Réttur - 01.01.1963, Side 61
R É T T U R
61
um auðmagnssamsteypur á árunum 1957 til 1962. Helmingurinn af
þeim var milli vestur-þýzks og fransks auðmagns.
Þessi samruni auðmagns einokunarhringa beggja landanna er
undirstaða hernaðar- og stjórnmálabandalags Frakklands og Vestur-
Þýzkalands. Adenauer og de Gaulle eru bara pólitískir framkvæmd-
arstjórar þessa auðvaldssamruna. Og auðvald Vestur-Þýzkalands
vonast lil að liafa þar undirtökin, hið sama auðvald, sem áður beitti
fyrir sig Vilhjálmi keisara og síðan Adolf Hitler í tilraunum sín-
um til að brjóta Evrópu og heiminn undir sig. Og voldugustu aðilj-
ar þess auðvalds eru enn Krupp, „fallbyssuættin" alræmda, og IGF,
efnahringurinn voldugi, sem m. a. lét í té eiturgasið til að drepa
Gyðinga og andkomnrúnista með í útrýmingarbúðum nasismans.
— Og það eru til menn á Islandi, sem segja að í þessum félagsskap
eigi Island heima vegna „menningar- og erfðatengsla“.
Du Bois 95 óra.
23. febrúar 1963 varð William Du Bois 95 ára. Hann er einn
frægasti vísindanraður bandarískur af negrakynstofni, fæddur 23.
febrúar 1868 í USA. Langafi Itans var frá strönd Vestur-Afríku,
seldur mannsali af Hollendingum. Du Bois stundaði nám við há-
skóla fyrir negra. Síðan tók hann próf við Harvard-háskólann og
var svo tvö ár í háskólanum í Berlín. En 27 ára negri gat enga stöðu
fengið í Bandaríkjunum, þótt lrann væri magister í listum. Hann
tók upp barátluna fyrir jafnrétti kynstofnanna. Hann hefur ritað
leikrit og skáldsögur og vísindalegar ritgerðir um Afríku, einkum
sögu þeirrar heimsálfu.
Du Bois er í stjórn heimsfriðarhreyfingarinnar og fékk 1959
heimsfriðarverðlaunin. — Nú býr hann í Ghana og stjórnar þar
Encyclopaedia Africana (afrískri alfræðibók) og tók nýlega þá á-
kvörðun að setjast þar að og gerast ríkisborgari í Gliana.