Réttur - 01.01.1948, Qupperneq 40
40
RÉTTUR
líka og sölsað undir sig herstöðvar víðs vegar um heim. Byrn-
es, Brokkes, Deane, Dorner, Dulles, Earle, Eaton, Harwood,
Jordan, McMahon og fleiri helztu stórlaxarnir í stjórnmál-
um Bandaríkjanna — allt fulltrúar einokunarhringanna í
Wall Street — hafa opinberlega krafizt styrjaldar gegn Ráð-
stjórnarríkjunum. Taumlaus áróðursbarátta gegn sósíalism-
anum er hafin um allan heim. Stórkostlegasta mútuherferð,
sém sagan kann frá að greina, er hafin gegn hungruðum
þjóðum Vesur-Evrópu með Marshalláætluninni. Fé og her-
gögnum er ausið í böðulstjórnir Grikkja og Kínverja. Verið
er að kljúfa Þýzkaland í tvennt og semja við eftirlifandi
stríðsglæpamenn nazista um endurreisn þýzka hernaðar-
auðvaldsins. Búið er að opna landamæri Frakklands og
Spánar og taka Franco í sátt við „vestræna lýðræðið“. Og
þannig endalaust.
Þessi hraða og hræðilega þróun skilst kannski betur, þegar
þess er minnst, að auðkóngar Bandaríkjanna grœddu þre-
falt meira á styrjaldartímabilinu en á árunum fyrir stríð. Nú
er þessum stærstu arðræningjum heimsins Ijóst, að ef friður
helzt, komast þeir ekki hjá kreppu og hruni. Hví skyldu þeir
þá ekki heldur kjósa nýja styrjöld og enn meiri gróða? Varla
stendur á samvizkunni. En þessar og þvílíkar staðreyndir eru
nú hættar að skelfa skáldið Arnulf Överland. Um þær þegir
hann eins og steinn.
Séra Árni sálugi Þórarinsson segir frá gullplötu einni, sem
var héraðslæknir Snæfellinga í níutíu ár. Svipaða gullplötu
vill nú ameríska auðvaldið leggja við kaun mannkynsins.
Hún er snöggtum fínni en járntjaldið þeirra Rússanna. En
bak við hana gerist líka ýmislegt fróðlegt.
Þegar Truman forseti var fyrst kosinn á þing í Kansas
City árið 1934, voru þar teknir gildir 85.000 atkvæðaseðlar,
sem engin lifandi manneskja stóð á bak við — voru með
öðrum orðum falsaðir. Þessir seðlar urðu hans sigurhrós.
í krafti þeirra er hann orðinn forseti. Þetta er svo sem ekk-
ert „kommúnistafleipur", heldur staðhæfing Ickes, fyrrver-