Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 66
66
RÉTTUR
Réttarhöldin í Niirnberg brugðu ljósi yfir þennan þátt í
ævistarfi hans. Nánasti samstarfsmaður hans innan frétta-
þjónustunnar var maður að nafni Lada-Mocarski, er sömu-
leiðis var einn af bankastjórum Schröderbankans, en opin-
berlega gegndi embætti hins bandaríska vararæðismanns í
Ziirich. Þessi bankastjóri, sem einnig hefur njósnir að at-
vinnu, er fæddur í Samarkand og er nú 49 ára að aldri.
Þetta nýja og sérkennilega útibú frá Schröderbankanum
í Sviss tókst á hendur sama verkefni og Murphy i Frakklandi.
Það tók höndum saman við ,,Hitlers-andstöðuna“ í Þýzka-
landi. En hvernig andstaða var það? Afturhaldssamir liðs-
foringjar, fulltrúar prússnesku gósseigendanna, og sterkustu
auðhringanna. Þessir aðilar höfðu, þegar liér var komið,
sannfærzt um, að Hitler mundi bíða ósigur fyrir Sovétríkj-
unum og unnu nú markvisst að því að undirbúa sitt eigið
valdarán. Áætlunin var sú að setja Hitler frá völdum á réttu
augnabliki, semja sérfrið við vesturveldin og bjarga þannig
þýzku heimsvaldastefnunni frá hruni áður en það væri of
seint.
í stuttu máli. Samstarfsmenn og erindrekar Allen Dulles
í Þýzkalandi var Schacht-Goerdeler klíkan, sem þegar á þeim
tíma naut stuðnings iðnaðarkónganna í Ruhr, er þá voru
greinilega farnir að eygja hrun það, sem Hitler átti í vænd-
um. Schacht var gamall kunningi og „félagi" John Dulles.
Sá kunningsskapur var frá þeim tímum, er Dawes-áætlunin
varð til, þar sem báðir höfðu haft hönd í bagga. Þeir höfðu
einnig unnið saman að fjölda samningagerða, er fjölluðu
um fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna við Þýzkaland. í samskon-
ar erindum hafði John Dulles dvalið í Berlín um tíma árið
1933.
Um Goerdeler er það kunnugt, að hann fór til London
stuttu áður en stríðið milli Þjóðverja og Englendinga byrj-
aði til að koma á leynistarfi við ýmsa brezka aðila. Skjöl
Niirnberg réttarhaldanna hafa upplýst það, að frá Sviss