálin námsvali
nokkuð því ekkert lán vegna skóla-
gjalda fæst út á nám í útlöndum ef
hægt er að stunda sams konar eða
sambærilegt nám hér heima.
Ásta Kr. Ragnarsdóttir.
En á sama tíma og þetta er að ger-
ast hefur átt sér stað jákvæð þróun
sem er aukið alþjóðasamstarf, og nú
er slíkt samstarf t.d. hafið á milli
skóla á háskólastigi sem hefur að
markmiði að auðvelda fólki að fara
utan og taka hluta af námi sínu í
öðru landi þó það útskrifist á ís-
landi. Þetta er í boði fyrir alla skóla
hér heima sem tengjast þessum
samningum og samtökum á há-
skólastigi og þetta opnar þar af leið-
andi ótal möguleika,“ sagði Ásta Kr.
Ragnarsdóttir að lokum.
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Beyttar úthlutunar-
reglur Lánasjóösins
Á síðastliðnu sumri voru gerðar verulegar breytingar á starfs- og út-
hlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þær hnigu flestar í
þá átt að þrengja rétt námsmanna til lántöku hjá sjóðnum og herða
kröfur um endurgreiðslu lána eftir að námi er lokið. Áð hve miklu leyti
þessar breytingar eru réttmætar eða skynsamlegar verður ekki felldur
dómur um hér, heldur reynt að útskýra í stuttu og einfoldu máli í hveiju
þær eru fólgnar.
Vextir á námslán
Námslán frá LÍN bera nú í fyrsta
skiptið vexti, en áður voru þau
einungis verðtryggð. Heimild er
til í nýju lögunum að innheimta
allt að 3% ársvexti af lánunum.
Ríkisstjómin hefur samþykkt að
vextirnir verði 1% þar til annað
verður ákveðið. Vextir greiðast
frá námslokum, en ekki á náms-
tíma.
Hert endurgreiðsla,
styrkir afnumdir
Endurgreiðslur lána hefjast skv.
nýju lögunum tveimur árum eft-
ir námslok (hófst skv. eldri lög-
um þremur árum eftir námslok).
Þær eru í tvennu lagi. Föst af-
borgun er 48 þús. kr. á ári sam-
kvæmt núgildandi verðlagi. í
öðru lagi er um launatengda af-
borgun að ræða og er miðað við
að fyrstu 5 árin verði endur-
greiðslur 5% af heildartekjum
(útsvarsstofni), en eftir það 7%.
Þetta eru verulega hertar reglur
um endurgreiðslu og ættu nem-
ar að skoða vandlega greiðslu-
byrði láns áður en það er tekið.
Á meðan verið er að endur-
greiða lán, sem tekin eru skv.
nýju lögunnum frestast afborg-
anir af eldri lánum ef einhver
em. Þá er LÍN óheimilt að veita
styrki skv. nýju lögunum. Ferða-
lán koma í stað ferðastyrkja.
Engin lán fyrr en
árangur liggur fyrir
Útborgunartima námslána var
breytt með nýju lögunum. Þau
greiðast nú eins og tíðkaðist áð-
ur til nýnema, þ.e.a.s. þegar
námsárangur liggur fyrir eftir
hverja önn eða skólaár. Reglur
um námsframavindu em hertar
og miðast nú 100% lán við 100%
námsframvindu. Þetta er ef til
vill alvarlegasta breytingin á
námslánakerfinu, en hún veldur
því að námsmenn verða í flest-
um tilfellum að fá skammtíma-
lán frá bönkum eða sparisjóðum
til þess að fjármagna framfærslu
sína frá því að nám er hafið þar
til að úrslit prófa liggja fyrir.
Ákveðið hefur verið að LÍN bæti
þann kostnað sem námsmenn
hafa af þessu með sérstöku
vaxtaálagi á námslán vegna þess
að þau greiðast nú að meðaltali
2-4 mánuðum seinna frá LÍN til
námsmanna en áður.
Þá skal atygli á því vakin að í
sumum tilfellum er nemendum
ekki kleift að skila fullum náms-
árangri eftir haustmisseri. Þetta
á t.d. við um þá sem sitja í heils-
ársfögum, fá ekki námsárangur
metinn fyrr en að vori, og fá þá
skert haustlán í samræmi við
það. Námsmenn erlendis eiga
einnig á hættu að lenda í óvissu
þar sem námskerfi eru mismun-
andi eftir löndum.
Lán sem eru greidd út á haus-
tönn eru vegna eftirfarandi: Lán
vegna sumamáms ‘92. Lán
vegna skólagjalda til þeirra sem
stunda nám erlendis. Ferðalán
til framhaldsnema erlendis.
Ferðalán og skólagjaldalán eru
þó ekki greidd til nýnema er-
lendis. Þá er einnig rétt að hafa
í huga að stjóm LÍN innheimtir
1,2% lántökugjald af veittum
lánum, sem dragast frá heildar-
upphæðinni.
Nú þarf að sækja
sérstaklega um lánin
Eftir nýjustu breytingar á regl-
um LÍN þurfa allir námsmenn að
skila gmnn- eða framhaldsum-
sókn um lán vegna skólaársins
1992-1993. Framhaldsumsókn
er ekki lengur sjálfkrafa eins og
hún var. Óheimilt er að taka um-
sókn til greina, sem berst eftir að
tilskilinn frestur er útmnninn.
Sérstök athygli er á því vakinn
að haustlán verða ekki greidd
fyrr en lokaáætlun vegna heild-
artekna hefur borist. Heimilt er
að gjaldfella lán ef lokatekju-
áætlun reynist röng. Þar sem
þessi háttur er hafður á er mikil-
vægt að áætla tekjur viðkomandi
námsmanns og maka nákvæm-
lega strax að hausti. Ef fyrirsján-
legt er að áætlunin stenst ekki
ber að tilkynna það strax, svo
ekki komi til sviptingar á láns-
rétti. Heildartekjur em allar
tekjur fyrir skatt.
Hertar kröfur um
námsframvindu
Lágmarksafköst í námi til þess
að fá námslán eru 75%. Undan-
tekningar eru heimilar ef um
fyrsta árs nema er að ræða,
vegna veikinda eða vegna barns-
burðar í ljölskyldu námsmanns.
Þeir sem hafa verið á námslán-
um og em að ljúka námi á
haustmisseri fá 100% lán eigi
þeir eftir meira en 50% af ein-
ingafjölda misseris. Eigi þeir eft-
ir minna en 50% fá þeir lán í
hlutfalli við þann einingafjölda
sem þeir eiga eftir ólokið.
Námsmenn skila inn undirrit-
uðu óútfylltu skuldabréfi til LÍN,
sem ber með sér í hvað tilgangi
það er gefið út og að ábyrgðar-
menn hafi teki að sér sjálfskuld-
arábyrgð á námslán viðkomandi
allt að ákveðinni fjárhæð.
Þak á lánstíma
Þeir sem þiggja styrki eða laun
vegna náms síns sem nemur
hærri fjárhæð en gmnnfram-
færslu á mánuði (nú rúm 49 þús.
kr. á íslandi) em ekki lánshæfir.
Lánstími á ári er styttur. Nú er
ekki Iánað lengur en í 9 1/2 mán-
uð (vinnuregla) á ári, jafnvel þó
skóli standi lengur. Námsmenn,
sem hófu nám eftir skólaárið
1990-91 geta fengið lán í 5 ár að
hámarki í grunnháskólanámmi
eða sérnámi. Heimilt er að veita
aðstoð í 5 ár til viðbótar þeim
áraíjölda til framhaldsháskóla-
náms.
Lán önnur en fram-
færslulán
Lánað er vegna skólagjalda á ís-
landi fari þau fram yfir 15 þús.
kr. Lánað er fyrir þeirri upphæð
sem fer fram yfir 15 þús. kr. Lán
em ekki veit til gmnnháskóla-
náms eða sémáms erlendis. Þó
hefur verið samþykkt að þeir
námsmenn sem höfðu fengið
skólavist í gmnnháskólanámi
eða sérnámi erlendis fyrir 3. júní
sl., fái lán vegna skólagjalda í
samræmi við reglur sem giltu á
síðasta ári. Veitt em almenn lán
vegna skólagjalda til framhalds-
skólanáms, sem geta að hámarki
orðið 27 þús. USD. Sjóðnum er
þó heimilt að veita lán með með-
alvöxtum banka vegna skóla-
gjalda í gmnnháskólanámi er-
lendis eða sémámi sem ekki
verður stundað á íslandi.
Lán vegna bóka-, efnis- og
tækjakaupa verða föst fjárhæð,
30% af grunnframfærslu eins
mánaðar vegna alls skólaársins.
í útreikningi námsláns er bætt
við aukaláni vegna vaxtakostnað-
ar. Þetta er gert til að bæta
mönnum það að útborgun lána
seinkar í flestum tilvikum að
meðaltali um 2-3 mánuði miðað
við fyrri reglur.