Réttur


Réttur - 01.07.1927, Side 73

Réttur - 01.07.1927, Side 73
Rjettur] HEIMSPEKI EYMDARINNAR 171 varið miklum tíma í að læra enska tungu. Þó efast ég um, að nokkur einn einasti íslendingur sé fær um að skrifa ensku lýtalaust. Og mjög fáir úr þessum hóp eru færir um að tala hana reglulega vel. — íslending- um veitist miklu auðveldara að læra danska tungu en enska. Og fjöldi landsmanna skilur dönsku á bók. Þrátt fyrir það dreg ég mjög í efa, að meðal dönsku lesandi manna hér á landi finnist einir 10, sem kunna að rita danska tungu lýtalaust. Og mjög fáir tala hana vel. Og þetta er þó sú erlenda þjóðtungan, sem vér eigum einna hægast með að læra og byrjum oftast að lesa þegar á bernskualdri. Og meira en helmingur þeirra bókmenta, sem vér lesum, er ritaður á dönsku. Þannig er auðveld- leiki mæltra mála. Esperantó gætum vér hins vegar lært að rita og tala fullum fetum, af aðdáanlegri list, þótt vér sætum alla æfi vora upp í tunglinu. f fjórða lagi: Alþjóðamálið verður að vera fullkom- ið. Þjóðtungurnar eða náttúrumálin svo nefndu eru ó- fullkomið sambland af blindum hendingum og ósam- stæðum hugsanabrotum. Esperantó er margfalt full- komnara, miklu auðugra, miklu skýrara, miklu hreinna, miklu beygjanlegra og meðfærilegra og miklu samræmisfyllra en nokkurt náttúrumál. Esperantó er hljómfagurt, vísindalegt og listrænt meistaraverk, sem getur endurspeglað með leikandi lipurð fíngerðustu blæbrigði, jafnvel andlegustu hugsana og háleitustu til- finninga heila og hjarta. Esperantó hefir tekið fegurð, list og vísindi mæltra mála í þjónustu sína og aukið þessa kosti og auðgað eftir sínum eigin lögum. En það hefir kastað burt torfærum mæltu málanna, lýtum þeirra, klunnaskap og heimsku. Max Miiller kvað svo að orði, að hann þekti enga náansgrein, sem væri betur fallin til að þroska hugsun nemenda en esperantó. Það bæri í þeim efnum stórum af latínunni. Þennan vitnis- burð hafa margir merkir vísindamenn og rithöfundar gefið esperantó. Esperantó er listasmíði afburða sénís.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.