Réttur - 01.02.1942, Page 37
fullri verSlagsuppbót. Lífeyririnn skal vera hátt á
þriðja þúsund krónur á ári fyru einstakling og
rúmar fjögur þúsund krónur fyrir hjón meö núver-
andi verðlagi í Reykjavík og í samræmi við þaö
annarsstaðar á landinu. Viö þetta bætast svo tekjur
gamalmennanna og öryrkjanna sjálfra, þó þannig,
að 60% af þeim hluta teknanna, sem er fram yfir
lAi lífeyris kemur til frádráttar. Samkvæmt frum-
varpinu geta yfir 12 milljónir króna á ári komiö
til úthlutunar í elli- og örorkulífeyri í stað röskra
tveggja milljóna nú.
Hitt frumvarpið er um atvinnuleysistryggingar.
Samkvæmt því ber atvinnurekendum að greiða at-
vinnuleysissjóöum verklýðsfélaganna upphæð, sem er
jafnhá og 6% af heildarupphæð þeirra vinnulauna,
sem þei!r greiða. Við þetta bætast svo tillög bæjar-
og svei'tarsjóða og aukaframlag úr ríkissjóði árin
1942 og 1943, er nemi þrem milljónum hvort árið.
Samkvæmt þessu myndu tekjur atvinnuleysissjóð-
anna verða að mihnsta kosti 10—12 milljónir á ári
næstu tvö árin og tekjur félags eins og t. d. „Dags-
brúnar” í Reykjavík minnst tvær milljónir á ári.
Styrkur úr sjóðunum skal veittur samkvæmt regl-
um, sem félögin ákveða sjálf.
Skrifað í apríl 1942.
Brynjólfur Bjarnason.
37