Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 25
JÓHANNES ÚR KÖTLUM:
Överland boðið til íslands
i
Til er tjald eitt, sem nefnist járntjald. Það kvað vera
smíðað af Rússum eins og margt annað merkilegt og sagt er,
að það sé að smáfæra sig vestur á bóginn. Nýlega urðu stjórn-
arskipti í Tékkóslóvakíu. Nýja stjórnin var mynduð af sama
forsætisráðherra og flokkum og hin fyrri, og samkvæmt
venjulegum vestrænum þingræðisreglum. Samt brá svo ein-
kennilega við, að öll borgarablöð heimsins töldu þennan at-
burð hafa skotið Tékkum algerlega austur fyrir járntjaldið.
Svona undarleg er náttúra þess.
Enda þótt tjald þetta sé úr járni, bendir allt til að það sé
furðanlega gagnsætt. Aldrei hafa áróðurspostular auðvalds-
ins verið fróðari um alla hluti þar í austurvegi en einmitt
síðan það kom til sögunnar. Meginhluti Morgunblaðsins á
íslandi er helgaður lýsingum á því, sem gerist fyrir austan
þetta járntjald. Það virðist hafa gert Valtý Stefánsson ófresk-
an: nú loksins veit hann allt með sanni um þessi fjarlægu
slavnesku lönd. Það mígur ekki svo hundur fyrir austan
járntjaldið, að hann viti það ekki. Stundum verður sjónin
jafnvel svo fjörug, að höfuðborgirnar fljúga úr einu landinu
í annað. Svona barnslega frjótt getur ímyndunaraflið orðið,
þegar horft er í gegnum þetta undursamlega járntjald. Það
er eins og öll önnur þjóðlönd verði þá að engu.
En auðvaldið veit, að það skal slyngan penna til að blekkja
hugsandi fólk svo að öruggt sé. Járntjaldið og skyggni Valtýs
Stefánssonar er ætluð þeim, sem ekki kunna að draga álykt-
anir. En þá eru það hinir, sem spyrja og brjóta til mergjar.