Réttur - 01.01.1963, Blaðsíða 21
R E T T U R
21
annarra vinnandi manna, sigursælt átak eigi aSeins í kaupdeilum,
heldur og eigi síður í kosningum til alþingis.
Með slíku sigursælu átaki bjargar verkalýður Islands sér úr
vinnuþrældómi og yfirvofandi menningarleysi. Með slíkum stór-
sigri, — og það er stórsigur einn, sem getur bjargað, — myndi
renna upp nýtt blómaskeið félagsanda og menningarlífs í röðum
verkalýðshreyfingarinnar, er hafa myndi stórbætandi áhrif í öllu
þjóðfélagi voru.
Vinnuþrælkunin er ein lilið þess efnahagslega alræðis peninga-
valdsins, sem nú þjáir þjóðfélag vort.Hún er hin hliðin á þeirri lág-
kúrulegu peningadýrkun, sem er að kæfa allt andlegt líf, drepa
hverja hugsjón. Meðan verkalýðnum er þrælað út í 10—12 tírna
vinnu á degi hverjum, magnast „snobb“-ismi, brask og ofstæki
meðal borgarastéttarinnar að sama skapi og smitar út frá sér.
Tækist verkalýðnum að bjarga sér úl úr vinnuþrældómnum með
því að koma á 8 tíma vinnudegi með 10 tíma kaupi vegna stórsigra
sinna í kaupgjalds- og kosninga-baráttu, myndi bann um leið bjarga
þjóðinni út úr því ömurlega ástandi, sem hún nú er að lenda í.
Ilörð barátta, sókn og stórsigrar verkalýðshreyjingarinnar myndi
hrista upp í þeirri seigdrepandi lognmollu, sem hjaðningavíg jlokka
og jlokksblaða hafa ekki megnað að breyta, jwí {>að þarf nú stórar
aðgerðir á Islandi, en ekki bara orð, j)á j)au séu upphafið.
Stórsigur verkalýðshreyfingarinnar á stjórnmálasviðinu og jram-
kvœmd \>eirra úrrœða er hér voru rœdd, myndi hrífa jjjóðina til
nýrra, stórstígra framjara á braut sjáljstœðs matvœlaiðnaðar í stað
hráefna framleið slu.
Og sú alj)ýða, sem bjargar sjálfri sér úr endalausum, sálardrep-
andi vinnuþrœldómi, — bjargar sér með sameiginlegu átaki, j>ar
sem hún finnur til afls síns og ábyrgðar og vex ásmegin við, ■—
slík alþýða hrífur og þjóðina endanlega úr þrúgandi andrúmslofti
peningadýrkunar og hugsjónasnauðs lágkúruháUar. Það er lítil-
siglt auðvaldsskipulag, sem skapar j)etta andrúmsloft og lítillœkkar
daglega þjóð Eddanna og Islendingasagnanna, land Snorra, Jónasar
og Halldórs Laxness. Og j>að myndi drepa þtessa þjóð andlega, ef
vinnandi og hugsandi menn meðal Islendinga hefðu elcki hug til
þess að rísa upp til baráttu á öllum sviðum lífsins, ■— frá hagsmuna-
baráltu til menningarstríðs, — og dug til jress að sigra.
Sá verkalýður lieila og handa, sem bjargar sjáljum sér með bar-
áttu sinni, bjargar jwí líka Islandi.