Réttur - 01.05.1937, Síða 2
tryggt, ellitryggt, hraust fólk og hugkvæmt, góð-
gjarnt, friðsamt, hamingjusamt?
Hvenær rennur slíkur fyrsti maí upp?
Hver er sá, er dirfist að óska þess, að slíkur fyrsti
maí renni aldrei upp?
Og hver er sá, er dirfist að efast um það, að slík-
ur fyrsti maí geti runnið upp, verði að renna upp, ef
Islendingar vilja verða sjálfstæð menningarþjóð, ekki
aðeins í orði, heldur í raun og sannleika.
Fyrsti maí í ár skal verða öflugri undirbúningsdag-
ur undir valdatöku verkalýðsins en nokkru sinni fyrr
undirbúningsdagur þeirrar samstillingar til fram-
sóknar og átaka, sem ein getur leitt að hinu mikla
marki, undirbúningsdagur að hinni virku samfylk-
ingu, sem hver hugsandi og starfandi íslendingur er
nú að ganga til fulltingis við.
Fyrsti maí í ár skal verða sá sóldagur, er blæs
hverjum frjálshuga manni þe'im eldi í brjóst, sem
brennir til ösku hinar fúnu stoðir íhalds og auðvalds,
og tendrar vita frelsis, jafnréttis og bræðralags á
hverju annesi íslands, á hverjum tindi íslands, í
hverjum íslenzkum bæ, í hverju íslenzku hjarta.
Fyrsti maí í ár skal verða dagur reikningsskilanna,
þá skal hver verkamaður, hver bóndi, hver mennta-
maður, hver ærlegur borgari, gera upp við sig, hvort
við á að taka innan fárra daga stjórn íhaldsins og
auðvaldsins á íslandi, eða hvort frjálslyndið, lýðræð-
ið, menningin, allar hinar áunnu forsendur sósíal-
ismans, eiga að bera sigur úr býtum.
Enginn góður íslendingur mun verða í vafa. Hann
veit að málstaður alþýðunnar er ihinn eini sanni mál-
staður, og á þess vegna, mun þess vegna, hlýtur þess
vegna, verður þess vegna að sigra!
82