Réttur - 01.01.1963, Síða 42
PRÓFESSOR PAUL A. BARAN:
Nokkrar hugleiðingar um
veigamikið ágreiningsmál
I ílalskt, róttækt tímarit Nuovi Argomenti, sem gefið er út af
Alberto Moravia og Alberto Carocci, gekkst fyrir greinasafni um
22. þing Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, í samráð'i við út-
gáfufyrirtækið Einaudi. Sú grein, sem hér birtist í lauslegri
þýðingu, var rituð til þátttökn í þeim umræðum. Það er ætíð
gagnlegt að kynnast hugmyndum manna um þetta vandamál án
tilits til eigin skoðana. Höfundur greinarinnar, Paul A. Baran,
er bandarískur prófessor í hagfræði og hefur m. a. ritað bókina
The Political Economy oj Growth. Greinin birtist í maíhefti ár-
gangsins 1962 af hinu ameríska, sósíalistíska tímariti Monthly
Review, an independent socialist magazine, sem gefið er út í
New York af Leo Huberman og Paul M. Sweezy og áður hefur
verið sagt frá í Rétti.]
Kjarninn í þeim viðfangsefnum sem 22. flokksþing Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna setti á dagskrá virðist mér vera þessi, í sem
fæstum orðum: Mun hið formlega og óræka fráhvarf og algera for-
dæming á öllum þvingunum, ofbeldisverkum og kreddufestu, sem
var áberandi einkenni fyrir völd Stalíns, hafa í för með sér jafn
algera stefnubeytingu í framkvæmd sósíalismans frá því er var undir
hans leiðsögu?
Þótt allir sósíalistar, að því er ég bezt veit — bæði til bægri og
vinstri, í Sovétríkjunum og Ítalíu, í Kína og Frakklandi — viður-
kenni fráhvarfið nauðsynlegt og æskilegt, þá eru í mörgum löndum
engar þær hliðstæður sem mæli með stefnubreytingu í framkvæmd
sósíalismans. Þeir hægri — „endurskoðunarsinnar“ eins og þeir
eru nú kallaðir — notfæra sér þessa almennu fordæmingu á óhæfu-
verkum Stalíns til þess að krefjast meiri og minni gagngerðra af-
neitana á megniatriðum þeirrar stjórnarstefnu sem er tengd nafni